Bændablaðið - 01.12.2022, Side 47

Bændablaðið - 01.12.2022, Side 47
47Bændablaðið | Fimmtudagur 1. desember 2022 IS-Hurðir 3x9 lausnir við mjólkurfóðrun lamba fyrir sauðfjárbændur sem taka lömb undan, t.d. vegna mjólkurframleiðslu, eða vegna fjölda heimalninga. Hver sem skýring er á því að mörg lömb þurfa á sérstakri mjólkurfóðrun að halda þá eru í það minnsta komnar margs konar lambafóstrur á markaðinn en þær eiga það sameiginlegt að halda mjólkinni ferskri og heitri á hverjum tíma, svo lömbin geti fengið sér sopa þegar þau vilja! Undanfarin ár hefur orðið töluverð þróun á lambafóstrum og á sýningunni voru margar ólíkar útgáfur í boði frá ýmsum framleiðendum. Sjálfvirkni við sauðfjárrag Það er meira en mjólkurfóðrun lamba sem í dag er hægt að sjálfvirknivæða á sauðfjárbúum og má þar t.d. nefna færibandagarða, þ.e. garða sem er með færiband í botninum sem þá færir fóðrið sjálfkrafa eftir garðanum og því þarf ekki að ganga með fóðrið í fanginu eftir garðanum. En það eru einnig til alls konar hjálpartæki og -tól fyrir sauðfjárrag. Fyrirtækið Te Pari kynnti m.a. á sýningunni nánast alsjálfvirkan búnað við flokkun og almenna vinnu við fé. Búnaðurinn les sjálfkrafa af eyrnamerki, heftir lömb eða ær sjálfkrafa í þar til gerðum búnaði svo unnt sé í ró og næði að t.d. holdastiga, ómmæla, snyrta klaufir eða hvað það nú er sem til stendur að gera. Eftir að búið er að gera það sem á að gera við ána eða lambið sér búnaðurinn sjálfkrafa um það að senda viðkomandi grip að flokkunarhliði sem getur sent hann í þrjá mismunandi hópa. Áhugavert tæki fyrir margar sakir! Fjarstýrð hænsnakofaopnun Þó svo að sýningin sé gríðarlega sterk þegar kemur að alifugla- og svínarækt þá verður greinarhöfundur að viðurkenna að fagþekking hans er of lítil á þessum sviðum landbúnaðar til þess að geta fjallað um nýjungar þar af einhverju viti. Hins vegar þegar kemur að hænsnarækt í smáum stíl er staðan önnur og var gaman að sjá að þrátt fyrir hina miklu fagmennsku sem ræður ríkjum í alifuglaræktinni á sýningunni þá var líka pláss fyrir áhugamannadeildina, þ.e. fyrir þá sem eru með frá nokkrum hænum og upp í nokkra tugi. Af mörgum skemmtilegum lausnum var þessi hér valin, en um er að ræða sjálfvirka opnun hænsnakofa svo eigendurnir geti hleypt hænunum út að morgni án þess að þurfa sjálfir að mæta á staðinn. Með Chickenguard getur hænsnaeigandinn fjarstýrt því hvenær kofinn er opinn eða lokaður. Undanfarin ár hefur orðið töluverð þróun á lambafóstrum og á sýningunni voru margar ólíkar útgáfur í boði frá ýmsum framleiðendum. Sjálfvirki búnaðurinn frá Te Pari er einstaklega hraðvirkur og getur numið eyrnamerki á sekúndubroti. Með Chickenguard getur hænsnaeigandinn fjarstýrt því hvenær kofinn er opinn eða lokaður. 25% AFSLÁTTUR 25% AFSLÁTTUR 15-42% kynningar- afsláttur Íslensk framleiðsla á Bílskúrs- og Iðnaðarhurðum 564-0013 | 865-1237

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.