Bændablaðið - 01.12.2022, Page 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2022
LÍF&STARF
Svíaríki er talið með stöðugri
löndum í heiminum í dag. Ekki
bara í efnahagslegu tilliti heldur
einnig jarðfræðilegu. Til marks
um það voru frá miðri 14. öld og
fram til ársins 2010 einungis 14
jarðskjálftar skráðir á Skáni í
Suður-Svíþjóð.
Einn af þessum 14 var sá
langsamlega stærsti í áratugi
og mældist 4,7 á Richter í
desember árið 2008. Það væri í
sjálfu sér óáhugaverð staðreynd
ef ekki væri fyrir Skælv,
handverksbjórinn frá litlu
sveitabrugghúsi á Íslandi sem
kom á markað á Skáni nokkrum
dögum áður.
22. júlí 2007 birtist í
Morgunblaðinu atvinnu
auglýsing þar sem óskað
var eftir bruggmeistara til
starfa fyrir nýtt brugghús
sem verið væri að setja upp
og ætlaði að sérhæfa sig í
fyrsta flokks sælkerabjór.
Brugghúsið var staðsett um
70 km frá Reykjavík, austur
í Flóa og nefndist Ölvisholt.
Varð fljótt stór útflytjandi
Brugghúsið var hugarfóstur
bændanna af svæðinu, Bjarna
Einarssonar, eggjabónda
frá Miklaholtshelli og Jóns
Elíasar Gunnlaugssonar,
garðyrkjubónda í Ölvisholti. Í
Ölvisholti stóðu ónotaðar byggingar
sem að Jón fýsti að nota undir
einhverja skemmtilega starfsemi
og niðurstaðan varð sú að breyta
gömlu fjósi, súrheysturni og hlöðu
í sveitabrugghús.
Ungur bruggmeistari, Valgeir
Valgeirsson, svaraði auglýsingunni
og tók skömmu síðar við störfum.
Gerður var samningur við danskan
tækjasala og brugghús sem hét
Gourmet Bryggeri og fylgdi
með í kaupunum samningur
um útflutning og dreifingu
bjórsins sem fyrirhugað
var að framleiða. Ljóst
var því frá stofnun
Ölvisholts að stefnt var
á fleiri markaði en bara
þann íslenska, enda varð
brugghúsið fljótlega
stærsti útflytjandinn á
bjór og hélt þeirri stöðu
um sinn.
Stóð af sér skjálfta
En hvað um það.
Ölvisholt kom með
sinn fyrsta bjór,
fyrsta bruggunin var í
desember 2007 og frumraunin
– Skjálfti – kom í Vínbúðirnar á
bjórdaginn 1. mars 2008. Segja
má að bjórinn hafi fljótlega náð
miklum vinsældum enda Ölvisholt
einungis annað íslenska brugghúsið
utan risanna tveggja, Ölgerðarinnar
og Víking, til að koma með bjór í
vínbúðina. Nafnið þótti hnyttið og
átti að halda formlegt opnunarhóf
Ölvisholts síðar um vorið, nánar
tiltekið laugardaginn 31. maí 2008.
Tveimur dögum áður reið hins vegar
yfir stóri Suðurlandsskjálftinn 2008
sem mældist 6,5 á Richter, en raunar
var um tvo skjálfta að ræða, sem
fundust allt norður á Ísafjörð, slíkur
var hamagangurinn.
Þrátt fyrir talsvert rask, sem
leiddi jafnvel til skepnufalls á bæjum
í grenndinni, stóð brugghúsið af sér
skjálftana og Ölvisholt var formlega
vígt með pomp og prakt, þar sem
þekktasti sonur nágrannabæjarins
Brúnastaða flutti hátíðarávarp, eins
og Guðna Ágústssyni er einum lagið.
Sterkasti stoutinn
Ölvisholt er um margt merkilegt
brugghús, enda verið duglegt við
að kynna Íslendinga fyrir nýjum
bjórstílum. Skjálfti er maltaður
lager sem minnir um margt á
California Comonsbjórstílinn.
Þessi stíll er gerjaður við hærra
hitastig en almennt gerist og gengur
með lagerbjór. Þetta brugghús var
líka fyrsta brugghúsið til að koma
með yfirgerjað öl á markaðinn, en
Móri var fyrsta íslenska ölið sem
fór í sölu. Þá bruggaði brugghúsið
Fósturlandsins Freyju, sem var fyrsti
íslenski hveitibjórinn, kryddaður
með appelsínuberki og kóríander,
í ætt við belgískan wit bjór sem
stundum er kallaður White ale, og
kom þó nokkuð á undan Einstök
White Ale, sem flestir tengja stílinn
við. Ekki gekk þessi tilraunastarfsemi
þó áfallalaust. Freyja var ósíaður
bjór, eins og skilmerkilega var
tekið fram á flöskunni, en slíku áttu
íslenskir neytendur ekki að venjast
og kvörtuðu unnvörpum yfir því
að hann væri „gruggugur“ eða
„skítugur“.
En frægasta afrek Ölvisholts
á sviði bjórsins er án efa bjórinn
Lava, reyktur imperial stoutbjór
sem má með góðum rökum segja
einn frægasta íslenska bjórinn utan
landsteinanna.
Sagan á bak við Lava er
eins og á bak við allar sögur af
meistaraverkum, saga tilviljana og
þess að vera á réttum stað á réttum
tíma. Valgeir bruggmeistari hafði
lengi alið með sér þann draum að
koma með alvöru stout á markaðinn
en mátti þola að sjá Akureyringa
skjóta honum ref fyrir rass með
Víking Stout sem kom á markað
um þessar mundir og féll í góðan
jarðveg. En úr því að Valgeir gat ekki
bruggað fyrsta íslenska stoutinn gat
hann þó gert þann sterkasta!
Lögun úr ansi fábreytilegum
tilraunagræjum af frumgerð
Lava skilaði sér fyrir tilviljun á
bjórhátíð í Danaveldi þar sem
forsvarsmenn Ölvisholts voru að
leita viðskiptasambanda. Þegar
bragðprófanir stóðu sem hæst
bárust fréttir af því að sænski
dreifingaraðilinn Wicked Wine vildi
hitta Íslendingana að máli. Var þá
rétt búið að opna síðustu flöskuna,
en með snörum handtökum tókst að
troða tappanum aftur ofan í hana og
kynna framleiðsluna sem nýjustu
afurð brugghússins unga. Skemmst
er frá því að segja að þetta var sá bjór
sem Svíunum leist best á og fyrr en
varði var Lava bjórinn orðin stærsta
útflutningsvara Íslands í bjór. Lava
bjórinn hefur hlotið ýmis verðlaun
og ber þar kannski hæst að nefna US
open Beer competition en árið 2012
fékk Lava verðlaun fyrir besta reykta
bjórinn á sýningunni það árið.
Hráefni eftir vigt
En Ölvisholt var ekki bara ákveðinn
frumkvöðull í bjórnum heldur var
Valgeir líka fyrstur til að byrja að selja
korn eftir vigt. Fram að því höfðu
einungis örfáir heimabruggarar
stundað það að brugga bjór með
korni, meðan aðrir höfðu látið sér að
góðu þykkni sem selt var í Ámunni.
Metnaðarfullir heimabruggarar áttu
það jafnvel til að nýta ferðalög til
að burðast heim með tugi kílóa af
korni ásamt tilheyrandi yfirvigt.
Með lausasölu á korni beint frá
Ölvisholtsbrugghúsinu hljóp kapp
í heimabruggsenuna og árið 2010
var Fágun, félag áhugafólks um
gerjun, stofnað og þann 1. maí 2010
var haldin Bruggkeppni Ölvisholts
og Fágunar.
En rekstur Ölvisholts hefur ekki
alltaf verið dans á rósum. Umhverfi
litlu brugghúsanna á Íslandi hefur
ávallt verið flókið en þetta brugghús
var stofnað rétt áður en hamfarir
efnahagshrunsins haustið 2008
dundu yfir. Vissulega hóf brugghúsið
reksturinn með útflutningi en eigi
að síður var fjármögnunin í formi
erlendra mynta og varla þarf að
eyða mörgum línum í það hvernig
áraði með slíkan rekstur á þeim
árum. Tíðar breytingar hafa verið á
eignarhaldinu og því hafa sömuleiðis
fylgt breytingar á bruggmeisturum.
Valgeir Valgeirsson hélt til Borgar
Brugghús og svo til Reykjavíkur
bruggfélags. Eigendur stýrðu
sjálfir brugghúsinu til skamms
tíma eftir að Valgeir lét af störfum
en fljótlega kom þar brosmildur
ungur Breiðhyltingur, Árni Long
að nafni, sem átti síðar eftir að
fylgja forvera sínum yfir til Borgar
brugghúss. Við af Árna tók hinn
geðþekki bruggmeistari Elvar
Þrastarson, sem seinna stofnaði
Ölverk brugghúsið í Hveragerði
og síðar verður fjallað um. Þá tók
Ásta Hlöðversdóttir við og varð þar
með fyrsti kvenbruggmeistarinn til
að stýra miðlungsstóru brugghúsi á
Íslandi og nú loks hefur sagan farið
í hring og Valgeir er tekinn við aftur
sem bruggmeistari í Ölvisholti.
Þrátt fyrir hina öru starfsmanna
veltu er Ölvisholt stórmerkilegt
brugghús að mörgu leyti. Eins og
í síðustu grein var talað um Kalda
áhrifin á markað má einnig segja að
Ölvisholt hafi ítrekað brotið blað í
bjórsögunni. Ölvisholt kom kannski
ekki heimabruggsbylgjunni af stað
en ljóst má vera að viljinn til að selja
hráefni eftir vigt og eftirspurnin
eftir þeirri vöru hafi verið slík að
brugghúsið lenti nánast í vanda að
framleiða eigin vörur, slíkur var
ágangurinn.
Handverksbrugghúsin á Íslandi:
Sveitasælan sem hristi markaðinn
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
stalogstansar.is
VARAHLUTIR Í
KERRUR
2012
2021
Starfsmenn Ölvisholts fagna vígslu Brugghússins 2008: Frá vinstri:
Jón Elías Gunnlaugsson, Ingveldur Birgisdóttir, Valgeir Valgeirsson
bruggmeistari og Bjarni Einarsson. Mynd Frjáls verslun.
Bruggmeistarar Ölvisholts í gegnum tíðina, Elvar, Árni, Valgeir og Ásta,
sambrugguðu ÖlvisholtX bjórinn af tilefni 10 ára afmælis Brugghússins.
Höskuldur og
Stefán
hoskuldur@bondi.is
Jón Elías með vörur fyrirtækisins.
Mynd Frjáls verslun.