Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1953, Blaðsíða 93
— 91
1953
endur framhaldsskólanna. Þeir, sem
jakvæðir reyndust, voru svo röntgen-
myndaðir i Líkn, og fannst enginn
berklaveikur við þá skoðun.
Akrcuies. Berklasjúklingar skráðir ó-
venjumargir, alls 9 sjúklingar, og eru
flestir þeirra, 5 alls, frá sama heimili.
I maímánuði varð vart við berklaveiki
a Birnhöfða í Innra-Akraneslireppi.
Kona bóndans, 42 ára gömul, hafði
haft kvef um tima, er eigi vildi batna,
og kom í ljós við skoðun, að sputum
moraði af sóttkveikjum. Var heimilið
rannsakað og gerð leit í sveitinni, og
framkvæmdi dr. Óli Hjaltested hana.
Börn sjúklingsins reyndust öll smituð
og 4 þeirra með þær breytingar, að
ástæða þótti að skrá þau. Berklapróf
var endurtelcið á öllum börnum sveit-
nrinnar við skólaskoðun um haustið,
en ekki kom neitt nýtt í ljós. G. sjúk-
lingurinn er 4 ára drengur af næsta
bæ, Krossi, sem veiktist um likt leyti.
Hann er hér á sjúkrahúsinu með men-
ingitis tuberculosa. 7. sjúklingurinn er
b2 ára Akurnesingur. Sóttkveikjur
iundust í magaskolvökva frá honum.
8. sjúklingurinn er sjómaður, sem hér
dvelst, og hinn 9. sömuleiðis aðkom-
mn, dvelst hér um tíma.
Borgarnes. 1 kona bættist á berkla-
skrá. Hefur haft berkla í mörg ár, en
ekki verið heima nema með höppum
°g glöppum og ég ekki þekkt til henn-
ar. Fyrstu ár mín hér var töluvert um
Pneumothorax, sem halda þurfti við
liér heima. Nú er enginn, sem þarf á
þess háttar aðgerð að halda.
Búðardals. Berklaveiki kom upp á
bæ einum á Skarðsströnd. Hafði 6 ára
drengur veikzt og verið með hita all-
langan tíma. Kom síðar í ljós, að
hann var Pirquet+ og með hilitis.
3 systkini fullorðin af þessum bæ
v°ru athuguð á Berklavarnastöð
Heykjavíkur. Reyndist eitt þeirra, 33
nra karlmaður, hafa infiltrat i lunga,
°g siðar kom í ljós smit i magaskol-
vatni. Systur 2 reyndust heilbrigðar.
Foreldrarnir voru athugaðir, án þess
að nokkuð reyndist athugavert. Er
ekki ólíklegt, að þessi fyrr umgetni
karlmaður hafi smitað litla drenginn.
Er hann nú á Vífilsstöðum, en litli
drengurinn mun vera heima og er á
batavegi. 2 konur voru blásnar heima.
Enn fremur dvaldist tvítug stúlka í
héraðinu og var þá blásin hér. Er hún
nú vinnandi syðra. Berklapróf gert á
öllum barnaskólabörnum, og reyndist
1 +, sem -f- var i fyrra. Er verst, hve
dómur þeirra, er lesa, reynist oft fall-
valtur. En kennarar gera það oftast.
T. d. reyndust nú 2 börn h-, sem í
fyrra voru +, að þvi er sagt var í
fyrsta sinn.
Reykhóla. Ekkert tilfelli á árinu og'
enginn veikur fyrir. Ekkert skólabarn
Moro+, sem ekki var það áður.
Flateyjar. Þeir, sem á skrá eru, voru
gegnlýstir 3—4 sinnum, og virðast
allir heldur á batavegi. 18 ára stúlka
var send til Reykjavikur til eftirlits,
og reyndist hún heilbrigð orðin.
Þingeyrar. Endurskráður sjúkling-
ur, er reyndist vera með berklasmit
og sýkt liafði 4 börn, öll með brjóst-
holseitlaberkla. Sendur á Vifilsstaði.
3 sjúklingar njóta loftbrjóstaðgerðar
allt árið.
Flateyrar. Héraðslæknir segir frá 3
sjúklingum með virka berklaveiki, þar
af einum nýsmituðum. Var starfsstúlka
i sjúkrahúsi ísafjarðar og hefur senni-
lega smitazt þar.
Botungarvikur. Ungur piltur héðan
veiktist hastarlega af pleuropneumonia
tuberculosa og var síðar fluttur á Víf-
ilsstaðahæli; var nýkominn heim af
skóla, og gerði ég viðkomandi héraðs-
lækni aðvart; er hér þó vafalaust um
reaktiveringu að ræða, því að 4 ára
gamall fékk drengurinn hilitis tuber-
culosa og lá lengi á spitala. Ungur
piltur, sem vann með honum, eftir að
hann fyrst kom heim, smitaðist og
fékk hilitis (var neikvæður árið áður),
en veiktist aldrei klíniskt. 2 börn, sem
voru send héðan á Ísafjarðarspítala um
veturinn, annað vegna útbrota, 1 árs,
hitt 8 ára drengur til botnlangaað-
gerðar, munu hafa smitazt þar. Þrátt
fyrir ýtarlega leit í umhverfi þessara
barna hér fann ég engan smitbera þar,
og skýrði ég sjúkrahúslækninum frá
þessari grunsemd minni og einnig
berklalæknunum, er þeir komu til að
berklaskoða ibúa ísafjarðarkaupstað-
ar; komu þeir hingað einn dag og
skoðuðu alla i nánasta umhverfi þess-