Andvari

Volume

Andvari - 01.01.2017, Page 123

Andvari - 01.01.2017, Page 123
122 ÁRMANN JAKOBSSON ANDVARI rakið af Sigurði, Jóni Karli Helgasyni og fleirum. Þar má ekki vanmeta áhrif prentaðra bóka og ekki síst útgáfu Sigurðar Kristjánssonar sem hann vildi koma til allrar þjóðarinnar. Þau áhrif voru ekki aðeins á hugsunarhátt og siðferði heldur líka á málfar og gerðu það að verkum að samband þjóðarinnar við fornritin var orðið mun nánara í upphafi 20. aldar en það hafði verið í upphafi 19. aldar, á dögum Rasks. Einkum á það við um sjálf- ar Íslendingasögurnar. Tengsl íslensku þjóðarinnar við Íslendingasögur voru ekki endilega órofin, þeim var beinlínis komið á að nýju og þar lék Íslendingasagnaútgáfa Sigurðar Kristjánssonar lykilhlutverk. Þar að auki hafði hið mikla framtak Sigurðar heilmikil áhrif á fræðilega umræðu með því að skilgreina flokkinn Íslendingasögur (og Íslendingaþætti) og varð þannig að einhverju leyti fyrirmynd fyrir fræðilegar útgáfur 20. aldar. Boðsbréf Sigurðar Kristjánssonar til þjóðarinnar í upphafi árs 1890 varð þannig einnig afdrifaríkt í sögu íslenskra fræða. TILVÍSANIR 1 Þessar hugmyndir komu til að mynda skýrt fram í greinum Kristínar Geirsdóttur (1908– 2005) sem voru viðbrögð við nýlegum kenningum ýmissa fræðimanna, s.s. Sveinbjarnar Rafnssonar (sjá einkum Kristín Geirsdóttir, „Fáein alþýðleg orð,“ Skírnir 153 (1979), 5–41). Kristín teflir þar fram viðhorfum til sagnanna úr sinni bernsku sem fulltrúum fornra viðhorfa til sagnanna og þannig verður hennar eigin fortíð hálfgerð þjóðarfortíð, hennar eigin nálægu forfeður fulltrúar þjóðveldisaldar. Þó að Kristín tali bæði sem full- trúi algengra viðhorfa og sem alþýðukonan andspænis fræðimönnunum hefur hún talsvert vald á ræðulist og þannig má gera ráð fyrir að hún geri sér að einhverju leyti grein fyrir eigin goðsagnasköpun en telur hana þó jákvæða og mikilvæga. Nánari greining á þessari orðræðu er að finna í þessari grein: Ármann Jakobsson, „Aðför að fortíðinni: Um hvað snýst ágreiningurinn um sannleiksgildi Landnámabókar?“ Landnáma: greinasafn, ritstj. Haraldur Bernharðsson (væntanlegt 2018). 2 Sjá einkum Jón Karl Helgason, Hetjan og höfundurinn: Brot úr íslenskri menningarsögu (Reykjavík, 1998). Jón Karl ræðir fjölþætt viðhorf til fornsagnanna og mikilvægi þeirra en beinir einkum sjónum að umskiptunum frá því að hefja söguhetjur sagnanna til vegs og virðingar (fyrri hl. 20. aldar) til þess að einblína á höfunda sagnanna sem hinar nýju eigin- legu þjóðhetjur (síðari hl. 20. aldar. Meðal annars styðst hann við svör Íslendinga sem voru fæddir 1850–1900 við spurningum danska kennarans Holger Kjær á þriðja áratug 20. aldar og síðan svör fólks sem fætt er 1900–30 við spurningum þjóðháttadeildar Þjóðminjasafns árið 1994. Það er einkum fyrri hópurinn sem hefur stundum verið talinn dæmigerður fyrir Íslendinga fyrri alda en sú saga sem hér er sögð gæti bent til þess að hann sé fyrst og fremst dæmigerður fyrir sinn tíma. 3 Miklar rannsóknir eru núna unnar á 19. aldar máli og má þar nefna rannsóknarverkefnið Íslenskt mál á 19. öld sem Ásta Svavarsdóttir hefur leitt seinustu árin. Sbr. einnig Kjartan G. Ottósson, Íslensk málhreinsun: Sögulegt yfirlit (Reykjavík, 1990). 4 Sjá einkum Matthew J. Driscoll, The Unwashed Children of Eve: the Production, Dissemination and Reception of Popular Literature in Post­reformation Iceland (Enfield
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.