Fréttablaðið - 03.12.2022, Page 20
Barack Obama,
fyrrverandi
forseti Banda-
ríkjanna, mætti
til Atlanta í
Georgíu, til að
taka þátt í kosn-
ingabaráttu
samflokks-
manns síns úr
Demókrata-
flokknum, Rap-
hael Warnock,
sem heyr nú
harða baráttu
við Repúblikan-
ann Herschel
Walker um sæti
í öldungadeild
Bandaríkja-
þings.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Meðlimir samtaka sem fylgjandi eru banni gegn fóstureyðingum villtu á sér heimildir og blönduðu
sér inn í raðir fólks sem mótmælti banninu framan við Hæstarétt Bandaríkjanna. Bar þessi hópur
spjöld með grænum yfirbreiðslum sem þau síðan sviptu af til að koma boðskap sínum á framfæri.
Vilhjálmur krónprins Breta og Katrín Middleton, eiginkona hans, eru í þriggja daga heimsókn í
Boston í Bandaríkjunum. Þar hittu þau fyrir lítinn dreng sem var klæddur eins og konunglegur
varðliði.
Strætisvagnabílstjórar í London eru ósáttir við vaktafyrirkomulag sem þeir
telja ósanngjarnt og efndu þeir til mótmælastöðu við Walworth Abellio.
Sýningarstjóri á sýningu í Dorset á Englandi, sem helguð eru börnum sem uxu úr grasi á 9. áratugnum, framan við BMX-
reiðhjólabásinn. Á sýningunni má til dæmis sjá muni tengda Betamax-myndbandstækninni, Dirty Dancing-myndinni
og Donkey Kong-tölvuspilinu. „Við lofum að þessi sýning er mikil, björt og hávær,“ segir sýningarstjórinn Lucy Jonston.
20 Fréttir 3. desember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐÁSTAND HEIMSINS FRÉTTABLAÐIÐ 3. desember 2022 LAUGARDAGUR