Bændablaðið - 01.12.2022, Blaðsíða 14
14 Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2022
FRÉTTIR
Kæli- og frystiklefar í öllum
stærðum og gerðum
Margar gerðir af
vélbúnaði fyrir
kæli- og frystiklefa
Mikið úrval af hillum
Járnháls 2 - 110 Reykjavík
Sími 440 - 1800
www.kaelitaekni.is
Kælitækni er leiðandi í sölu
og uppsetningu á kerfum með
náttúrlegum kælimiðlum
Fjármunir til frekari
þróunar á smáforriti
– Nýsköpunarfyrirtækið HorseDay lýkur 100 milljón króna hlutafjáraukningu
Íslenska nýsköpunarfyrirtækið
HorseDay rekur samnefnt
smáforrit um flest allt sem
viðkemur hestamennsku og íslenska
hestinum.
Það var stofnað árið 2020
en nýlega lauk fyrirtækið við
hlutafjáraukningu upp á 100 milljónir
og ætlar að nota fjármunina til að
setja enn meiri kraft í vöruþróun og
útbreiðslu á smáforritinu. Um 800
manns nota forritið vikulega í dag,
en áætlað er að um 300 þúsund manna
hestasamfélag sé í kringum íslenska
hestinn víðs vegar um heiminn.
Með auknu hlutafé verður nú lögð
áhersla á að ná til hestamanna sem
eiga íslenska hestinn, hér á Íslandi
og erlendis, og í framhaldinu verður
þróun smáforritsins fyrir önnur
hestakyn skoðuð. Nýsköpunarsjóður
leiddi hlutafjárútboðið með þátttöku
nokkurra einkafjárfesta.
Auðveldar marga þætti
hestamennskunnar
Forritið er sérsniðið að þörfum
hestafólks og býður upp á fjölbreytta
möguleika sem auðveldar fólki
utanumhald og markmiðssetningu
varðandi þjálfun, umhirðu og ýmislegt
annað varðandi hestahaldið.
Hjá HorseDay starfa sex
starfsmenn en nú liggur fyrir að þeim
mun fjölga á næstunni. Meðal annarra
möguleika sem forritið býður upp á er
betri yfirsýn yfir þjálfun, greiningu
gangtegunda með aðstoð tauganets
og möguleikum snjallsímans. Þá getur
notandinn einnig leitað í gagnagrunni
WorldFengs, byggt upp „prófíla“
söluhesta og tengst öðrum notendum
með samskiptamöguleikum.
Hrossarækt í Ölfusi
Fyrirtækið var stofnað árið
2020 af Oddi Ólafssyni, sem er
framkvæmdastjóri, Mörtu Rut
Ólafsdóttur og Ólafi H. Einarssyni,
sem hafa reynslu bæði af þróun og
uppbyggingu hugbúnaðar og eru
hestafólk.
Oddur er alinn upp á Hvoli í Ölfusi.
„Þar ráku foreldrar mínir hestabú í allt
að 30 ár en ég stundaði hestamennsku
af miklum krafti fram til 18 ára aldurs.
Á því tímabili var ég virkur í öllu sem
tengdist því að rækta, temja og þjálfa
hross. Var virkur á keppnisbrautinni og
var þar í fremstu röð í keppni allt upp
í ungmennaflokk. Í kringum 18 ára
aldurinn flutti ég svo til Bandaríkjanna
til að spila körfubolta og mennta mig
á framhalds- og háskólastigi. Ég er
menntaður viðskiptafræðingur frá
Háskólanum í Reykjavík og með
meistaragráðu í stjórnun frá EADA
viðskiptaháskólanum í Barcelona.
Ég starfaði sem vörustjóri hjá
Íslandsbanka þar sem ég hafði umsjón
með stafrænni þróun áður en ég færði
mig alveg yfir í HorseDay í lok árs
2021,“ segir hann.
Oddur segir að hugmyndin að
smáforritinu hafi fæðist í hesthúsi,
út frá eigin upplifun á hestahaldinu.
„Okkur hefur lengi fundist vöntun
á tóli sem heldur utan um, geymir
og miðlar gögnum um þjálfun og
umhirðu hrossa. Við eigum mikið af
gögnum um ræktun, mótaárangur,
dómasögur og annað sem geymdar
eru í WorldFeng en lítið sem ekkert
um þjálfun, hvernig tamning og
þjálfun hefur áhrif á hross. Það
er ákveðið gat í gagnasöfnun á
æviskeiði hestsins og hingað til
höfum við ekki haft tækin og tól til
þess að geta safnað þessum gögnum
saman á skipulagðan hátt þannig
að mögulegt sé að rýna í þau, setja
fram á skilmerkilegan hátt og geyma
notandanum til gagns og gamans.
Það breytist með HorseDay, sem er
hannað af hestafólki, fyrir hestafólk
með það í huga að bæta upplifun þess
á að stunda hestamennsku, stuðla að
aukinni velferð hestsins og á sama
tíma auka virði hans.“ /smh
Matvælaþing:
Samvinna
möguleg
Á Matvælaþingi matvæla-
ráðuneytisins í Hörpu 22.
nóvember flutti gestafyrirlesarinn
Pete Ritchie frá samtökunum
Nourish Scotland erindi um
matvælaframleiðslu Skota og
svaraði spurningum gesta um
samanburð og mögulega samvinnu
Skota og Íslendinga til framtíðar
í matvælaframleiðslu. Telur hann
möguleikana einkum felast í þróun
kornræktar til manneldis.
Dagskrá þingsins hófst með
því að Svandís Svavarsdóttir
matvælaráðherra kynnti drögin
en að svo búnu var Pete Ritchie,
framkvæmdastjóri samtakanna
Nourish Scotland, boðinn
velkominn á svið til að varpa ljósi á
matvælaframleiðslu Skota – og bera
saman við þá íslensku.
Markmið samtakanna Nourish
Scotland er að tryggja aðgang
allra að næringarríkum mat á
viðráðanlegu verði. Einnig að
framleiðsla og dreifing matvæla
sé unnin af umhyggju fyrir
jarðvegi, loftslagi og lífríkinu
og að matvælaframleiðendur,
dreifingaraðilar og neytendur deili
yfirráðum yfir matvælakerfinu.
Samtökin leggja áherslu á að Skotar
rækti meira af því sem þeir borða, og
borði meira af því sem þeir rækta.
Áherslur á sauðfjár- og
nautgriparækt
Í máli Ritchie kom fram að Skotar,
líkt og Íslendingar, leggja talsverða
áherslu á sauðfjár- og nautgriparækt.
En öfugt við Íslendinga stunda þeir
einnig öfluga kornrækt – aðallega
til að standa straum af víðfrægri
viskíframleiðslu sinni. Aðeins 15
prósent Skotlands er hins vegar
ræktanlegt landbúnaðarland.
Stöðug mjólkurframleiðsla hefur
verið í Skotlandi á undanförnum
árum, en sauðfé fækkar þar eins
og á Íslandi. Kjúklingaeldi og
svínarækt er í austurhlutanum –
en sú framleiðsla stendur engan
veginn undir neyslu Skota á
þessum matvörum. Kjúklingaeldi
hefur dregist saman en svínarækt
aukist. Eggjaframleiðsla er um allt
Skotland.
Þá eru Skotar fiskveiðiþjóð, auk
þess sem fiskeldi er þar vaxandi
atvinnugrein.
Skotar fjarri fæðuöryggi
Helstu áskoranir Skota varðandi
matvæli og matvælaframleiðslu,
eru að mati Ritchie almennt slæmt
mataræði þjóðarinnar – sem stafi
af ódýrari, óhollum matvælum á
matvælamarkaði – og sú staðreynd
að þjóðin er fjarri því að búa við
fæðuöryggi. Þá hafi jarðnæði í
Skotlandi safnast á æ færri hendur,
en verið sé að vinna í því að snúa
þeirri þróun við og liðka fyrir
nýliðun í landbúnaði.
Það sé í raun liður í nýrri
landbúnaðarstefnu Skota, þar sem
uppleggið er að auðvelda skoskum
bændum að auka innlendan hlut í
fæðuframboðinu.
Ritchie fékk allnokkrar spurningar
frá gestum þingsins, sem snertu
samanburð og mögulega samvinnu
Skota og Íslendinga til framtíðar í
matvælaframleiðslu. Hann telur að
Íslendingar og Skotar eigi samleið
í ýmsum málefnum. Sérstaklega
nefndi hann mögulega samlegð
þjóðanna í þróun kornræktar til
manneldis. Þar sem Íslendingar búa
yfir talsverðu landsvæði til akuryrkju
og Skotar eiga öfluga frumkvöðla á
sviði kornræktar, mætti hugsa sér
samvinnu á þeim grunni.
Hægt væri að setja upp tilrauna-
reiti og skala upp – þar sem hentug
kornyrki yrðu þróuð til að þola kalt
og blautt loftslag beggja landa.
Ósjálfbærni sjókvíaeldis
Þá mælti hann gegn laxeldi í
sjókvíum fyrir bæði lönd – vegna
þess að slíkt geti seint talist
vera sjálfbær eða umhverfisvæn
matvælaframleiðsla – og frekar með
landeldi þar sem möguleikar væru
til dæmis á endurnýtingu dýrmætra
næringarefna frá eldinu. /smh
Pete Ritchie frá Nourish Scotland flytur erindi á Matvælaþinginu.
Mynd / Gunnar Vigfússon
Oddur handsalar samstarfssamning við Hólmfríði Sveinsdóttur, rektor
Háskólans á Hólum, um notkun á forritinu við hestafræðideild skólans.