Rökkur - 01.06.1931, Qupperneq 69
R O K K U R
163
haft hagnað af því. Eg mátti mín
einskis. Eg er óbreyttur alþýðumað-
Ur> sem ekki hefi gert nokkrum
nianni ilt. Og eg —“
»Þú segir, að til hafi staðið, að
gera þig að skipstjóra á Pharaon?“
,,Já, eg hafði fengið loforð yfir-
hoðara míns fyrir þvi.“
„Og þú ætlaðir innan skamms að
ganga að eiga unga og fallega
stúlku?“
„Já, það er satt.“
„Hugsaðu þig nú um. Gæti ekki
hugsast, að einhverir hafi viljað
koma í veg fyrir þetta tvent, annað-
hvort að þú yrðir skipstjóri, eða að
þú gengir að eiga stúlkuna — eða
hvorttveggja. Athugaðu fyrst, hvort
ekki hafi verið einhver, sem lék
hugur á að fá skipstjórastöðuna?"
„Það féll vel á með mér og öðr-
um skipsmönnum. Eg er sannfærð-
ur um, að ef hásetarnir hefði mátt
greiða atkvæði um, hver skyldi
verða skipstjóri, þá hefði þeir flest-
ir eða allir greitt atkvæði með mér.
Að vísu var einn maður, sem eg
held að hafi borið andúð í brjósti
til mín. Við höfðum deilt, og eg
hafði skorað á hann að berjast við
mig, en hann neitaði að verða við
þeirri áskorun minni.“
„Sjáum til! Okkur er að miða á-
fi'am. Og hvað hét þessi maður?“
„Danglars.“
„Hvaða störfum gegndi hann á
skipinu?“
„Hann var farmstjóri.“
„Ef þú hefðir verið gerður að
skipstjóra, mundir þú þá hafa látið
hann halda þessum starfa sínum?“
„Ekki ef eg hefði verið einráður
uni það, því eg tók margsinnis eftir
hví, að hann var ónákvæmur í
veikningsfærslu sinni.“
„Nú, sjáum til, sjáum til! Segðu
Jeanette MacDonald,
amerísk kvikmyndaleikkona, sem nú
fer mikið frægðarorð af.
mér nú, var nokkur viðstaddur, þeg-
ar þú áttir seinast tal við I.eclere
kaptein ?“
„Nei, við vorum einir.“
„Getur ekki hugsast, að einhver
hafi heyrt það, sem ykkur fór þá
á milli.“
„Það er ekki óhugsandi, því að
káetudyrnar stóðu opnar. Ríðum við,
— nú man eg, Danglars gekk ein-
mitt fyrir dyrnar í þeim svifum, er
Leclere afhenti mér pakkann til
marskálksins.“
„Grunaði mig ekki,“ sagði ábót-
inn. „Nú erum við komnir á rétta
slóð. Tókstu nokkurn með þér, er
þú rerir á land á Elbu?“
„Nei, engan“
„Einhver þar afhenti þér bréf.“
„Já, marskálkurinn.“
11*