Fréttablaðið - 03.12.2022, Page 18

Fréttablaðið - 03.12.2022, Page 18
Foxconn-verksmiðjan í Zhengzhou framleiðir 50 til 60 prósent af öllum Iphone-vörum í heiminum. Styrkveitingar til verkefna og viðburða á málefnasviðum ráðherra haustið 2022 Matvælaráðuneytið veitir styrki til verkefna og viðburða á málefnasviðum matvælaráðherra. Ekki eru veittir styrkir til ríkisstofnana eða sveitarfélaga einstaklinga, rekstrarstyrkir, ferðastyrkir, styrkir til nefndar- setu eða styrkir til BA/BS, eða meistaraprófa. Þá eru ekki veittir styrkir til bæjarhátíða. Við úthlutun er m.a. horft hvort verkefnin þyki hafa gildi fyrir starfsemi viðkomandi málaflokks, hvort verkefnið búi yfir sérstöðu eða nýnæmi og hvort markmið og mælikvarðar séu skýrir. Frekari upplýsingar um styrkhæfi, mat á umsóknum og viðmið við úthlutum má finna í úthlutunarreglum. Hver einstakur styrkur getur numið allt að 10% heildar- upphæð úthlutana. Heildarupphæð sem ráðherra hefur til ráðstöfunar haustið 2022 er 10.000.000 kr. Umsóknarfrestur er til miðnættis 16. desember 2022. Ráðuneytið mun ekki taka til umfjöllunar umsóknir sem berast utan auglýsts tímafrest eða sem berast eftir öðrum leiðum en í gegnum eyðublaðavef Stjórnarráðsins. Til að umsókn verði tekin gild skulu henni fylgja þær upp- lýsingar og gögn sem óskað er eftir á umsóknarvef. Óska má eftir nánari upplýsingum um styrkina gegnum netfangið mar@mar.is Stjórnarráð Íslands Matvælaráðuneytið © GRAPHIC NEWS *Netpantanir fyrir iPhone 14 Pro Space Black 128GB á fullu verði, án AppleCare í mismunandi Apple verslunum víðs vegar um heiminn. Heimildir: Reuters, Bloomberg, Apple Mynd: Getty Sóttvarnareglur og mótmæli verkamanna hindra framleiðslu. Ástralía og Nýja-Sjáland eru einu löndin sem ná að fá nýjar seningar af símunum fyrir jól. BIÐTÍMI EFTIR IPHONE 14 PRO EFTIR LÖNDUM (miðað við pöntun 30. nóv. 2022)* Bandaríkin Kanada Þýskaland Bretland Frakkland Ítalía Spánn Holland Portúgal Kína Japan Ástralía Nýja-Sjáland 1. des. 1. jan.25. des. 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 1 2 3 4 5 6 7 30 dagar 28 30 34 30 38 33 30 33 36 36 22 22 Peking Sjanghaí Hong Kong Zhengzhou K í n a Hversu lengi þarf ég að bíða e¯ir nýjum iPhone? iPhone-sendingar nást ekki fyrir jól Þeir sem voru að vonast e¯ir því að fá nýjan iPhone 14 Pro í jólagjöf þurfa að bíða aðeins lengur. Sendingum seinkar um nokkrar vikur sökum ástandsins í Foxconn-verksmiðjunni í Zhengzhou í Kína. Miklar tafir eru á sendingum á nýjum iPhone-símum sökum skertrar framleiðslugetu í Kína. Um tíu til fimmtán millj- ón færri símar verða afhentir fyrir jól. Raftækjaverslanir á Íslandi hafa fundið fyrir skorti en segja hann einungis gilda um iPhone-síma. helgisteinar@frettabladid.is VERLSUN Fyrirtækið Apple hefur glímt við miklar tafir á vörusend- ingum í kjölfar sóttvarnareglna og mótmælaöldunnar í Kína seinustu daga. Samkvæmt markaðsgreiningu Counterpoint Research var meðal- biðtími í nóvember eftir nýjum iPhone 14 Pro 37 dagar. Í saman- burði var biðtími eftir iPhone 13 Pro í kringum 15 dagar. Meðalbiðtími eftir nýjum iPhone 14 Pro síma fyrir hátíðirnar er nú kominn í fimm vikur. Margir við- skiptavinir sem panta sér símann í gegnum netverslanir Apple munu þar með ekki fá símana sína afhenta fyrr en um miðjan janúar. Upprunaleg áætlun verksmiðj- unnar á fjórða ársfjórðungi var að afhenda í kringum 80 til 85 millj- ónir iPhone-síma en sökum núver- andi ástands mun sú tala að öllum líkindum lækka niður í 70 til 75 milljónir. Raftækjaframleiðandinn Fox- conn setur saman alla iPhone-síma fyrir Apple og er aðalverksmiðja þeirra staðsett í Zhengzhou í Kína. Í verksmiðjunni starfa 200 þúsund manns og framleiðir hún um 50 til 60 prósent af öllum iPhone-vörum í heiminum. Harðar sóttvarna- aðgerðir og núllstefna kínverskra yfirvalda í baráttunni við Covid- 19 síðastliðna mánuði hefur haft mikil áhrif á framleiðslugetu verk- smiðjunnar. Mótmæli brutust einnig út í síð- ustu viku í verksmiðjunni en mót- mæli hafa verið áberandi í Kína undanfarna daga. Í myndböndum sem dreift var á samfélagsmiðlum mátti sjá verkamenn kvarta yfir lágum launum og hreinlætisað- stöðu á vinnustað. K í nver sk i r r í k i s f jöl m iðla r greindu frá því að verksmiðjan hefði nýlega ráðið 100 þúsund starfsmenn en margir verkamenn f lúðu verksmiðjuna þegar henni var skyndilega lokað í október eftir að upp komst um Covid-smit. Yfir- menn reyndu að halda sem flestum starfsmönnum og lofuðu meðal annars að fjórfalda bónusgreiðslur verkamanna. Arinbjörn Hauksson, markaðs- stjóri Elko, segir að raftækjaversl- unin fái sendingar af iPhone 14 símum fyrir jólin, en líklegast ekki í því magni sem pantað var. Ekki var búið að staðfesta ástæðuna fyrir skortinum frá birgja en hann telur að ástandið í Kína sé líkleg skýring. „Við erum almennt ekki að upp- lifa neinn skort á raftækjum og erum vel birg fyrir jólaverslunina. Þrátt fyrir að birgðastaðan af iPhone-símum sé ekki alveg í takt við pantanir þá erum við með fínar birgðir af öðrum Apple-vörum og þar á meðal AirPods,“ segir Arin- björn. n Færri munu fá iPhone í jólagjöf bth@frettabladid.is MENNING Lára Sóley Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands (SÍ), segir að hlutfall fastráðinna hljóðfæraleikara af erlendu bergi brotinna sé 29 prósent. „Stór hluti þeirra hefur búið hér á landi í tugi ára. Sumir hverjir eru íslenskir ríkisborgarar,“ segir Lára Sóley í svari til Fréttablaðsins. Fastráðnir í hljómsveitinni eru frá 13 þjóðlöndum. Hljóðfæraleikarar hvaðanæva úr heiminum geta sótt um störf sem losna hjá hljómsveit- inni. Þegar fyrsta ráðningarferli fer af stað um ákveðna stöðu er staðan þó aðeins auglýst í íslenskum miðlum. Prufuspil skiptast í nokkrar umferðir. Fyrsta umferð fer alltaf fram bak við tjald þannig að þar hefur dómnefndin, sem skipuð er hljóðfæraleikurum SÍ, ekki vitneskju um hvern þau eru að hlusta á. „Það er svolítið mismunandi eftir hljóðfærum hversu margar umsókn- ir berast um hverja stöðu en oft eru það milli tuttugu og þrjátíu manns sem mæta til prufuspils.“ Þótt gögn liggi ekki fyrir um hve hratt erlendum hljóðfæraleikurum hefur fjölgað má ætla að hlutfallið hafi aldrei verið hærra. Lára Sóley segist meta þennan liðsauka mikils. „Tónlistarfólk af erlendu bergi brotið hefur svo sannarlega auðgað íslenskt tónlistarlíf frá upphafi. Það er óskaplega dýrmætt að njóta starfs- krafta listamanna sem koma alls staðar að,“ segir Lára Sóley. Á starfsárinu 2020–2021 voru 93 stöðugildi hjá stofnuninni. Að auki hafði hljómsveitin um 82 lausráðna hljóðfæraleikara á starfsárinu. Um 55 prósent starfsmanna eru konur og 45 prósent karlar. Framlag ríkisins til hljómsveitarinnar í ár er 1.212,6 milljónir króna, sem eru 82 prósent á móti 18 prósenta framlagi Reykjavíkurborgar. Áætla má að sinfónían hafi að minnsta kosti úr einum og hálfum milljarði að spila ef horft er til heildartekna. „Hljómsveitin stendur frábærlega að vígi og er í sífelldri framþróun, nú undir listrænni stjórn okkar frábæra aðalhljómsveitarstjóra, Evu Ollika- inen,“ segir Lára Sóley. n Útlendum fjölgar ört í sinfóníunni Framkvæmdastjóri Sinfóníunnar segir hana standa vel að vígi. MYND AÐSEND 18 Fréttir 3. desember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.