Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1953, Blaðsíða 79
— 77 —
1953
Sumir fengu gastroenteritis, en fáir.
Engir aðrir fyígikvillar. Úr Saurbæn-
um barst inflúenzan út á Skarðströnd,
þar sem hún var viðloðandi um hríð,
en breiddist að heita mátti ekki frek-
nr út. í maí barst hún svo aftur hing-
að i héraðið, þá líklega utan af Skóg-
arströnd. Hagaði sér mjög likt og hinn
fyrri faraldur og tók yfirleitt allt
heimilisfólk. 2 gamlar konur dóu af
afleiðingum veikinnar.
Flateyjar. Sögur fóru af allþungri
inflúenzu í Múlasveit í mai, en lælcnir
var ekki sóttur, og faraldurinn var
ekki skráður.
Flateyrar. Fremur væg, byrjaði í
marz og fjaraði út í ágúst.
Hólmaviknr. Gekk í marz og apríl,
eingöngu í Kaldrananeshreppi.
Hvammstanga. Barst inn í héraðið
með ferðalöngum í marz. Náði há-
marki í apríl. Entist fram í júní. Lagð-
ist nokkuð þungt á sums staðar.
Blönduós. Ekki skráð hér á mánað-
arskrám nema í april—júní, en allút-
hreidd kvefsótt hafði gengið frá því
fyrir áramót. Um sumarmálin breytt-
ist háttalag hennar, og tók hún á sig
reglulegan inflúenzusvip, en sá far-
aldur var þó nær eingöngu bundinn
við Bólstaðarhliðarhrepp. Hefur senni-
lega komið þangað frá Skagafirði, og
íengu þar 3 lungnabólgu. Sjálfur get
ég ekki sagt, að ég hafi fengið inflú-
enzu siðan 1918, en þó mjög væga þá,
iyrr en nú, þvi að ég lagðist og lá i
viku.
SauSárkróks. í marzmánuði barst
inflúenza inn í héraðið og breiddist
Ejótt mikið út. Náði hún hámarki í
aPrílmánuði og stóð fram eftir maí-
mánuði. Mátti svo heita, að hún
hreiddist um allt héraðið. Var veikin
nilþung og áreiðanlega versta inflú-
enza, sem komið hefur hér þau 15 ár,
setn ég hef starfað hér. 3 gamalmenni
dóu úr inflúenzu, og i fleiri tilfellum
nnin hún hafa flýtt fyrir dauða gamals
fólks, sem þó ekki telst beinlínis dáið
Ur inflúenzu.
Hofsós. Lítils háttar faraldur i maí
°8 júní. Mun þó útbreiðsla veikinnar
hafa verið töluvert meiri en tala hinna
skráðu ber með sér.
Siglufj. Faraldur gekk yfir um miðj-
an veturinn, en reyndist ekki sér-
staklega slæmur og olli engum mann-
dauða.
Grenivíkur. Gekk aldrei sem farald-
ur, en nokkur tilfelli skráð i maí og
júni. Inflúenzuserum gaf ég allmörg-
um i Draflastaðasókn.
Breiðumýrar. Barst a. m. k. þrivegis
inn i héraðið, en aðeins einu sinni
var vitað eftir hvaða leiðum. 2 skiptin
breiddist hún lítið út, á 1 og 2 bæi,
en í þriðja skiptið kom hún upp í
alþýðuskólanum á Laugum og barst
þaðan allvíða. í Laugaskóla veiktust
rúmlega 70 af 100 nemendum, sem i
skólanum bjuggu. Veiktust þeir allir á
5 sólarhringum. Hiti var um og yfir
39,5° í þeim, sem fyrstir lögðust, en
fór mjög lækkandi, eftir því sem leng-
ur leið, og nokkrir, sem síðast veikt-
ust, fengu aðeins um 39°. Eins var
áberandi, að þeir, sem fyrr veiktust,
voru lengur veikir, en hinir síðari
aðeins 1—3 daga. Beinverkir og slæm
liðan var mikil, en catarrhalia lítil og
yfirleitt undantekning að rekast á obj.
einkenni, nema þá léttan roða í koki.
Ifúsmæðraskólinn á Laugum stendur
rétt hjá alþýðuskólanum. Samgangur
var óhindraður á milli skólanna, en
veikin kom ekki upp í húsmæðraskól-
anum fyrr en sömu daga og hinir síð-
ustu veiktust i alþýðuskólanum og
hagaði sér svipað og i þeim. Hiti var
lágur og stóð stutt. Þar veiktist tæpur
helmingur nemenda. Jafnhliða þessu
og á eftir barst svo veikin á nokkra
bæi, tók þar flesta og sums staðar alla,
en var hvergi þung. Fylgikvillar mjög
litlir. 3 tilfelli af otitis, sem þó datt
fljótt niður við pensilíngjöf. 1 nem-
andi frá Laugum fékk þráláta bron-
ehitis eftir erfiða heimferð, nýlega
upprisinn úr inflúenzunni, en ferðin
var svo slæm, að þar þurfti tæplega
aðra útskýringu. Yfirleitt tel ég þessa
pest væga, en "reinilega inflúenzu. Al-
mennu einkennin réðu nær alls staðar
sjúkdómsmyndinni; staðbundin ein-
kenni voru bæði strjál og létt. Út-
breiðslan mjög skarpt afmörkuð.
Kópaskers. Barst til Raufarhafnar
og nágrennis seint í apríl með konu,