Bændablaðið - 01.12.2022, Blaðsíða 39

Bændablaðið - 01.12.2022, Blaðsíða 39
39Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2022 Flói bernsku minnar: Tvímennt í hverju rúmi Guðni Ágústsson ólst upp í Flóanum upp úr miðri síðustu öld í sextán systkina hópi og með annan fótinn í fornum tíma. Í bókinni Guðni – Flói bernsku minnar sest hann upp í bíl og býður lesandanum í ferð á vit æskustöðvanna í fortíð og nútíð. Guðni segir að í bókinni sé að finna sögu sveitanna og sögu sveitarinnar þar sem hann ólst upp í sjötíu ár og saga fólksins. „Í bókinni segi ég frá því merkilega fólki sem gerði Ísland að því sem það er í dag. Þarna er að finna karaktera sem eru fram úr hófi merkilegir og kunnu að svara fyrir sig. Sögur af mörgum litríkum persónum og atburðum.“ Guðjón Ragnar Jónsson skrásetur sögurnar eftir Guðna, sem segir að sér sé tamt að tala og segja sögur. Saga fólksins í sveitinni „Það koma margar persónur fram í bókinni og þar á meðal Bobby Fischer sem ég tel orðið sveitunga minn, enda liggur hann í kirkjugarði sveitarinnar. Sjálfur lít ég á bókina sem bók sveitamanna og tel að hver sá sem les sögurnar muni þekkja marga karakterana úr sinni sveit. Fólkið sem sagt er frá var hvorki menntað né langskólagengið og í mesta lagi fengið kennslu í farskóla og barnaskóla en þrátt fyrir það gríðarlega öflugir einstaklingar sem til eru skemmtilegar sögur af.“ Huldukonan á Brúnastöðum Bókin segir einnig frá lífinu á Brúnastöðum, æskuheimili Guðna. „Ég segi mikið frá móður minni sem var kölluð huldukonan en það hefur ekki verið gert áður. Faðir minn var þingmaður og áberandi en móðir mín lítið fyrir sviðsljósið og það fór lítið fyrir henni á mannamótum. Hún átti sextán börn á tuttugu og einu ári og mikill skörungur á sinn hægláta hátt. Í bókinni er að finna teikningu Sigmund, sem teiknaði lengi skopmyndir fyrir Morgunblaðið, af æskuheimili mínu, 70 fermetra, þar sem tvímennt er í hverju rúmi.“ Lifandi lýsingar Í frásögnum Guðna má greina einlægni og jafnvel söknuð eftir veröld sem var, þegar hugur var í mönnum og sveitirnar að styrkjast en á sama tíma er glettnin aldrei langt undan. Í bókinni, sem er bæði fróðleg og skemmtileg lesning, er að finna sögur af föngum af Litla-Hrauni sem sluppu út, af skemmtilegum atburðum og mönnum eins og Kristni í Halakoti og Sigga á Neistastöðum. /VH Guðni Ágústson með Snata og nýju bókina. Mynd / Aðsend Gamli bærinn á Brúnastöðum sem var sjötíu fermetrar. Tvímennt var í öllum rúmum og foreldrarnir sváfu með yngstu börnin. KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10 104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is LOFTPRESSUR Í HÆSTA GÆÐAFLOKKI Gerðu kröfur - hafðu samband við Gunnar í síma 590 5135 og kynntu þér þína möguleika. Við bjóðum upp á allar stærðir og gerðir af Ingersoll Rand loftpressum. Mjög hjóðlátar og einfaldar í viðhaldi. Bjóðum upp á þjónustusamninga og leggjum mikla áherslu á að veita góða viðgerðar- og varahlutaþjónustu. Nútíma landbúnaður krefst mikils vélakosts. Gæðasmurefni skipta öllu máli fyrir virkni og endingu véla. Olís veitir ráðgjöf um olíu- og smurefnanotkun fyrir allar landbúnaðarvélar. Ráðgjafar Olís veita allar nánari upplýsingar í síma 515 1100 eða pontun@olis.is. Svo allt gangi smurt í vetur Talsett Vinnuvélanámskeið á netinu Vélaskólinn www.velaskolinn.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.