Studia Islandica - 01.06.1970, Page 82

Studia Islandica - 01.06.1970, Page 82
80 brigðum. Honum gengur verr að fá vinnu en hann hugði. Gróðavænlegri hugmynd um auglýsingasamkeppni er stol- ið frá honum, og framtíðarhorfur hans verða æ ískyggilegri. Honum er alls staðar vísað frá á vinnustöðum, og þar kemur, að peninga hans þrýtur. Hann sekkur æ dýpra niður í eymd stórborganna, selur eða veðsetur allar eigur sínar og sveltur heilu hungri. Loks á hann einskis annars úrkosta en að stela sér til lífsbjargar. Hann er tekinn fastur og dæmdur í 10 ára fangelsi. fJr fangelsinu kemur hann forfaertm- og eirðarlaus. Hann tollir ekki í verksmiðjuvinnu, sem honum er fengin, en sækist eftir frjálsara og óháðara lífi. Hann tekur þátt í innbroti með fyrrverandi samfanga sínum, tekur að drekka og lifa svallsömu lífi. Honum er ekki lengur við bjargandi, og að lokum kórónar hann lífemi sitt með viðm-styggilegum glæp. Hann svívirðir og myrðir stúlkubam. Á æðisgengnum flótta undan lögreglunni ekur hann fram af sjávarhömrum og lætur líf sitt. — Að lokum víkur sögunni heim til Islands. Á bemskustöðvum Piagnars Finnssonar er ungur sonur hans að alast upp, viðkvæmur og stórlátur, eins og faðir hans hafði verið, og fullur af góðrnn áformum. Sagan endar eins og hún byrjar. Bygging skáldsögunnar er hvorki heilsteypt né markviss. Ber hún þess auðsæ merki, að hún hefur verið lengi í smíð- um. Drög að 1. kafla hennar birtust sem smásagan Faxi í Skírni 1914, og er því sú tilgáta Stefáns Einarssonar líkleg, að Kamban hafi byrjað á verkinu á námsárum sínum i Kaup- mannahöfn og hafi þá þegar haft í hyggju að semja skáldsögu um æsku- og skólaár sín, en síðan hafi Ameríkudvölin gefið honum efni í seinni hluta hennar.1 Víst er um það, að sagan fellur í tvo ólíka hluta. Fyrri hlutinn lýsir æsku- og skóla- árum Ragnars, og lýkur honum í xii. kafla eða jafnvel ein- um kafla fyrr. Þá taka við nokkrir sundurlausir og losara- legir tengikaflar, sem eiga að gegna því vandasama hlutverki 1 Faxi birtist einnig á dönsku í Tilskueren, August 1914. Sjá Stefán Einarsson 1932, 18.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Studia Islandica

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Studia Islandica
https://timarit.is/publication/1542

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.