Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1953, Blaðsíða 94
1953
— 92 —
ara barna, auk fjölda annarra, og
fundu þeir enga meÖ virka berkla þá;
löngu seinna átti ég tal við kollega
minn á ísafirði um útkomu skoðunar-
innar þar, og sagði hann mér þá, að
gamall maður á spítalanum hefði
fundizt með smit, og hefði hann verið
mjög góður við börn, sem þar lágu,
gælt og snúizt við þau, og er hér eðli-
leg skýring fengin.
Súðavikur. 2 nýir berklasjúklingar
skráðir. Annar þeirra, 16 ára stúlka í
Álftafirði með hilitis, lá heima og
læknaðist að fullu. Fór til ísafjarðar
nokkrum sinnum til eftirlits. Hinn
berklasjúklingurinn roskinn bóndi í
Álftafirði. Hafði legið á sjúkraliúsi
ísafjarðar fyrir nokkrum árum vegna
pleuritis exsudativa. Sjúklingurinn
reyndist hafa smit og var sendur á
Vifilsstaði. Fólk í næsta nágrenni var
rannsakað.
Árnes. Enginn í héraðinu hefur
fundizt með virka berklaveiki. Nokkr-
ir gamlir berklasjúklingar eru i hér-
aðinu; hef ég rannsakað þá alla, en
ekki fundið nein einkenni berkla-
veiki. Hef ég sent sputum til ræktunar
frá þeim öllum, og hefur það reynzt
negatívt. Af 36 skólabörnum reyndust
2 Moro+; annað hafði verið -f- árið
áður.
Hólmavíkur. Bóndi úr Bjarnarfirði
fékk haemoptysis. 2 ungir menn frá
Drangsnesi og bóndi úr Bitrufirði
fengu allir smitandi lungnaberkla.
Fóru allir á Vífilsstaði. 2 þeirra út-
skrifuðust þaðan á árinu. 2 ára telpa
veiktist í sumar; infiltratio i öðrum
lungnabroddi og adenitis hili. Dvelst
heima á góðum batavegi. Faðir henn-
ar, gamall berklasjúklingur, fékk
haemoptysis i júli og fór á Vífilsstaði.
Blönduós. Fer mjög minnkandi í
héraðinu og var nú enginn nýr sjúk-
lingur frumskráður. Nýrrar berkla-
smitunar hefur því ekki orðið vart í
neinum einstaklingi á þessu ári.
Sauðárkróks. Miklu meira um nýja
berklasjúklinga en verið liefur um
fjölda ára og eins mikið og samanlagt
undanfarin 4—5 ár. Snemma árs
veiktist bóndi frammi í sveit af tbc.
pulmonum og reyndist vera smitandi.
Veiktust nokkru siðar 2 börn hans
ung með erythema nodosum, og hafði
að minnsta kosti annað þeirra hilitis.
Þeim batnaði fljótlega. Maðurinn fór
á Kristneshæli og er þar enn þá. 79
ára gamall maður fékk berklaigerð á
hálsinn; eftir inflúenzuna fékk hann
einnig process í h. apex og varð smit-
andi. Honum batnaði vel af Rimifon
og var orðinn smitfri og ígerð bötnuð.
Hann fékk leyfi til að vera heima
undir eftirliti, enda engin börn á
heimilinu. 42 ára kona, frammi í sveit,
fékk pleuritis og tbc. pulmonum, fór
á Iíristneshæli og er á góðum bata-
vegi. Er berklalæknir var hér á ferð,
fannst 16 ára bakaranemi með process
i lunga. Hafði hann ekki verið lasinn,
að því er virðist. Fór hann á Krist-
neshæli. 13 ára drengur, sem fyrir 2
—3 árum hafði orðið fyrir berkla-
smitun án þess að veikjast þá, fékk
tbc. pulmonum og var sendur á Krist-
neshæli. Systkini hans 4, öll yngri en
hann, smituðust af honum og fengu
hilitis. Jafnaldri hans og félagi fékk
einnig hilitis og erythema nodosum.
Loks var svo 54 ára bóndi með
epididymitis tbc. Hefur hann verið
heima og er á batavegi. Aðstoðarlækn-
ir berklalæknis kom eins og áður og
skyggndi tbc.+ nemendur úr skólum
á Sauðárkróki og á Löngumýri, auk
þess alla kennara, starfsfólk mjólkur-
samlags, mjólkurbúða, kjötbúðar,
brauðgerðarhúss og gistihúsa, þar að
auk nokkra eftir tilvísun héraðslækn-
is, alls nokkuð á annað hundrað
manns. Við skoðunina fannst, eins og
áður er getið, bakaranemi með tbc.
pulmonum.
Ólafsfj. 1 nýr sjúklingur skráður á
árinu, karlmaður með epididymitis
tbc. Var skorinn á Siglufirði.
Húsavíkur. Virðist vera i rénun.
Engir nýir sjúklingar skráðir á árinu.
1 virkur á ný, hafði fyrir nokkru legið
langar legur vegna berkla í beinum
(fistlar út frá mjaðmarbeini), fékk
meningitis tbc. og dó eftir stutta legu.
Kópaskers. 2 sjúklingar, sem skráðir
voru í ársbyrjun, voru teknir af skrá
í árslok. Annar talinn óvirkur og hefði
líklega átt að hverfa af skrá áður.
Hinn dó á árinu, ekki þó úr berkla-
veiki. 1 kona veiktist af lungnaberkl-