Rökkur - 01.06.1931, Page 44

Rökkur - 01.06.1931, Page 44
138 R 0 Ií K U R gæddur. Hann var kominn und- ir áttrætt, hefði orðið 79 ára þ. 12. janúar, en læknar segja, að hjarta lians hafi verið öflugt og viljaþrekið óbilandi. I hartnær tvo sólarhringa áður en hann lést var hann meðvitundarlaus. Joseph Jacques Césaire .Toffre var fæddur 12. janúar 1852 í Rivesaltes í Pyrenneafjöllum og var beykissonur. Er sagt, að langafi hans bafi lieitið Gouffre og verið spánverskur stjórn- málamaður, sem neyddist til að flýja frá Spáni. Lengra verður ætt Joffre, beykissonarins, sem stöðvaði framrás Þjóðverja við Marne 1914 — og hlaut mar- skálksnafnbót að launum — ekki rakin. Joseph átti tíu svst- kini, en foreldrar lians og syst- kini voru iðin og sparsöm, og hann var því settur til menta, enda kom snemma í Ijós, að hann var gæddur góðum náms- hæfileikum, sérstaklega var hann snemma góður reiknings- maður. Seytján ára var hann tekinn í fjöllistaskólann i Paris og var yngstur nemendanna. En þegar styrjöldin braust út á milli Prússa og Frakka, var hann kallaður í herinn og tók þátt i vörn Parisarborgar. Að styrjöldinni lokinni hclt hann áfram námi. Árið 1885 missti hann konu sína og var honum mikil eftirsjá í henni.. Gekk hann þá i nýlenduherinn, en í honum hafa flestir mestu her- foringjar Frakklands fengið þá þjálfun, sem varð þeim mest að liði siðar. Eór snemma það orð af Joffre, að hann væri maður högull, fáskiftinn og hægfara, en tryggur sem tröll og rólynd- ur. Hann tók þátt í styrjöldinni á Formosa og um þriggja ára skeið var hann aðalverkfræð- ingur setuliðsins í Hanoi í Aust- ur-Indlandi. Árið 1888 var hann kallaður til Frakklands og liafði á hendi verkfræðileg störf fvrir lierstjórnina og liækkaði smám saman í tign. Árið 1892 var hann sendur til Vestur-Afríku, til að hafa vfirumsjón með lagningu járnbrautarinnar frá Kayes til Balulabe. Frakkar voru þá að færa út kvíarnar á þessum slóðum og var þá Joffre tekinn frá járnbrautarlagning- unni og sendur til aðstoðar Bon- nier herdeildarforingja, sem átti að kúga innfædda þjóðflokka á þessum slóðum. Beið Bonnier ósigur, en Joffre rétti við hlut Frakka. Hlaut hann þá ný tign- armerki. Árið 1896 fór har.n enn til Frakklands og var nú falið að koma skiplagi á land- Varnir á Madagaskar. Voru Frakkar þá að koma sér upp flotastöð ])ar. Kyntist Joffre þar Gallieni, sem einnig varð heimsfrægur herforingi. Árið

x

Rökkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.