Rökkur - 01.06.1931, Page 39

Rökkur - 01.06.1931, Page 39
ROKKUR 133 kvæma ósvífni i látbragði. Þetta hlyti að enda illa, og' einn góð- an veðurdag, þegar minst varði, mundi nýtt óhappaverk verða framið i þorpinu. Bæjarstjórinn fekk í lið xneð sér helstu mennina í nágrenn- inu til þess að stilla til friðar milli piltanna og revna að sætta fjölskyldurnar. Og presturinn, sem var vinsæll maðtir og hniginn á efri ár, gekk á milli heimilanna og ráðlagði þeim að gleyma gömlunx mótgerð- um. í þrjátíu ár hafði hatrið á milli Casporra -og Rabosa-ætt- arinnar verið áhyggjuefni íbú- anna i Camponar. í þessu bros- andi smáþorpi, sem stóð á bökkum árinnar rétt við borg- arhliðið í Valencia og virtist eins og einblína þangað með kringlóttu gluggunum í topp- mjóa klukkuturninum — þar hötuðust þessir villimenn með afríkanskri langrækni og sýndu af sér sama ofstopann og beift- ina og italskar höfðingjaættir á miðöldunum. 1 fyrstu hafði verið gott vinfengi milli þeirra. Húsin þcirra stóðu sitt við livora gö!u, en alidýragarðarn- ir þeirra lágu saman og var lágt þyrnigerði í milli. Svo var ]>að eitt kveld út af ágreiningi með vatnsveituna, að einn Casporra skaut annan soninn hans Ra- bosa gamla til bana úti á akrin- um. En yngri bróðir hins myrta vidli ekki láta ásannast, að í fjölskyldu sinni væri enginn karlmaður til að koma fram hefndum, hann sat því um morðingjann og tókst, að mán- uði liðnum að senda honum kúlu gegnum ennisbeinið milli augnanna. Upp frá þvi lifðu fjölskyldurnar fyrir það eitt að uppræta livor aðra, hugsuðu meira um að nota sér liverja óvarkárni náungans en að yrkja jörðina. Á miðri götunni send- ust þær á byssuskotum, og jxað var ekki sjaldgæft, þegar dimma tók á kveldin og erfða- óvinurinn var á leið heim af akrinum, að skotglömpum brá fyrir inst innan lir áveituskurð- unum, að baki reyrgarða eða hóla. Altaf öðru livoru [xurfti að fara með einn Rabosa eða Casporra til kirkjugarðsins sundurtættan af blýkúlum. En ekki sloknaði hefndarþorstinn, heldur magnaðist hann þegar nýja kvnslóðin komst á legg, því að þao virtist svo á báðum heimilunum, að börnin fæddust með þeim ósköpum að vilja handleika byssur og drepa ná- grannana. Eftir þrjátíu ára stríð, var ckki annað fólk uppistandandi i Casporrahúsinu en ekkja og þrír unglingar, svnir hennar.

x

Rökkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.