Strandapósturinn - 01.06.1993, Blaðsíða 33
urflugvöll. Þá var reist skemma við flugvöllinn á Gjögri, og mun
þar verða aðstaða fyrir snjóruðningstæki, sjúkrabifreið ofl.
Aðrar verklegar framkvœmdir
Á árinu var gengið frá þekju og lögnum á bryggjunni á Hólma-
vík, og var heildarkostnaður við verkið um 7 milljónir króna. Þá
var unnið að frumathugun varðandi nýtingu jarðhita í Hveravík á
Selströnd.
Sveitarstjórnarmál
Miklar umræður urðu um sameiningu sveitarfélaga á árinu, en
skv. lögum sem samþykkt voru á Alþingi um vorið voru settar á
laggirnar umdæmanefndir í öllum kjördæmum, sem gera skyldu
tillögur um sameiningusveitarfélaga. Umdæmanefnd Vestíjarða
lagði til að sveitarfélögum í kjördæminu yrði fækkað í ijögur, m.a.
með því að sameina öll sveitarfélög í Strandasýslu. Haldnir voru
kynningarfundir um þessi mál um haustið, og þann 20. nóvember
var kosið um tillögur umdæmanefndanna. í Strandasýslu var
tillagan felld nteð ntiklunt ntun í Bæjarhreppi, Broddaneshreppi,
Kirkjubólshreppi og Kaldrananeshreppi, en samþykkt með
tveggja atkvæða meirihluta í Árneshreppi og nteð talsverðunt
ntun í Hólntavíkurhreppi. Ekkert varð því úr sameiningu sveitar-
félaga í sýslunni.
Eldsvoðar og slysfarir
Seint í apríl kont upp eldur í bifreið í þann mund sem hún
renndi upp að bensínstöðinni á Hólntavík. Brann bíllinn til kaldra
kola skammt frá bensíntönkunt stöðvarinnar og þótti mikil mildi
að ekki fór verr. Rúmunt sólarhring síðar valt flutningabifreið í
svonefndum Tröllkonudal rétt norðan við Hólmavík. Við þetta
lokaðist vegurinn í nokkra klukkutíma. Farntur bílsins var aðal-
lega áfengi og tóbak, sem fara átti vestur á firði, og dreifðist þessi
varningur um mela og móa. Var þessi vegarkafli eftir það kallaður
„Tobacco Road“ eftir santnefndu leikriti sem Leikfélag Hólma-
víkur sýndi unt svipað leyti.
Seint í septentber varð það hörnrulega slys á veginum rétt
31