Strandapósturinn - 01.06.1993, Blaðsíða 27
Steingrímsfjarðar við rekstri verslunar á Norðurfirði og starf-
rækti útibú þar til ársloka. Reiknað er meðframhaldi á þeirri
starfsemi, amk. næsta árið. Seint á árinu keypti Arneshreppur
hluta af eignum Kaupfélags Strandamanna til að tryggja að
heimamenn gætu áfram haft afnot af þeim.
Söluskáli Kaupfélags Hrútflrðinga í Brú var opinn allt árið, en
undanfarin ár hefur skálanum yfirleitt verið lokað yfir vetrar-
mánuðina. Rekstur skálans gekk þokkalega og virðist hafa tekist
að auka markaðshlutdeild hans töluvert.
I heild rná segja, að árið 1993 hafi verið mikið samdráttarár á
flestum sviðum í atvinnulífi Strandamanna, líkt og annarra Is-
lendinga. Gildir það jafnt til sjávar og til sveita, í verslun, verktaka-
starfsemi osfrv.
Mannfjöldi
Þann 1. des. 1993 voru íbúar Strandasýslu 1048 skv. bráða-
birgðatölum Hagstofunnar, og hafði þá fækkað um 15 frá árinu
áður. Fólki fækkaði í öllum hreppum sýslunnar, þó rnest í Arnes-
hreppi, þar sem íbúum fækkaði úr 109 í 104.
Hlutfall kvenna á íbúaskránni í Kirkjubólshreppi náði þriðj-
ungi á árinu, og hefur ekki verið hærra í áraraðir.
íþróttir
Starfsemi Héraðssambands Strandamanna (HSS) var með
hefðbundnum hætti á árinu. A útmánuðum var Vilhelmína
Smáradóttir frá Neskaupstað ráðin dl svigskíðakennslu, og Þröst-
ur Jóhannesson frá Isafirði sá um kennslu göngumanna. Mikill
áhugi var um tíma á skíðaiðkun, og um páskana var haldið fjöl-
mennt héraðsmót í skíðaíþróttum. Keppt var í göngu frammi í
Selárdal en í alpagreinum á Drangsnesi. Þá var haldið Búnaðar-
bankamót í skíðagöngu í Selárdal sumardaginn fyrsta. Skíða-
göngumenn frá Hólmavík og nágrenni stunduðu íþrótt sína af
miklum áhuga um þetta leyti, og voru göngubraudr lagðar með
heimasmíðuðum skíðaspora frá Hirti Þ. Þórssyni á Geirmund-
arstöðum. Hluti af skíðagöngufólkinu gekk sér til skemmtunar
um Trékyllisheiði á páskadag, og einn úr hópnum, Sigfús Olafs-
25