Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1953, Blaðsíða 133
— 131 —
1953
P>eykjavikur, þar sem áætlunarflugferð
féll.
Bolungarvíkur. 7 ára drengur
drukknaði hér við brjótinn, féll milli
báts og bryggju, án þess að menn yrðu
þess varir, fyrr en m/s Heiðrún er að
le§gja að brjótnum, og sér þá mat-
sveinn, hvar lik flýtur i sjónum. Lífg-
unartilraunir báru ekki árangur. Rétt-
arrannsókn benti helzt til, að um %
tími eða þar um bil hefði liðið, frá
Pví að drengsins hafði síðast orðið
vart og þangað til hann var fiskaður
upp. Voru menn i bátum vinnandi af
akafa við að stokka linur á útilegur
°g höfðu rekið dreng þenna ásamt
fleirum oftsinnis upp á brjót, en ekki
.ufðu þeir orðið varir við fall hans í
sJoinn. Áverkamerki voru á nefbaki
°g höfði, og þykir mér liklegast, að
drengurinn hafi skollið í brjótinn eða
teina þá, sem standa þar út, og rotast
e®a misst meðvitund, og þvi ekki gef-
lð nein hljóð frá sér. Var drengurinn
jujög vanþroska og því ólíklegt, að
f'ann gæfi ekki frá sér há hljóð, svo
sem slíkra barna er vandi. Önnur slys
voru smávægileg, svo sem krækjur í
fingur, marðar og brotnar tær o. fl.
Árnes. Ungur maður (16 ára) beið
hana, er hann var á ferð á milli bæj-
anna Kaldbaks og Kleifa. Hafði hann
Jagt af stað að kvöldi dags, og fór
'ann fjallaleið, sem aldrei er farin að
' etnarlagi. Þótti ekki fært að leita
nans þá um nóttina, en um morgun-
jnn eftir fannst hann dauður. Hafði
nann hrapað niður freðna fjallshlíð-
!na, niður fyrir hamra, og senni-
,ega beðið bana samstundis. Vuinus
'ncisum 5, contusum 2. Fract. ulnae 1
tstúlkubarn féll niður af bílpalli og
laut handleggsbrot), ossis metatarsi
(26 ára karlmaður klemmdist milli
e™s og uppistöðu í lyftu).
. Hólmavikur. Telpa á 4. ári varð úti
j september. Var aðkomandi, kom til
olmavikur 3. september, týndist
saina dag. Fannst 6. september um 10
, !n frá þorpinu. Annars engin meira
attar slys. Fract. claviculae 2.
.. ™var>imstanga. Fract. claviculae 2,
onnur i fæðingu, costarum 2, anti-
j^achii 1, fibulae 1. Lux. humeri 1,
* 'storsio genus 2, pedis 3. Combus-
tiones 3, smávægilegar. Vulnera incisa
14, þar af 3 sinnum skornar sinar í
fingrum. Vulnera contusa 17. Con-
tusiones 5.
Blönduós. 26 ára maður reið út í
Vatnsdalsá ófæra, hugðist sundriða
hana, en losnaði af hestinum og
drukknaði. Sást til hans frá næsta bæ,
en líkið fannst ekki fyrr en eftir
nokkra daga, þrátt fyrir allmikla leit.
Maður, hálfþritugur, lenti með hönd-
ina i rafmagnsspil, en gat slitið sig
úr því, áður en hann lét hönd sina.
Taka varð þó af löngutöng og baug-
fingur um efstu hnúa, en vísifingur
um miðjan efsta köggul. Beinbrot
komu fyrir 11, liðhlaup 2, benjar 25,
mör 12, brunar 6, tognanir 9. Alloft
þurfti að ná ögn úr auga og aðskota-
hlut úr holdi eitthvað þrisvar sinnum.
Sauðárkróks. Sublux. radii peran-
nularis 4 (á börnum), lux. antibrachii
1, fract. digiti V manus complicata 1,
complicata digitorum c. amputatione
traumatica 1, metacarpi 1, radii 3,
antibrachii 1, claviculae 4, costae 1,
colli femoris 1, tibiae c. haemarthrosi
genus 1 (fimmtugur maður datt ofan af
réttarvegg), cruris 1 (39 ára gamall
maður, sleginn af folaldi), malleoli
externi & fract. capitis fibulae &
tibiae 1 (62 ára kona datt úr stiga),
fibulae & malleoli interni & lux. pedis 1
(41 árs maður, féll niður á hann
planki), malleoli externi 3, tali 1,
metatarsi 1. 9 ára drengur, til heim-
ilis frammi í dölum, hrapaði niður i
gil og fékk marga og djúpa skurði á
andlit. Þar sem ekki voru tiltök að
flytja hann, varð að sauma hann
heima, og greri allt sæmilega. Bóndi
fékk heykvisl í auga og þar með vul-
nus perforans oculi. Var saumaður af
augnlækni. Kona fór á hjóli og hélt í
hendinni á berum Ijá. Stakkst ljárinn
í fót hennar og skar sundur tendo
Achillei. Var konan tekin á sjúkra-
húsið og saurnuð. Var hún lengi að
gróa, en varð að lokum jafngóð.
Dauðaslys varð 1 á árinu, er íbúðar-
húsið á Heiði i Gönguskörðum brann.
7 ára drengur brann inni, og náðist
líkið allmikið brunnið úr rústunum
sama dag. Annar drengur brenndist
þá talsvert og var lagður á sjúkrahús,