Strandapósturinn - 01.06.2021, Page 85
84
Borðeyrarfélagið starfaði í sjö ár eða til 1877 að starfsemi þess lagðist af
og við tók kaupmannsverslun sem réð allri verslun á Borðeyri til ársins
1886 að Verslunarfélag Dalamanna var stofnað í Hjarðarholti 23. júlí
1886. Torfi Bjarnason í Ólafsdal var forkólfur að stofnun félagsins og
fyrsti formaður þess.
Verslunarfélagið starfaði alla tíð sem pöntunarfélag, en rak aldrei fasta
verslun. Verslunarfélagið flutti út lifandi sauði og annað geldfé, hross, ull
og fleira, keypti erlenda vöru fyrir hluta fjárins, en skilaði afgangnum í
formi peninga til bændanna, sem stóðu að útflutningnum. Þessi verslun
skipti bændur á verslunarsvæðinu mjög miklu og virkaði raunar eins og
vítamínsprauta inn í samfélagið, sem hafði varla séð peninga fram að þessu.
Auk Dalasýslu náði félagið yfir Austur-Barðastrandarsýslu vestur í
Gufudalssveit, Strandasýslu, Vestur-Húnavatnssýslu austur í Þverárhrepp,
um Snæfellsnes norðanvert og suður í Miklaholtshrepp.
Verslunarfélag Dalasýslu starfaði í um 20 ár og upp úr því urðu kaup-
félögin á þessu svæði til.
Fróðleiksmolar um Verslunarfélag Dalamanna
„Verzlunarfélag Dalamanna“ var stofnað 188611, annað pöntunarfélagið
sem stofnað var hér á landi. Fyrstu 10 ár félagsins frá 1886—1895
flutti það inn vörur fyrir 47.600 krónur að meðaltali á ári og auk þess
16 þúsund krónur í peningum ár hvert. Árið 1903 flutti það inn vörur
fyrir 19.800 krónur. Öll árin, frá 1886—1903, hefir félagið flutt inn
vörur fyrir 816.300 krónur og auk þess 177.000 krónur í peningum.
Varan er talin hér og annars staðar með félagsverði. Varasjóður og
kaupfélagssjóður var talinn árið 1903, nálægt 14.000 kr.“12
11 Dagblaðið Vísir 28. ágúst 2000: Torfi Bjarnason, skólastjóri i Ólafsdal fæddist 28. ágúst
1838. Hann var sonur Bjarna Bjarnasonar í Bessatungu og k.h., Ingibjargar Guðmundsdóttur
frá Tindum á Skarðsströnd Guðmundssonar. Torfi var líklega merkasti frumkvöðull að bættum
búskaparháttum hér á landi á 19. öldinni og mikill athafna- og hugsjónamaður. Hann fór til
Skotlands, var þar fimm misseri að læra jarðyrkju og skrifaði þá þaðan bréf um búskapar- og
landshætti í Ný félagsrit. Þá fór hann tvívegis til Bretlands og allt til Nebraska i Bandaríkjun
um til að huga að landskostum. Torfi setti bú að Varmalæk í Borgarfirði 1868 og í Ólafsdal
í Dölum 1971 en þar bjó hann til æviloka. Torfi stofnaði skóla í Ólafsdal fyrir bændasyni og
hélt þar uppi skólastarfi þar til bændaskólum var komið á stofn. Auk þess stofnaði hann Versl-
unarfélag Dalamanna 1885 og Kaupfélag Saubæinga og var forstöðumaður hvors tveggja.
Hann setti upp tóvinnuvélar í Ólafsdal og smíðaði fjölda jarðyrkjutækja. Þá vann hann mikið
þjóðþrifaverk er hann breytti lagi ljáanna sem notaði voru hér á landi. Kona Torfa var Guðlaug
Zakaríasdóttir en meðal barna þeirra var Ingibjörg, skólastjóri Kvennaskólans á Akureyri,
Ásgeir efnafræðingur og Ragnheiður, móðir Torfa sáttasemjara og Snorra skálds.
12 Timarit.is: Búnaðarrit 2. árgangur 1906, 1. tölublað, bls. 70.