Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.2017, Blaðsíða 119

Andvari - 01.01.2017, Blaðsíða 119
118 ÁRMANN JAKOBSSON ANDVARI og bjó þar á efri árum en allra seinustu árin á Bjargi á Seltjarnarnesi. Hann andaðist þar 97 ára gamall þann 4. apríl 1952. Sigurði er jafnan lýst sem miklum útivistarmanni og gleðimanni. Hann giftist aldrei eða eignaðist börn en hafði jafnan ráðskonur.27 Í viðtali við Skúla Skúlason í Fálkanum á áttræðisafmæli sínu 22. septem- ber 1934 segir Sigurður Kristjánsson: „Það halda margir að jeg hafi grætt á Íslendingasögunum. En því fer fjarri. Hver heilvita maður ætti að sjá, að það er ekki hægt að græða á því að selja bækur á 5 aura örkina hjer á landi … Jeg hefi þá óbifanlegu sannfæringu, að eina leiðin til þess að gera sögurnar al- þjóðareign sje að selja þær nógu ódýrt – hræódýrt.“28 Nú hefði Sigurður varla endurprentað sögurnar nokkrum árum síðar ef útgáfan hefði ekki borgað sig en honum þykir greinilega mikilvægt að hamra á þessu í viðtölum. Í við- tali við Valtý Stefánsson ritstjóra í Lesbók Morgunblaðsins 23. september sama ár leggur hann áherslu á að markmiðið hafi verið það eitt að koma sögunum til almennings. Upplagið hafi enda verið 4000 eintök. Þar nefnir Sigurður einnig til Pál Briem sem helsta hvatamann verksins: „Hann var ein- hver sá besti maður sem jeg hefi kynst“.29 Þannig veitir Sigurður Páli Briem frumkvöðulsheiðurinn, ef til vill vegna menningarlegrar stöðu hans.30 Aðrir nefna Pál Briem yfirleitt ekki til þegar þeir lýsa þessu afreki Sigurðar. Hverjar eru Íslendingasögurnar? Benedikt Sveinsson samstarfsmaður Sigurðar sem síðar verður getið frek- ar segir um Íslendingasagnaútgáfuna í afmælisgrein í Vísi 23. sept. 1934: „Áður en Sigurður hóf þessa útgáfu sína, voru Íslendingasögurnar mjög tor- fengnar og flestar með öllu ófáanlegar á Íslandi.“ Í sama streng tekur Gunnar Einarsson prentsmiðjustjóri í minningargrein um Sigurð í Morgunblaðinu 19. apríl 1952 og segir hann hafa gert „íslenzku þjóðina læsa á fornrit sín“. Hér eru stór orð höfð um framlag Sigurðar en erfitt að finna tilefni til að draga þau í efa. Það er enginn vafi á að þessi útgáfa hlaut meiri útbreiðslu en fyrri Íslendingasagnaútgáfur sem höfðu þó eflaust einhverjar ratað til fjölbreytts hóps. Þær voru hins vegar hvorki jafn miklar að vöxtum né jafn auðkeyptar. En um leið átti þessi útgáfa, fyrsta heildarútgáfa sagnaflokks- ins, ríkan þátt í að móta fræðilega hefð um það hvaða sögur skyldi telja til Íslendinga sagna. Sigurður var þar vissulega í takt við helstu fræðimenn samtímans, s.s. Björn M. Ólsen og Finn Jónsson. Þeir Valdimar hafa aftur á móti eflaust meiri áhrif en nokkrir aðrir í að festa í sessi hvaða sögur telj- ist til Íslendingasagna, rétt eins og þáttaútgáfa séra Þórleifs á Skinnastað í kjölfarið (Fjörutíu Íslendinga­þættir, 1904) festi þættina í sessi.31 Ásamt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.