Strandapósturinn - 01.06.1993, Blaðsíða 32
Ferðamálasamtaka Vestfjarða og fleiri aðila, en aðeins einn
Strandamaður skráði sig í námið. Þessu námi lýkur vorið 1994
með útskrift leiðsögumanna með réttindi til leiðsagnar ferða-
manna á Vestfjörðum.
Mjög litlar framkvæmdir voru í vegagerð í Strandasýslu á árinu
1993. Um haustið hófst þó vinna við vegarkafla innst í Hrútafirði
milli Fjarðarhorns og Valdasteinsstaða, en þessi kafli var orðinn
einn sá versti á leiðinni frá Reykjavík, einkum vegna mikillar
aurbleytu á vorin. Verktaki í þessu verki er V. Brynjólfsson hf. á
Skagaströnd. Verktakafyrirtækið Fylling hf. á Hólmavík hafði því
engin stór verkefni á heimaslóð á árinu, en þess í stað var unnið í
vegagerð á Hálfdáni. Reyndar átti Fylling hf. lægsta boð í tvö
útboðsverk á þeim slóðum, en heimamenn á Patreksfirði fengu
engu að síður annað verkið. Heimamenn á Bíldudal og nágrenni
luku miklu lofsorði á vinnubrögð Fyllingarmanna við vegagerð-
ina þar vestra.
Um haustið var unnið við hækkun snjóþyngsta vegarkaflans á
Steingrímsfjarðarheiði, og sá Fylling hf. einnig um það verk.
Lagt var bundið slitlag á vegarkafla sem lagður var á síðasta ári
frá Fellabökum að Grjótá og einnig á eldri vegarkafla í Staðardal.
Byggingar
Mun minna var um byggingarframkvæmdir en árið áður. Lok-
ið var við byggingu nokkurra íbúðarhúsa á Hólmavík, en ekki var
byrjað á neinum nýjum húsum. A Drangsnesi var reistur skóla-
stjórabústaður og tekinn í notkun urn haustið. Þá var reist nýtt
íbúðarhús að Þorpurn í Kirkjubólshreppi, en þetta hús er sérstætt
að því leyti, að nær allur viður í því er fenginn af rekanum og
unninn heima fyrir.
Enn var unnið af fullum krafti við nýja félagsheimilið á Hólma-
vík, og um haustið var hluti hússins tekinn í notkun, m.a. til
íþróttakennslu. Með tilkomu hússins hefur orðið bylting í íþrótta-
og félagsaðstöðu Hólmvíkinga.
Síðsumars var tekið í notkun nýtt flugstöðvarhús við Hólmavík-
30