Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2010, Blaðsíða 123
Snjóflóðið mikla á Seyðisfirði
Sigurður Arngrímsson tiltók þær Önnu
Jörgensen, Rósalindu Jörgensen, Einar Long
og Karl Einarsson. Þar má bæta við eftirtöldu
fólki:
Elís Jónsson kaupmaður Reykjavík
Hildur Einarsdóttir Reykjavík
Þóranna Einarsdóttir Seyðisfirði
Guðmundur Bekk Einarsson Seyðisfirði
og Haraldur Guðmundsson Seyðisfirði.
Auk þessa fólks fluttust til Ameríku bæði
eldri og yngri sem lentu í snjóflóðið.
Dagbókarfærslur Lárusar S. Tóm-
assonar skólastjóra, febrúar 1885
18. febrúar (öskudagur)
Vildi hér á Öldunni hið ógurlegasta slys kl. 7
1/2 um morguninn, hljóp þá fram breið spilda
í fjallinu hér fyrir ofan og hafði tekið sig upp
í gjá, sem nefnd er Hlaupgjá, því nær upp
undir brún á Býhólstindi, nam sumt staðar hér
skamt fyrir ofan á Öldunni en sumt hljóp til
sjávar og sópaði burt öllu, er fyrir varð, þar
á meðal 13 íbúðarhúsum og bjuggu í þeim
Jörgensen systur. Ljósmyndari: H. Einarsson. Eigandi
myndar: Ljósmyndasafn Austurlands.
Þóranna Einarsdóttir. Ljósmyndari: Eyjólfur Jónsson.
Eigandi myndar: Ljósmyndasafn Austurlands.
94 persónur, er allar lentu í flóðinu og auk
þeirra 2 aðkomandi; fórust af þeim 24 en
fyrir Guðs dásamlegu mildi komust hinir allir
lífs af, sumir af sjálfsdáðun en sumir voru
grafhir upp. 12 af þeim voru meira eða minna
særðir eða beinbrotnir. Flest allir voru í rúm-
inu er flóðið skall yfír og sumir ekki vaknaðir.
Meðal þeirra er fórust voru þessir: Geirm.
Guðmundsson á Vestdalseyri sem staddur
var á Hótellinu, Markús apótekari Jónsson,
Davíð Petersen (Norðm.) Valdimar Blöndal
og kona hans og Herr Thostrup.
Þegar flóðið skall yfír, lá ég milli svefns
og vöku í rúminu, því ég hafði ekki getað
sofíð um nóttina sökum hvassveðurs; heyrði
ég þá að kallað var við skóladyrnar og nefnt
snjóflóð og að „hotellið“ og „apotekið“ væri
komið fram í sjó; spratt ég þá á fætur og út,
var þá norðaustan stormur og blindhríð, en því
nær frostlaust, voru menn þá að þeytast að, og
fólkið úr húsunum efst á Öldunni að flýja hálf-
nakið hingað í neðri húsin og aðrirað brjótast
því nær naktir úr flóðinu; var svo þegar farið
121