Saga - 2017, Side 34
skatt greiðendur augljóslega ekki greiða fyrir bandarískan múr. Á
endanum höfðaði Trump samt til nægilega margra kjósenda til að
fleyta sér inn í Hvíta húsið. Ein ástæðan fyrir árangri hans var
örugglega sú að hin einfalda myndhverfing sem fólst í boðuðum
múr, sem er ætlað að skilja á milli fátæktar í suðri og velmegunar í
norðri, höfðaði til fólks sem hefur áhyggjur af ólöglegum innflytj-
endum í Bandaríkjunum — hann táknaði hina skýru línu á milli
okkar og hinna sem Þóra Lísebet kallaði eftir í athugasemd sinni á
bloggsíðu Magnúsar Þórs Hafsteinssonar.
En getum við dregið slíkar línur nú á tímum, þegar allir virðast
vera á ferð heimshornanna á milli? Eins og pólski félags fræð ingur -
inn Zygmunt Bauman benti á fyrir nær tveimur áratugum, í bók um
afleiðingar hnattvæðingar fyrir mannkynið, er eitt helsta einkenni
nútímans að við erum öll á ferð og flugi. Fjölgun innflytjenda á
Íslandi hefur þannig ekki gerst í tómarúmi; fréttir berast jöfnum
höndum af nýjum metum í fjölda ferðamanna sem sækja Ísland
heim, af margföldun í fjölda hælisleitenda, sem koma til landsins í
leit að betra lífi, og af sívaxandi fjölda erlends verkafólks á íslensk -
um vinnumarkaði.38 Við ferðumst heimshorna á milli, bæði í eigin-
legri og óeiginlegri merkingu, skrifar Bauman, því að um leið og
samgöngur nútímans hafa auðveldað okkur að fara um langan veg
hafa nútímafjarskipti fært heiminn heim í stofuna til okkar. Rýmið
sem við lifum og hrærumst í er því skilgreint á allt annan hátt nú en
það var fyrir nokkrum áratugum; það sem áður þótti framandi og
langt í burtu er nú innan seilingar, rétt handan við hornið.
Ein áhrif þessara breytinga, bendir Bauman á, eru þau að okkur
finnst eins og öll landamæri séu að hverfa, og sú tilfinning styrkist
af því að í æ ríkari mæli hefur ferðamönnum verið gert kleift að
þeyt ast um heiminn án vegabréfsáritana og reyndar er hægt að fara
um þvera Evrópu án þess að taka vegabréfið með. Þessar breytingar
hafa þó aldrei snert mannkynið allt með sama hætti, því að á meðan
hluti þess lifir í einskonar hnattrænni staðleysu, og getur flakkað um
heiminn nokkurn veginn að vild, rekst annar hluti þess hvarvetna á
veggi og allskyns mæri og kemst því hvorki lönd né strönd, a.m.k.
ef öllum lögum og reglum er fylgt. Þeir sem tilheyra fyrri hópnum
álitamál — sagan og samtíminn32
38 Vef. Búferlaflutningar milli landa eftir kyni, löndum og ríkisfangi 1986–2016.
Hagstofan. https://hagstofa.is/talnaefni/ibuar/buferlaflutningar/milli-landa/;
Vef. Tölfræði hælismála árið 2016. Útlendingastofnun. https://utl.is/files/
Tlfri_hlismla_2016.pdf.
Saga vor 2017.qxp_Saga haust 2004 - NOTA 18.5.2017 11:01 Page 32