Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1953, Blaðsíða 144

Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1953, Blaðsíða 144
1953 — 142 nóvember. Voru þá fluttir þangað allir vistmenn gamla elliheimilisins, 29 að tölu. Auk þess bættist fljótt við far- lama fólk úr Reykjavík og annars staðar að, svo að um áramót voru þar um 40 manns. Alls á stofnunin að rúma 100 vistmenn, þar af fæðingar- deildin um 20, en fyrirhugað er, að hún byrji með vorinu. Húsakynni eru öll hin vistlegustu, stofur bjartar og rúmgóðar. Lyfta er í húsinu fyrir fólk og önnur úr eldhúsi fyrir mat. Á neðstu hæð eru nokkrar stofur í suð- urenda, þar sem heilsuverndarstöð á að hafa aðsetur, og er þar herbergi fyrir röntgentæki. Ljósastofa er þar tekin til starfa fyrir börn undir skóla- aldri, en ljósastofa fyrir skólabörnin verður eftir sem áður í barnaskólan- um. Kleppjárnsreykja. Sjúkraskýlið ekki starfrækt. Borgarnes. Sjúkrahúsið á Akranesi er nú tekið til starfa, og hefur skap- azt þar möguleiki á að fá spitalapláss fyrir sjúklinga héðan úr Borgarfjarð- ar- og Mýrasýslum, enda er vegakerfi um þetta svæði svo gott, að næstum aldrei þarf að verða hindrun á að koma sjúklingi á spítala á Akranesi, ef á liggur og ekki þarf beinlínis að koma honum á spítala í Reykjavík. Búðardals. Röntgentækið hefur ver- ið allmikið notað. Skortir þó héraðs- lækni þekkingu til að nota það sem skyldi. Veitti ekki af, að berklaeftir- litið kæmi upp námskeiðum í skyggn- ingu og myndatöku fyrir héraðslækna, þvi að flestir munu þeir harla fáfróðir í þeim efnum. Skyggningar gerðar 30 sinnum. Loftbrjóst um 70 sinnum á 3 sjúklingum. Flateyrar. Sjúkraskýlið rekið eins og áður. Bolungarvíkur. Lokið við lækninga- stofu, biðstofu, Ijósastofu og rannsókn- arstofuna í læknis- og sjúkraskýlis- byggingunni. Fluttist læknirinn í byrjun nóvember i þessi herbergi og notar rannsóknarskonsuna sem lyfja- búð, en innrétting lyfjabúðar er enn ekki hafin. Neðri hæðin var og gróf- pússuð. Hvammstanga. Sjúkraskýlið starf- rækt á sama hátt og áður. Aðsókn meiri en nokkru sinni fyrr. Framlag sýslusjóðs með minna móti, aðeins rúmar 27 þúsund krónur. Blönduós. Svo vel hefur tekizt til með rekstur sjúkrahússins, að það hef- ur verið rekið rekstrarhallalaust sið- ast liðin 2 ár, enda þótt daggjöldin séu lág. Þau voru 40 krónur á legu- dag framan af árinu, en hækkuðu á þvi miðju upp í 45 krónur og hafa haldizt það siðan. Fyrir grunni hér- aðsspitalans hafði verið grafið og lóð- in ræst haustið 1951. Kjallarinn, sem má heita allur í jörðu, var steyptur haustið 1952, en nú var hafizt handa fyrir alvöru og húsið gert fokhelt. Jafnframt var sú breyting gerð á því, að sett var Mansardþak á húsið í slað valmaþaks, og fékkst með þvi beil hæð til viðbótar. Fæst með því ágætt rúm fyrir 25 vistmenn á hjúkr- unardeild í viðbót við þau 30 rúm, sem eru á aðalsjúkrahæð hússins. í húsinu eru auk þess ibúðir fyrir yfir- lækni og aðstoðarlækni, auk ibúða fyrir allt annað starfsfólk, og allgott húsrými fyrir heilsuverndarstöð. í kjallara liússins eru miklar og góðar geymslur og ágætt rými fyrir nætur- hitun með rafmagni. Þar er og svo rúmgott þvottahús, að hægt verður að taka þvott af almenningi, ef það álízt hagkvæmt. Spitalanum fylgja nokkrar dagsláttur af túni, svo að hægt verður að rækta allmikið af trjám eða gera „park“ á hluta lóðarinnar. Hafa Hún- vetningar á Akureyri byrjað að gefa trjáplöntur og munu halda því áfram, en mæðgur einar hér innan héraðs, sem reka trjáplöntuuppeldi, hafa þeg- ar gefið 1000 birkiplöntur. í viðbót við þær gjafir, sem lagðar höfðu ver- ið áður fram af félagasamtökum og einstaklingum, var hafin almenn fjár- söfnun um alla hreppa sýslunnar, og gengur hún vel. Ekki mun og af veita, því að hér er um stórhýsi að ræða, yfir 8000 rúmmetra, og mun þvi húsið sjálft kosta um fjórar milljónir króna, þótt reiknað sé með 30—40% lægri byggingarkostnaði en tiðkast við opin- berar byggingar yfirleitt. Fram að þessu hefur tekizt að halda byggingar- kostnaðinum það lágum, þrátt fyrir það, að vandað er á allan hátt til
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182
Blaðsíða 183
Blaðsíða 184
Blaðsíða 185
Blaðsíða 186
Blaðsíða 187
Blaðsíða 188
Blaðsíða 189
Blaðsíða 190
Blaðsíða 191
Blaðsíða 192
Blaðsíða 193
Blaðsíða 194
Blaðsíða 195
Blaðsíða 196
Blaðsíða 197
Blaðsíða 198
Blaðsíða 199
Blaðsíða 200
Blaðsíða 201
Blaðsíða 202
Blaðsíða 203
Blaðsíða 204
Blaðsíða 205
Blaðsíða 206
Blaðsíða 207
Blaðsíða 208
Blaðsíða 209
Blaðsíða 210
Blaðsíða 211
Blaðsíða 212
Blaðsíða 213
Blaðsíða 214
Blaðsíða 215
Blaðsíða 216
Blaðsíða 217
Blaðsíða 218
Blaðsíða 219
Blaðsíða 220
Blaðsíða 221
Blaðsíða 222
Blaðsíða 223
Blaðsíða 224

x

Heilbrigðisskýrslur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.