Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2010, Blaðsíða 125
Snjóflóðið mikla á Seyðisfirði
ura mann er handleggsbrotnaði í flóðinu, og
við fleiri sjúklinga.
20. febrúar
Norðaustan stormur og bleituhríð varð ekkert
unnið að úti; hjálpaði lækninum við sjúk-
lingana.
21. febrúar
Allgott veður, hríðarlaust og bjart. Var grafið
og leitað allan daginn, fundum við Guðrúnu
konu Blöndals og síðar fannst Blöndal skamt
frá; ennfremur Bjarni vinnumaður af „hot-
ellinu“ fram í sjó; var hann einn af þeim fáu
sem komnir voru á fætur; sá sólina blessaða
litla stund, eftir því nær 4 mánaða ijærveru.
22. febrúar
Sunnud. Hvass norðaustan og blindhríð allan
daginn; ekkert unnið að úti. Gekk nteð lækn-
inum til sjúklinganna. Var ég fyrst svo mikið
búinn að ná mér að ég spilaði ögn á harm-
onium og las dálítið í Vort Aarhundrede og
„Zschokkes Husandagb“.
23. febrúar
Logn og gott veður allan daginn. Komu menn
aftur frá Vestdalseyri og hjálpuðu til að grafa;
fannst aðeins eitt lík, stúlka úr „Vingólfi" og
meðöl úr apótekinu; hjálpaði ég lækninum
til að binda um mann, er handleggsbrotnaði
í flóðinu og særðist á höfðinu en kom ekki
fyrr til læknisins og hefir unnið að greftri og
fl. svona til reika.
24. og 25. febrúar
Hægur norðaustan, dimmur og áköf snjókoma,
frost þvínær ekkert og stundum bleituhríð.
Voru menn hér alment ákaflega órólegir og
fáum varð vel svefnsamt, ekkert varð unnið
að líkaleit.
26. febrúar
Logn, létt loft en dimmur umhverfis. Fórum
við Aðalsteinn og Eggert með þeim Kr. Hall-
grímssyni, konu hans og börnum báðum út á
Vestdalseyri og urðu þau þar eftir; hefir firú
Guðrún ekki getað sofið neitt er heita má
síðan flóðið fjell og er orðin veik af hræðslu
og angist; héldum svo heim aftur, dimmdi
mjög um kvöldið með bleituhríð og leið-
inlegu útliti.
27. febrúar
Hvass norðaustan, dimmur og hríðarveður en
lítil snjókoma; um kvöldið birti svo máninn
náði að skína. Lauk ég við Vort Aarhundrede
(13h).
28. febrúar
Logn, heiðríkt og besta veður, glaða sól-
skin nokkurn tíma, en frostið 10 gráður R
um morguninn. Var ekki hægt að leita að
líkum, því snjórinn er svo ótrúlega mikill.
Um kvöldið glaða tunglskin og besta útlit.
Enginn sem ekki hefír reynt getur ímyndað
sér hvílíkur angistartími þetta hefir verið síðan
flóðið féll. Snjórinn aukist nótt sem dag og
menn hafa því á hverju augnabliki getað búist
við öðru flóði; svo hefí ég (og án efa flestir)
verið svo óskaplega „nervös“, orðið hverft
við hvert smáræðið t.d. þegar byl hefir rekið
á eða þá ekki hafi nema stóll verið dreginn til
á gólfi; fæstum mun hafa orðið vel svefnsamt
því eðlilega hafa menn lagst útaf hugsandi til
þess að vel gæti komið, að það væri í hið síð-
asta skipti eins og varð fyrir mörgum þeirra
er létust í flóðinu. En Drottinn hafði af mildi
sinni haldið hendi sinni yfír oss öllum sem
undan komumst, og nú hafa menn bestu vonir
um, að allt muni fara vel, síðan veðráttan
breyttist og hríðinni létti af.
123