Rökkur - 01.06.1931, Síða 72

Rökkur - 01.06.1931, Síða 72
166 R O K K U R „Nei, nei. Hann hefði aldrei reynt ;ið gera mér mein á þennan hátt. Én eg hefði getað trúað honum til að stinga mig með rýtingi." „Sjálfsagt rétt athugað. Spánverjar hika ekki við að vega mann, ef svo ber undir. En huglausir eru þeir ékki.“ „Þar að auki,“ sagði Dantés. „Flest eða alt af því, sem gert er að um- talsefni i bréfinu, var honum ókunn- ugt um.‘‘ „Þú hafðir þá ekki gert þetta að umtalsefni við neinn.“ „Ekki við nokkurn mann.“ „Ekki einu sinni við Mercédési?“ „Nei, ekki einu sinni við hana?“ ,,[>á er það cnginn annar en Dan- glars.“ „Eg er viss um það nú,“ sagði Dantés. „Bíðum við, — þekti Danglars Fernand?“ „Nei, — jú, — nú minnist eg þess, að —“ „Áfram, áfram,“ sagði ábótinn. „Eg minnist þess nú, að eg sá þá sitja í laufskálagarði Pére Pamphile kvöldið áður en veislan fór fram. Þeir voru mikið að stinga saman nefjum. Danglars virtist glettinn á svip, en Fernand var fölur sem nár og æstur mjög.“ „Voru þeir einir?“ „Nei, þriðji maður var þar, mað- ur, sem eg þekti vel, en sem eg vissi ekki til að væri þeim kunn- ugur. Maður þessi var klæðskeri að iðn, Caderousse að nafni. Hann var allmikið undir áhrifum víns. — Far- ia! Faria!“ Ábótanum varð þegar tjóst, að Dantés hafði minst einhvers, sem honum hafði áður verið fallið úr minni. Hann beið þess, að Dantés jafnaði sig. „Það er undarlegt,“ hélt Dantés áfram í lágum rómi, en hann gat vart dulið hve æstur hann var, „að eg skuli aldrei hafa munað eftir því, en það stendur mér nú svo ljóslif- andi fyrir hugskotssjónum. Það var pappír, blekbytta og pennaskaft á borðinu. Ó, livilík fúlmenni!“ Dantés bar hönd að enni sér. „Get eg orðið þér frekar til að- stoðar í þessu?“ spurði ábótinn og var sigurhreimur i röddinni. „Já, já,“ sagði Dantés áfjáður. „Þú ert fróður maður og reyndur og at- hugull. Þér sést ekki yfir neitt, all- ar gátur getur ]>ú ráðið. Hjálpaðu mér til þess að grafast fyrir allan sannleika i þessu máli. Segðu mér, hvers vegna var eg ekki yfirheyrð- ur aftur, þvi var eg ekki leiddur fyrir rétt og því var eg settur í fang- elsi, án þess að dómur væri feld- ur í máli mínu?“ „Það er miklu flóknara fram úr þessu að ráða,“ sagði ábótinn. „Veg- ir réttvísinnar eru oft undarlegir. Það er erfitt að þræða þá. Það, sem við höfum nú fengist við, var barna- leikur. F.f þú æskir aðstoðar minnar til þess að komast að hinu sanna í þessu máli, þá verðurðu að veita mér sem allra nákvæmastar upplýs- ingar i öllum einstökum atriðum.“ „Það mun eg gera glöðu geði. Spurðu mig spjörunum úr, ábóti góður, því sannarlega þekkir þú líf mitt betur en eg sjálfur." „Seg mér þá, hver yfirheyrði þig?“ „Konungsfulltrúinn.“ „Var hann ungur eða gamall?“ „Eg gæti trúað, að hann hefði þá verið tuttugu og sjö eða tuttpgu og átta ára gamall.“ „Einmitt það,“ svaraði ábótinn, „fráleitt farinn að spillast, en orð-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Rökkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.