Strandapósturinn - 01.06.1993, Blaðsíða 26
hans stað keyptur bátur og gerður út frá Suðurnesjum. I árslok
var því tómlegt um að litast í höfninni á Hólmavík. Þar voru aðeins
eftir Sæbjörg ST-7, Ásbjörg ST-9, Ásdís ST-37, Hilmir ST-1 og
Donna IS, auk smábáta og Hólmadrangs.
Á árinu 1993 voru í fyrsta sinn gerðar tilraunir með veiðar á
ígulkerum við fjörur Strandamanna. Sett var upp ígulkeraverk-
smiðja á Hvammstanga, og menn þaðan reyndu eitthvað fyrir sér
með veiðar í vestanverðum flóanum. Þá stundaði einn bátur frá
Drangsnesi þessar veiðar síðari hluta ársins. Igulkerin reyndust
allvel í vinnslu, en veiðisvæðin voru rnjög lítil og afmörkuð. Líkur
eru á að eitthvert framhald verði á ígulkeraveiðum á þessu svæði,
og hefur m.a. verið rætt um að setja upp einhvers konar hálf-
vinnslu á þessari auðlind.
Meira- um atvinnumál
Á árinu gekkst Héraðsnefnd Strandasýslu fyrir átaki um efl-
ingu atvinnulífs á Ströndum. Auk héraðsnefndar stóðu að þessu
átaki Búnaðarsamband Strandamanna, Kvenfélagasamband
Strandasýslu og Ferðamálafélag Strandasýslu, en verkefnisstjóri
var Karl Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri Hagfélagsins hf. í
Vestur-Húnavatnssýslu. I lok apríl var verkefnið kynnt með fund-
um á nokkrum stöðum í sýslunni. Á þessum fundum kom fram
aragrúi hugmynda, og í framhaldinu voru stofnaðir verkefna-
hópar til að vinna úr einstökum flokkum hugmynda. Mestur
áhugi reyndist vera á hvers konar handverki og heimilisiðnaði, og
var unnið af miklum krafti að þeim málum það sem eftir var
ársins. M.a. voru haldnir markaðir með heimagerðum vörum í
Brú, á Hólmavík og í Árnesi. Af öðrurn verkefnum má helst nefna
athuganir á bleikjueldi, en í árslok var slíkt eldi kornið á stað í
Ásmundarnesi í Bjarnarfírði. Loks má nefna sérstakan starfshóp
sem skipaður var til að gera tillögur um varðveislu og notkun
Riis-hússins á Borðeyri. Stefnt er að því að gera húsið upp í
upprunalegri mynd og setja þar upp vinnustofur fyrir handverks-
fólk ásamt sýningaraðstöðu. Einnig hefur verið rætt um að inn-
rétta listamannsíbúð í húsinu.
Eftir gjaldþrot Kaupfélags Strandamanna tók Kaupfélag
24