Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2010, Side 108
Múlaþing
Iþróttamót á Borgarfirði eystra. Handboltaleikur stendur yfir. Eigandi myndar: Reynir Björnsson.
ina. Þangað hafði verið safnað svefnpokum,
sængurfötum og teppurn. Þeir Bjöggi og Sig-
björn sváfu niður í húsi þeirra Önnu og Hall-
dórs. Eftir að hafa þvegið okkur fórum við að
leggjast til svefins og kom þá einhver með þá
tillögu að best væri að poka þá stærstu og var
það gert. Frarnan af nóttu var lítið sofið vegna
áfloga og ýmis konar óláta. En flestir munu
þó hafa sofnað dálítið undir morguninn.
Um kvöldið og fram eftir nóttu var syngj-
andi rigning og því ekki gott útlit með íþrótta-
veður daginn eftir. Þegar líða tók á nóttina fór
að létta til og um morguninn var komið besta
veður og sólskin.
Um morguninn kom það í Ijós, að einn
svefnpokinn hafði reynst of lítill og var það
okkar stærsti rnaður sem hafði sprengt hann
utan af sér í draumi, sem hann dreymdi um
nóttina.
Þegar við sáum hvað veðrið var gott
flýttum við okkur á fætur og fórum niður
til þeirra Önnu og Halldórs og drukkum þar
kaffi og mjólk eftir því sem hver og einn
hafði lyst á.
Samkoman átti að vera inn á Hofsár-
bökkum og er þangað meira en klukkustundar
gangur frá þorpinu. Við töldum víst, að okkur
yrði ætlaður bíll til að fara á samkomustaðinn,
en þegar til kom fengum við engan bíl, því
að Vopnfirðingar þurfu að sitja fyrir þeim.
En okkur var sagt, að við myndum komast á
trillunum alla leið á samkomustaðinn ef við
færum á flóði, því þá væri Hofsá það djúp, að
bátar flytu á henni. Eftir að hafa snætt góðan
hádegisverð á sama stað, varð það úr að við
fengum Braga Haraldsson til að fara með
okkur á trillu er hann átti. Arni Halldórsson
fór einnig með okkur og var hann sá eini, sem
hafði farið á bát inn eftir Hofsá, en það hafði
hann aðeins farið einu sinni.
Þegar að árósnum kom, leist okkur ekki
meira en svo á að fara inn í hann, því straumur
106