Strandapósturinn - 01.06.1993, Blaðsíða 42
hann krappan þegar norðaustanbylur skall á með brunafrosti og
haugasjó. Við slíkar aðstæður hlaut landtakan að vera hættuleg
vegna boða og blindskerja langt undan ströndinni, enda töldu þá
flestir skárri kost að halda sjó og liggja af sér veðrið heldur en leita
lands. Það var formaðurinn, sem tók ákvarðanir í þessu efni eins
og svo mörgu öðru, og oft reyndi til hlítar á ratvísi þeirra og réttar
fyrirskipanir, enda var engum trúað fyrir hákarlaskipi nema af-
burða sjómönnum. Formennirnir á Gjögri höfðu flestir áttæring
til umráða. En stærstu áraskipin voru teinæringar, þ.e.a.s. á þeirn
gátu 10 menn setið undir árum og voru það „sjóborgir" þeirra
tírna. Ekki þótti við hæfi að gera út minni skip en sexæringa til að
stunda hákarlaveiðar frá Gjögri.
Þegar á allt er litið verður varla annað sagt en að farsæld hafi
lengst af fylgt þessari veiðistöð. Auðvitað bar stöku sinnum við, að
menn lentu í hrakningum eða urðu fyrir óhöppum. En um stór
áföll eða átakanleg sjóslys var sem betur fór ekki að ræða nema í
eitt skipti. Það var þegar Helluskipið fórst á Húnaflóa fyrir réttum
hundrað árum. Sá hörmulegi atburður var það reiðarslag fyrir
byggðarlagið, sem batt enda á hákarlaútgerðina frá Gjögri að
mestu leyti.2>
í byrjun aprílmánaðar árið 1894 lágu 5 hákarlaskip úti á Gjög-
ursmiðum. Eitt þeirra, Reykjanesskipið, var úr heimabyggðinni
undir stjórn Jóns bónda Jörundssonar á Reykjanesi. Annað skip
var einnig úr Árneshreppi, áttæringurinn Ófeigur.s> Formaður á
honum var Guðmundur Pétursson bóndi í Ófeigsfirði. Þriðja
skipið átti Gestur Loftsson bóndi á Eyjum og stýrði hann því
sjálfur. Sjóborgin í þessum flota var Helluskipið, sem var teinær-
ingur og í daglegu tali kallað Hellukassinn. Ungur fullhugi, dótt-
ursonur og alnafni ' I'orla Einarssonar alþingism. á Kleifum fór
með stjórn á Helluskipinu, sem var í eigu nágranna hans, Ingi-
mundar Guðmundssonar bónda á Hellu í Steingrímsfirði. Ur
2) Hákarlaveiðar voru þó stundaðar áfram frá Ófeigsfirði, Finnbogastöðum og
Kúvíkum.
3) Hann var gerður út frá Ófeigsfirði.
40
J