Fréttablaðið - 03.12.2022, Page 57
RE
KT
OR
LH
Í
Helstu verkefni og ábyrgð:
– Stjórnun háskólans, stefnu mótun
og nýsköpun.
– Daglegur rekstur og áætlanagerð.
– Þróun háskólastarfs á grundvelli
laga og reglugerða.
– Tryggja að starfsemi háskólans
sé í samræmi við hlutverk, markmið
og gæðakröfur.
– Samskipti við nemendur, starfsfólk,
stjórn, stjórnvöld og aðra samstarfsaðila.
– Samningagerð og eftirfylgni
með samningum.
– Ráðning faglegra stjórnenda
háskólans í samráði við stjórn.
Hæfniskröfur:
– Skýr fagleg sýn á þróun og framtíð
Listaháskóla Íslands.
– Víðtæk þekking á rannsóknum,
starfi háskóla og staðgóð þekking
á listum og skapandi greinum.
– Reynsla á einhverju af fagsviðum
Listaháskóla Íslands er kostur.
– Farsæl reynsla af stjórnun og teymisvinnu.
– Framúrskarandi leiðtoga- og
samskiptahæfni.
– Reynsla af að leiða vinnu við stefnumótun,
nýsköpun og breytingastjórnun.
– Framsækni í vinnubrögðum og
metnaður til að ná árangri í starfi.
– Þekking og reynsla af opinberri
stjórnsýslu er kostur.
– Góð hæfni til að miðla efni í töluðu
og rituðu máli.
– Hreint orðspor.
Listaháskóli Íslands er miðstöð æðri
listmenntunar á Íslandi og hefur fengið
viðurkenningu stjórnvalda á fræðasviði lista.
Nánari upplýsingar má finna á www.lhi.is.
Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá, kynningar-
bréf og skilmerkileg greinargerð sem lýsir
sýn umsækjanda á þróun listnáms og listrann-
sókna háskólans í alþjóðlegu samhengi.
Sótt er um starfið á www.hagvangur.is.
Umsóknarfrestur er til
15. janúar 2023.
Nánari upplýsingar veitir Geirlaug
Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.is.
Embætti rektors Listaháskóla
Íslands er laust til umsóknar
LEITAÐ ER AÐ FRAMSÝNUM LEIÐTOGA
MEÐ BRENNANDI ÁHUGA Á LISTUM,
SKAPANDI GREINUM OG MENNTAMÁLUM