Fréttablaðið - 02.12.2022, Síða 92
Vorrúllur með hangikjöti
Þennan rétt er tilvalið að gera
úr afgöngum eins og oft er sett í
tartalettur. Í réttinn þarf
Hangikjöt, eldað
Kaldan uppstúf
Grænar baunir
Kúmen
Sjávarsalt
Vorrúlludeig
Egg
Mjólk
Blandið saman smátt söxuðu
elduðu hangikjöti, uppstúf og
grænum baunum, gott er að rífa
smá múskat aukalega út í.
Penslið vorrúlludeig með egg-
mjólkurblöndu (eitt egg á móti
100 ml mjólk), fyllið það svo
eftir hentugleik og rúllið upp
þétt. Þetta er svo penslað aftur
með egg-mjólkurblöndunni og
kryddað með kúmeni og sjávar-
salti. Setjið næst á bökunar-
pappír og bakið í 200°C heitum
ofni á blæstri í um 12 mínútur
eða þar til gullinbrúnt. Berið
fram strax.
www.lindesign.is
Gjöf
sem
gleður
Eyjapeyinn Gísli Matthías
Auðunsson hefur glatt
munn og maga Íslendinga
í árafjöld. Hér gefur hann
tvær uppskriftir að íslensk-
um jólamat í nýstárlegum
búningi.
thordisg@frettabladid.is
„Ég alveg hreint elska mandarínur
fyrir jólin og frá því ég var lítill
peyi hef ég haft alveg óskaplega
gaman af því að baka smákökur í
massavís. Það mun ég klárlega gera
með mínum börnum á aðventunni
nú,“ segir Vestmannaeyingurinn,
faðirinn og matreiðslumaðurinn
Gísli Matthías Auðunsson.
Gísli sagði nýverið skilið við sinn
rómaða veitingastað Skál í Reykja-
vík og rekur nú veitingahúsið
Slippinn í Vestmannaeyjum, sem
hann hefur gert ásamt fjölskyldu
sinni í áratug, en á árinu opnaði
hann líka nýjan stað í Eyjum sem
ber nafnið Næs og er opinn allt
árið.
„Mín kærasta jólaminning
snýst um fjölskylduna. Þegar jólin
nálgast er mér alltaf minnisstætt
hversu næs það var að hitta alla
fjölskylduna um jólin og verja
tímanum saman – spila og borða
afganga af jólaforréttinum sem
pabbi gerir alltaf fyrir aðfanga-
dagskvöld – marineraða sjávar-
rétti með bleikri sósu,“ segir Gísli
Matthías, dreyminn á svip.
Í ár verður engin undantekning
á samfundum fjölskyldunnar í
eyjunum fögru.
„Planið er að njóta samveru
með mínum nánustu í bland við
að undirbúa dýrindis Wellington-
steikur fyrir Eyjafólk og hátíð-
arnar.“
Óttist ei að breyta til í hefðum
Þegar forvitnast er um hvað sé
ómissandi svo jólin komi hjá Gísla
Matthíasi, svarar hann:
„Ég er nú ekki vanur að stressa
mig á hlutunum og finnst fátt vera
ómissandi. Á síðustu árum hef ég
þó elskað að fara í vel kæsta skötu
á Þorláksmessu og eftir hana er ég
einhvern veginn rosalega tilbúinn
í jólin.“
Uppáhaldsjólamatur Gísla
Matthíasar eru marineraðir sjávar-
réttir föður hans.
„Það er engin samkeppni þar,“
segir hann, fullur tilhlökkunar að
njóta þess lostæta veisluréttar á
jólunum.
Besta matreiðsluráð meistara-
kokksins til landsmanna fyrir
jólamatseldina er:
Heimsfriður besta jólagjöfin
Gísli Matthías Auðunsson kann á því lagið að laga dýrindis jólamat og varð ekki skotaskuld úr því að útbúa tvo
óvenjulega rétti fyrir jólablaðið. Sjálfur elskar hann mandarínur og sjávarrétti pabba síns um jól. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Ris a la mande
300 g grautargrjón
1,4 l nýmjólk
2 vanillustangir
1 msk. smjör
2 msk. sykur
1/2 sítróna, safi
250 ml rjómi
60 g flórsykur
Setjið grjón, mjólk, skafðar van-
illustangir, smjör og sykur í eldfast
mót með loki.
Bakið við 160°C í um það bil
klukkustund, eða þar til grjónin
eru elduð. Kælið.
Þegar blandan er alveg köld,
hrærið þá vel upp í blöndunni og
bætið við sítrónusafa, þeyttum
rjóma og flórsykri.
Stökkar möndlur
100 g möndluflögur
60 g flórsykur
Blandið saman möndluflögum og
flórsykri og einni matskeið af vatni
og setjið á bökunarpappír í þunnu
lagi. Bakið við 170°C í sirka 10
mínútur, eða þar til gullinbrúnt.
Blóðberg & bláberjagraníta
300 g bláber
30 g þurrkað blóðberg (má
einnig nota ferskt timían)
300 g sykur
600 ml vatn
2 sítrónur, safi
Setjið allt saman í blandara og
vinnið vel saman. Sigtið í stálfat
og setjið í frysti. Þegar blandan er
alveg frosin, notið þá gaffal til að
skrapa í krap.
„Að vera óhrædd við að breyta
til í hefðunum og prófa eitthvað
nýtt.“
Þegar Gísli Matthías ætlar að
hafa það náðugt yfir jólamynd á
aðventunni verður Home Alone
fyrir valinu.
„Og upphaldsjólalagið mitt er
Fyrirgefðu að ég rotaði þig um
jólin, með Tvíhöfða,“ segir Gísli
kátur, en hvað er efst á óskalist-
anum fyrir þessi jól?
„Besta jólagjöfin væri heimsfrið-
ur!“ segir hann og gefur lesendum
tvær spennandi uppskriftir að
gómsætum jólaréttum með nýjum
brag. n
70 FRÉTTABLAÐIÐ 2. desember 2022JÓL 2022