Strandapósturinn - 01.06.1993, Blaðsíða 13
Rúta beið okkar á flugvellinum og fórum við rakleitt að hafnar-
bakka, því taka átti ferju þaðan til Turku í Finnlandi. Við höfðum
nokkra klukkutíma til að skoða borgina, þar til ferjan færi. Flestir
gengu um gamla bæinn, elsta hluta Stokkhólms, en nokkrir fóru
og skoðuðu Vasa-safnið. Um klukkan 9 um kvöldið voru allir
komnir um borð í Amorellu og siglt var af stað. Ferjur sem þessar,
eru eins og fljótandi lúxushótel með sundlaug, sauna, nætur-
klúbbum, fríhöfn og fleiru. Siglingin gegnurn skerjagarðinn er
stórkostleg og reyndar ótrúlegt að þessi 40.000 lesta skip skuli
komast öll þessi krókóttu eyjasund, sem eru sumstaðar vart meira
en 3—4 skipsbreiddir.
Við komum til Turku kl. 8 um morguninn. Á bryggjunni beið
rútan sem var farkostur okkar um Finnland. Fyrst fórum við í
skoðunarferð um Turku. Farið var í Dómkirkjuna, sent byrjað var
að byggja á f3. öld, en á þeirn tíma var Turku höfuðborg Finn-
lands. Einnig skoðuðum við gamlan bæjarhluta sem bjargaðist frá
eldsvoða og er nú minjasafn. Eftir hádegi var lagt af stað til
Kustavi og er það 114 tíma akstur. Þar var farið að sumarhúsum
sem við gistum í tvær næstu nætur. Ekki er hægt að segja að
Kustavi sé bær eins og við eigum að venjast, heldur er þarna
nokkuð þéttbýl sveit og mikill skógur sem gerir svæðið enn óræð-
ara. Þó er þarna dálítill byggðarkjarni. Á þetta einnig við uni
Merimaasku.
Morguninn eftir, sem var sunnudagur, var vaknað snemrna og
haldið til Merimaasku. Þá slóst í för með okkur Pirkko Jokela, en
hún er menningarfulltrúi Kustavi. Hún hafði skipulagt veru okk-
ar þarna. Merimaasku er úti í skerjagarðinum og um það bil
klukkutíma akstur frá Kustavi. Þar tók á móti hópnurn bæjarstjór-
inn, Jaakko Olenius, og menningarfulltrúi Merintaasku, Hanna
Nurminen. Buðu þau hópinn velkominn. Síðan var farið og skoð-
að handverk heimamanna, sem var til sölu, og var þar handagang-
ur þónokkur við að fá sér minjagripi. Gömul og falleg tirnb-
urkirkja var skoðuð og var nú liðið að hádegi. Fórum við þá á
lítinn veitingastað og fengurn léttan hádegisverð í boði heima-
manna. Þar afhenti bæjarstjórinn kórnum fána Merimaasku. Til
baka var svo haldið til Kustavi og fólk gerði sig klárt fyrir tónleik-
11