Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1953, Blaðsíða 160
1953
158
Bað er sjaldgæfur luxus hér í sveit.
Kamrar eða klósett eru víðast hvar á
heimilum, sem ég þekki til. Þrifnaður
er góður á einstaka heimili, en víða
er honum ábótavant, og á stöku heim-
ili er sóðaskapur sýnilega mikill, bæði
utan húss og innan. Fullgerð var á
árinu mjög rúmgóð ibúð handa sókn-
arprestinum. Hafði presturinn undan-
farin 2 ár búið í læknisbústaðnum í
Árnesi. Varð hann, meðan hann bjó
þar, að láta húsgögn sin standa á
miðju gólfi til þess að verja þau
skemmdum vegna raka.
Hólmavíkur. Hafin bygging prests-
bústaðar á Hólmavík, og mun honum
verða lokið á næsta ári.
Hvammstanga. Töluvert um bygg-
ingarframkvæmdir, eins og undanfar-
in ár. 12 íbúðarhús i smiðum i hér-
aðinu og 16 gripahús og heyhlöður.
Þrifnaður viðast aligóður. Litlar eða
engar breytingar á mataræði. Yfirleitt
sæmilegt, meira um garðmat en und-
anfarið sökum góðrar uppskeru, en
ávextir fáanlegir í verzlunum öðru
hverju til gamans. Skortur á nýjum
fiski til nokkurs baga, en kaupfélagið
hefur reynt að bæta úr með útvegun
nýs fisks, sem siðan er geymdur í
frystihúsinu. Verður þetta þó heldur
leiðinlegur matur.
Blönduós. Húsakynni fara batnandi
ár frá ári, bæði í sveitunum og hér á
Blönduósi, því að hér hafa sprottið
upp allmörg einbýlishús siðustu 2—3
árin, flest reist af efnalitlum mönnum,
sem notið hafa góðs af smáíbúðalán-
um. Er þetta miklu meira en sam-
svarar fólksfjölguninni á staðnum, því
að gömlu tómthúsmannakotin frá
aldamótatimunum eru nú sem óðast
að hverfa. Flest voru þau úr torfi og
timbri, venjulega haðstofa, sem var
1—2 stafgólf, eldhúskompa fram af
lienni og einhver geymslukofi. Þau
kot, sem eftir eru, hafa flest lent í
eigu gamalmenna, karla eða kvenna,
sem hafa flutzt hingað úr sveitinni og
hafast þarna við sem einsetufólk,
þangað til heilsan bilar svo, að yfir-
völdin verða að koma því fyrir, þar
sem kostur er einhverrar hjúkrunar.
Hefur þetta reynzt talsvert vandamál
hér, en leysist nú vonandi bráðlega á
viðunandi hátt, er nýja sjúkrahúsið
tekur til starfa, en það verður einnig
hjúkrunarheimili.
Sauðárkróks. Á Sauðárlcróki var
tekið í notkun 1 einbýlishús á árinu,
en nokkur eru í smíðum. Má nú segja,
að lítið sé orðið um slæmar ibúðir í
bænum, enda hefur mikið verið byggt
síðustu 15 árin, en fólki fjölgað litið.
Nokkuð er alltaf byggt i sveitinni,
bæði íbúðarhús og peningshús, en þó
með minna móti.
Ólafsfi. Lokið að fullu við byggingu
tveggja hæða húss með 2 ibúðum.
Nokkrar ibúðir standa auðar vegna
burtflutnings. Utanhússþrifnaði er enn
mjög ábótavant. Bærinn hefur ekki
tekið aftur upp sorphreinsun. Fólk
losar sig því sjálft við allt sorp og er
mjög hirðulaust með það.
Grenivíkur. Byrjað var á byggingu
5 íbúðarhúsa, 3 þeirra hér á Grenivík,
2 i sveitinni. 2 þeirra eru langt kom-
in, en ekki er lokið við nema grunn-
inn á 2. Húsakynni í héraðinu eru nú
yfirleitt góð. Á einum bóndabæ voru
húsakynnin svo mikið bætt, að tala
má þar um nýtt hús. Eldri timburhús-
in ganga úr sér, svo að sum þeirra
eru orðin mjög köld. Þrifnaður verð-
ur yfirleitt að teljast góður.
Þórshafnar. Lokið byggingu 1 iveru-
húss i Þórshöfn og 1 bóndabæjar,
hvors tveggja úr steini. Hafin bygging
á 3 íveruhúsum i Þórshöfn. Húsa-
kynnin mörg léleg og þrifnaði ábóta-
vant.
Vopnafi. Fullgerð voru á árinu 6
íbúðarhús, sem verið hafa í smíðum
undanfarin ár og hafin bygging 3—4
nýrra húsa. Uppbyggingu á sveitabýl-
um hefur miðað vel áfram hin síðari
ár, svo að nú eru aðeins örfáar jarðir,
sem ekki eru ný hús á, og þó víðast
viðunandi eldri húsakynni. í þorpinu
risa stöðugt ný hús, svo að um hús-
næðisvandræði er ekki að ræða þar
lengur. Liggur jafnvel við, að eldri
húsakynni nýtist ekki, þótt nothæf
séu.
Seyðisfi. Engar nýbyggingar á ár-
inu, enda stendur það ekki til, þar
sem fólkið hugsar mest um að komast