Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1953, Blaðsíða 96
1953
— 94 —
Hér fer á eftir skrá um sullaveikis-
sjúklinga þá, sem greindir eru i árs-
yfirlitinu: Búðardals: 1 (kona,
82 ára); H o f s ó s : 1 (karl, 59 ára);
Akureyrar: 1 (karl, 72 ára);
Þórshafnar: 1 (kona, 61 árs);
H a f n a r : 1 (kona, 39 ára);
Kirkjubæjar: 1 (kona, 85 ára);
Stórólfshvols: 1 (kona, 75
ára); Selfoss: 1 (karl, 83 ára).
Rvík. Sullur (ecliinococcosis abdo-
minalis) aðaldánarmein 77 ára karl-
manns. Annar karlmaður lézt af völd-
um echinococcosis hepatis suppura-
tiva. Enn var sullur aukadánarmein
84 ára konu.
Búðardals. Gömul kona á Fells-
strönd með fistula hepatis. Skráð und-
anfarin ár. Hundahreinsun hér eflaust
ófullkomin eins og annars staðar. Þó
munu hundar hreinsaðir i hverjum
hreppi á hverju hausti. Að minnsta
kosti sendi ég alltaf Semen arecae-
skammta, ásamt Solublettae sublimati,
til allra oddvita sýslunnar. Veit ég og,
að flestir þeirra láta sér umhugað um,
að hreinsun fari fram. Hvernig verkið
er unnið, veit ég ekki, en þó mun
það fara mikið eftir því, hverjir velj-
ast til verksins, og eins, hvernig húsa-
kynni eru til starfans. En erfiðlega
gengur að fá menn til að vinna þetta
verk, sem bæði þykir illa borgað og
óþrifalegt. Reynt eins og mögulegt er
að láta hunda ekki komast á slátur-
stað. Vildi það ganga erfiðlega síðast
liðið haust, þar eð Kaupfélagið þóttist
þurfa á húsi því að halda, sem notað
hafði verið til að geyma hundana i.
Mun verða reynt að bæta úr því næsta
liaust.
Flateyrar. Hundahreinsara vantar í
Súgandafirði. Gjöld af hundum í
kauptúninu hafa verið hækkuð upp í
kr. 150,00, og veitir það nokkurt að-
hald. Engir sullir fundust i fé, sem
slátrað var á vegum Kaupfélags Ön-
firðinga og Súgfirðinga, en i 8 mánaða
kálfi, sem gengið hafði i túnfætinum
á Kotum í Önundarfirði, fannst sull-
ur. Skýrsla þar að lútandi send Til-
raunastöðinni á Keldum.
Árnes. 70 ára gamall maður, sem
lagður var inn á Landsspítalann.
Blönduós. Hefur ekki sézt, enda
ekki komið hér fyrir nema 2 tilfelli
í þau 20 ár, sem ég hef verið hér.
Nokkuð ber á sullum i sláturfé frá
sumum heimilum, en þar mun varla
vera um taenia eccinococcus að ræða.
Öllum slíkum sullum var safnað saman
að þessu sinni og þeir sendir til Til-
raunastöðvarinnar á Keldum.
Hofsós. 1 karlmaður 59 ára. Hafði
stóran kalkaðan og inficeraðan sull i
lifur. Var fluttur á sjúkrahús i Reykja-
vík og dó þar, áður en uppskurður
var gerður.
Kópaskers. Roskinn maður hefur
um margra ára skeið haft opinn fistil
eftir sullskurð, en er að öðru leyti
ekki sullaveikur. Hundahreinsun er
framkvæmd samvizkusamlega af
hundahreinsunarmönnum, og mér
virðist almennur áhugi fyrir sulla-
vörnum. Hræddur er ég þó um, að
sumir setji of mikið traust á hunda-
hreinsunina, en sé ekki nægilega ljóst,
að annar staður er miklu öruggari og
auðveldari til árásar á lífshringrás
bandorms, þ. e. að hindra, að hund-
arnir nái í sulli úr sauðfénu. í haust
fannst enginn lifrarsullur í þvi fé, sem
slátrað var í sláturhúsinu á Kópaskeri,
og lítið af öðrum sullum.
Seyðisfj. Sullaveiki verður aldrei
vart hér, en getið hefur áður verið
um gamlan mann, nú 80 ára, sem geng-
ur með tumor í epigastrium, og gæti
það vel verið gamall sullur. Hunda-
hreinsun er framkvæmd hér, en senni-
lega með sömu ágöllum og annars
staðar. Lítið ber á sullum í sláturfé,
enda brýnt fyrir almenningi að eyða
þeim.
Djúpavogs. Gamall maður hér i hér-
aðinu mun vera með fistil eftir lifrar-
sullsaðgerð. Ég safnaði hér á Djúpa-
vogi öllum grunsamlegum sullum úr
sláturfé siðast liðið haust og sendi að
Keldum. Echinococcus granulosus
fannst í 2 eða 3 kindum úr Alftarfirði.
Hætta er á því, að sullir í sauðfé
magnist mjög á næstunni, ef hunda-
hreinsun er vanrækt, eins og þvi mið-
ur hefur verið undanfarin ár.