Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1953, Blaðsíða 142
1953
— 140 —
settur 2. desember héraðslæknir í
Reykhólahéraði frá 1. s. m.
Lækningaleyfi veitt á árinu:
1. Almenn 1 æ k n i n g a 1 e y f i:
Jakob V. Jónasson (17. febrúar).
Grimur Jónsson (18. marz).
Páll Gíslason (18. júní).
Árni Björnsson (10. ágúst).
Jón Hannesson (2. október).
Baldur Jónsson (26. október).
GarSar Þ. Guðjónsson (4. nóvem-
ber).
Lilja M. Petersen (23. desember).
Valtýr Bjarnason (23. desember).
Ólafur Björnsson (30. desember).
2. Sérfræðingaleyfi:
Ólafur Bjarnason, meinafræði (9.
marz).
Arinbjörn Kolbeinsson, sýkla- og
ónæmisfræði (15. júní).
Óskar Þ. Þórðarson, áður sérfræð-
ingur í lyflækningum, hjarta- og efna-
skiptasjúkdómar (15. júní).
Þórarinn Guðnason, handlækningar
(3. október).
Karl Strand, tauga- og geðsjúkdóm-
ar (2. nóvember).
3. Takmörkuð lækninga-
1 e y f i :
Tannlækningar:
Kristján E. Gunnlaugsson (15. júni).
Öm Bjartmarz Pétursson (15. júni).
Elín Guðmannsdóttir (20. júli).
Ólöf Helga Sigurðardóttir (20. júlí).
Ewald Behrens, staðbundið leyfi á
Siglufirði framlengt til 1. júli 1954
(1. september).
Rvík. Á árinu létust 3 læknar í
Reykjavík, þeir Árni Pétursson, Bjarni
Oddsson og Ólafur Thorlacius. 3 nýir
læknar bættust við, Árni Björnsson,
Lilja Petersen og Páll Gíslason. 1
læknir fluttist burt, Þorbjörg Magnús-
dóttir. 2 tannlæknar bættust við: Elin
Guðmannsdóttir og Ólöf H. Sigurðar-
dóttir. Við embætti borgarlæknis
unnu jafnmargir og árið áður. 1. júni
var Magnús Ólafsson cand. med. &
chir. ráðinn aðstoðarlæknir í stað
Tómasar Helgasonar cand. med. &
chir.
Borgarnes. Héraðslæknir var fjar-
verandi vegna sjúkleika frá marzbyrj-
un til júníloka. Davíð Daviðsson cand.
med. & chir. þjónaði héraðinu frá því
í febrúar til ágústloka.
Flateyjar. Engin ljósmóðir er í Eyja-
hreppi.
Flateyrar. Hjúkrunarkona, sem ver-
ið hefur á Suðureyri, fór 1. október,
öllum til mesta óhagræðis. Ljósmóðir,
sem komin er af léttasta skeiði, hefur
eftir beztu getu reynt að fylla skarðið
og i öllu tekizt vel. Álagið er þó helzt
til mikið.
ísafj. Á áramótum 1952—1953 hætti
frú Elín Jónsdóttir ljósmóðir að gegna
ljósmóðurembætti fyrir kaupstaðinn.
Við embætti hennar tók ung ljósmóð-
ir, Margrét Hagalinsdóttir, sem hlotið
hefur menntun sina við hina nýju
fæðingardeild Landsspítalans. Annað
heilbrigðisstarfslið óbreytt.
Hólmavíkur. Ný ljósmóðir var sett
til að gegna Kirkjubólsumdæmi, jafn-
framt því að vera forstöðukona
sjúkrahússins. Héraðslæknir fékk ár-
langt lejdi frá október til að ljúka
framhaldsnámi. Pétur Traustason
cand. med. & chir. þjónaði héraðinu
á meðan.
Hvammstanga. Ljósmóðurlaust í
Bæjarhreppi. Ný Ijósmóðir í Hvamms-
tangaumdæmi frá 1. desember. Þessir
gegndu störfum fyrir mig i fjarveru
og orlofi: Lárus Jónsson læknir 10.—
26. janúar, Óli Kr. Guðmundsson stud.
med. & cliir. 16. júní til 15. júlí —
sumarfrí —, Pálmi Vilhelmsson, stud.
med. & chir. 8.—12. september.
Blönduós. Sigurður S. Magnússon
cand. med. & chir. lét af aðstoðar-
læknisstörfum í febrúarlok, en með
því að þá settist Halldór Arinbjarnar
cand. med. & chir. að sem praktiser-
andi læknir i Höfðakaupstað, ráðinn
þangað af hreppsnefnd, sá ég mér
ekki fært að taka upp á eigin spýtur
útlærðan lækni mér til aðstoðar, því
að nýútskrifaðir kandídatar krefjast
nú 6—7 þúsund króna kaups á mán-
uði. Pálmi Vilhelmsson stud. med. &
chir., sem á hér heima, var mér til
dálítils léttis hluta af sumrinu, en um
haustið vænkaðist hagur minn, því að