Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2010, Blaðsíða 45
Byggðin sem hvarf
meira af sér en kýrfóður. Varð að ráði að Gísli
leigði land af Hofsbændum og ræktaði þar
myndarlegt tún. Þá fjölgaði í ijósinu og hlaðan
rúmaði yfir 200 hestburði af töðu.
Framkvæmdir föður míns voru þó í
grundvallaratriðum miðaðar við línuveiðar
á sumrin heima og vetrarvertíð á Hornafirði.
Fiskurinn var veiddur til saltfiskverkunar
heima, þ. á m. Hornafjarðaraflinn. Þetta var
álitlegur atvinnuvegur þar til heimskreppan
skall á um 1930, sem leiddi af sér gífurlegan
samdrátt í útflutningi saltfisks á næstu árum.
Sú þróun leiddi til þess að Gísli fjarlægðist
saltfískútgerð og úthald á landróðrabátum.
Hann seldi Bjöminn 1937, bát sem hann lét
smíða 1929, og ákvað að koma sér upp stóru
síldveiðiskipi, sem einnig mætti gera út á
vetrarvertíð syðra. Hann eignaðist Sæfínn,
gott síldarskip, 1938 og gerði út 17 ár alls.
Landbúskapurinn á Bjargi átti ekki framtíð.
Þessi þróun atvinnumála og þjóðfélagsbreyt-
inga réði mestu um það að Gísli fór frá Bjargi,
þótt það kæmi líka til að böm hans leituðu
annað um framtíð sína, þegar þar að kom. Það
breytir því ekki að við „Bjargbúar“ minnumst
bemsku- og æskustöðvanna með virðingu og
þakklæti fyrir hin fornu kynni.
1 sambandi við íbúðarhúsin, sem Gísli
Kristjánsson kom upp, Gamla-Bjarg og Nýja-
Bjarg, er þess að geta að þau vom þétt setin
fólki. Nýja-Bjarg var ekki aðeins íbúðarhús
Gísla og Fannýjar. Það var ekki einbýlishús
eins og sumir halda. Húsið var þrjár hæðir:
Jarðhæð með tveimur smáíbúðum, sem alltaf
voru leigðar út, síðan miðhæð og efsta hæð,
þar sem var íbúðarhúsnæði húseigenda og
starfsfólks þeirra. Á þeim tíma þóttu þetta
mikil húsakynni, voru um 150 fermetrar,
þegar aðrir urðu að láta sér nægja brot af
því fyrir stórar íjölskyldur. Eftir að foreldrar
mínir fluttust frá Gamla-Bjargi og höfðu haft
þar alla íbúðarhæðina fyrir sig, voru þar oft-
ast, að ég held, tvær íbúðir og oft þröngt um
fólk, ekki síst ef miðað er við nútímakröfur.
Leigjendaskipti voru nokkuð ör, ekki síst
á Gamla-Bjargi, en margs góðs fólks er að
minnast í því sambandi. Eg varð aldrei var við
annað en nágrannasambýli væri gott í Bjargs-
Bátur Gisla Kristjánssonar, Björn NK 33. Eigandi myndar: Skjala- og myndasafn Norðjjarðar.
43