Bændablaðið - 01.12.2022, Qupperneq 40

Bændablaðið - 01.12.2022, Qupperneq 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2022 LÍF&STARF Sigrún Pétursdóttir sigrunpeturs@bondi.is Félag trérennismiða: Tuttugu og sjö ára rennsli Í iðnaðarhverfi Hafnarfjarðar, nánar tiltekið í Dalshrauninu, má finna félagsskap nokkurra listamanna. Trérennismiða auk meistara útskurðar sem saman mynda skemmtilegan hóp eldri borgara undir nafninu Snúið og skorið. Örn Ragnarsson, formaður Félags trérennismiða á Íslandi, tekur við orðinu og fræðir lesendur um starfsemi Félags trérennismiða auk þess að kynna blaðamann fyrir hópnum í Dalshrauninu sem samanstendur af alls fjórtán skráðum félögum. „Ég sá fram á að ég myndi eldast. Það var í rauninni kveikjan að því að ég ákvað að ganga til liðs við þessa höfðingja í Félagi trérennismiða. Svo ég hefði eitthvað að gera þegar ég myndi hætta störfum. Síðustu 13 ár rak ég fatasöfnun Rauða krossins, en þar á undan sinnti ég kennslu í 32 ár, lengst af austur á Eiðum. Nú, ég datt niður á rennismíðina og hingað kem ég helst á hverjum degi. Líka um helgar og á aðfangadag segir hann glottandi. Mislengi auðvitað, en það sem er mikilvægast er félagsskapurinn enda byrjum við daginn á kaffisopa. Ferill minn hérna hófst reyndar á því að ég byrjaði að læra útskurð og komst inn í hópinn sem slíkur. Svo fékk ég að prófa rennibekk og komst að því að það er miklu meiri aksjón! Enda á ég núna tvo bekki sjálfur.“ Rennismiðir á faraldsfæti Örn var settur formaður Félags trérennismiða Íslands nú í vor eftir tíu ár sem félagsmaður og tekur hann brýn málefni metnaðarfullum og föstum tökum. Eins og fram kemur í fréttabréfi félagsins frá í maí ákvað hann, meðal annars, að endurvekja starf frumkvöðla nokkurra er kynntu rennismíði á handverks- og bæjarhátíðum fyrr á árum – undir kjörorðunum: „Við rennum við“ og öfluðu með því framtaki fjölda nýrra félaga. Aðspurður tekur Örn undir upplýsingar fréttabréfsins og segir að eitt sinna hugðarefna sem formaður sé að kynna rennismíðina fyrir landsbyggðinni. „Þann 31. mars sl. lögðum við Brynjólfur og Ebenezer, félagar mínir, land undir fót og héldum af stað í fyrstu kynningarferð Félags trérennismiða á Íslandi á landsvísu. Við heimsóttum bæði Akureyri og Hvammstanga, sýndum glærur er vörðuðu félagið og starfsemina. Einnig renndi ég litla skál og jólatré svona til að sýna áhugasömum hvernig þetta fer nú fram – auk þess sem farið var lítillega yfir mismunandi brýnslu og mikilvægi þess að halda sig við ákveðið kerfi. Við Ebbi (Ebenezer) héldum svo í svipaða ferð aftur núna í september til þess að kynna félagið frekar og trérennslið sem tómstundagaman. Fórum um nánast allt Austurland, alls með fimm kynningar þar sem aðsóknin var afar góð, eða tæp 80 manns. Svo aftur á Akureyri, Hvammstanga, Ólafsvík og Stykkishólm. Þetta hefur borið ávöxt, við bættust þó nokkrir félagsmenn auk þess, til dæmis á Hvammstanga, er eldri borgara félagið að koma upp aðstöðu með rennibekkjum, tveimur eða þremur. Eldri borgara félagið á Egilsstöðum er að sama skapi með ágætis smíðaaðstöðu og eiga tvo rennibekki eins og staðan er núna. Töluverður áhugi virðist vera í fólkinu þannig ég sé fyrir mér að renna á þessa staði og halda námskeið við tækifæri. Taka þá með 1-2 rennibekki,“ segir Örn. Þegar handverkshjartað slær „Þó ég nefni hérna eldri borgara aðallega þá er þetta ekki síður fyrir þá sem yngri eru. Gaman er að segja frá náunga, búsettum á Írlandi, þar sem rík hefð er fyrir rennismíðinni, en hann byrjaði í þessu 16 ára og er nú um fimmtugt. Hann er mikill snillingur enda mín aðalfyrirmynd og heitir Glenn Lucas. Við, hópurinn hérna í Snúið og skorið, fórum til hans á námskeið, fjölmenntum en svo fórum við Binni (Brynjólfur) á masterclass námskeið sem var mjög áhugavert og gaman,“ segir Örn. Austurríki, Sviss og Þýskaland eru einnig lönd þar sem menning handverks, og þá rennismíðarinnar, er gríðarlega rík og hefur Örn farið á alls fjögur námskeið í Þýskalandi. Nokkrir félagar flutu með í eitthvert skiptið, en þá lærðu þeir að gera penna. Eins og gefur að skilja er slík vinnsla afar fíngerð, og eins og hann kemst að orði þarf að eyða öllum ósiðum sem fólk hefur tekið upp með sjálfum sér. Þarna er mikill agi og nákvæmni nauðsynleg. Auðséð er að rennismíðin lætur hjarta Arnar slá örar en það sem hann er hrifnastur af að renna eru skálar. Þessa stundina er hann að renna brúðkaupsgjöf fyrir viðskiptavin, skálar úr hnotu, en þann efnivið kaupir hann erlendis frá. Hnotan er dýr þannig að ekki má gera mörg mistök. Af íslenska viðnum tekur Örn reyni fram yfir annað, hann sé jafn, mjúkur og skemmtilegur til vinnslu – á meðan grenið er síst, enda kvistótt og hart. Spænirnir fara til bónda sem setur hann undir hænurnar sínar og hesta auk þess sem afsagið er nýtt sem eldiviður í kamínu sumarbústaðar Arnar. Vistvæna hringrás því um að ræða. Annars renna þeir félagar hvað það sem þá lystir hverju sinni, en nú fyrir jólin má finna, á Jólamarkaði Skógræktarfélagsins við Elliðavatn, lítil rennd jólatré eftir þá félaga, hann og Binna. Snúið og skorið Er kemur að rými Snúið og skorið í Dalshrauninu, passar það Örn Ragnarsson, formaður Félags trérennismiða á Íslandi, fæst við handverkið helst á hverjum degi í rýminu Snúið og skorið. Hann hefur lagt áherslu á kynningu á rennismíði á handverks- og bæjarhátíðum á árinu undir kjörorðunum: Við rennum við. Myndir / SP Félagsskapurinn skiptir öllu þegar unnið er í handverki. Ebenezer Bárðarson er með hressari mönnum landsins og þó víðar væri leitað. Lítil rennd jólatré munu finnast á jólamarkaði Skógræktarfélagsins við Elliðavatn fyrir jólin. Rýmið Snúið og skorið má finna í Dalshrauni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.