Bændablaðið - 01.12.2022, Síða 43

Bændablaðið - 01.12.2022, Síða 43
43Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2022 Sífelldar breytingar Brynja segir að það sé sífellt að bætast í smádýrafánu landsins og að með auknum innflutningi á plöntum megi búast við að fjöldi meindýra á gróðri hér á landi aukist „Fyrir nokkrum árum fór til dæmis að bera á enn sem komið er ógreindri lirfu á blöðum gullregns. Líklega er um að ræða æðvængju eða tvívængju og þrátt fyrir að ekki sé búið að greina tegundina er staðferst tilfelli um hana á höfuðborgarsvæðinu og í Hveragerði.“ Sýnishorn af ranabjöllulirfu úr ungskógi. Birkikemba, Heringocrania unimaculella, fannst fyrst hér á landi sumarið 2005 og hefur breiðst hratt út síðan þá og skaði af hennar völdum aukist. Birkikembur verpa í lauf birkis snemma á vorin. Lirfan klekst út og vex inni í blaðinu og nærist á blaðholdinu. Ertuyglan, Ceramica pisi, veldur skaða á öllum trjátegundum og þola barrtré hana verr en lauftré. Lirfur ranabjöllu valda skaða með því að éta rætur ungplantnanna. Þannig geta plönturnar misst rótarfestu og þrífast illa. Tjón af völdum fururvoðvespu, Acantholyda erythrocephala, er vegna þess að lirfurnar éta barr frá vori og fram á mitt sumar. Lirfa furuvoðvespu. Ógreindur skaðvaldur á gullregni. Lirfan haustfeta, Operophtera brumata, er alæta á alls konar lauf- og barrtré. Haustfeti á furu. Hér á landi finnast nokkrar tegundir blaðlúsa sem valda litlum skaða. Skemmdir af völdum sitkalúsar, Elatobium abietinum. Öll hjólin eru með beinni innspýtingu, rafmagnstýri, spili, dráttarkrók, handahlífum, háu og lágu drifi með læsingu. Vökvabremsum, álfelgum og eru tveggja manna traktorsskráð. Verð er með Vsk. Bjóðum upp á farangursbox, bensíntanka, rúður of fleiri aukahluti á öll CFMOTO hjólin. CFMOTO 1000 2.690.000,- CFMOTO fjórhjólin fást hjá okkur CFMOTO 520 1.549.000,- CFMOTO 450 1.459.000,- Nítró - Urðarhvarfi 4 - 557 4848 Nánari upplýsingar á nitro.is

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.