Arkitektúr og skipulag - 01.08.1992, Page 54
nokkuð fyrir ofan miðju. Burðar-
grind er úr stáli 140x80x6,3 mm og
fyllt vatni sem ýmist nýtist til
hitunar eða kælingar. Stálgrindin
er því um leið risastór ofn. Sami
háttur er hafður á með veggi milli
geymanna, þeir ásamt hvelfingunni
eru einu ofnar hússins.
Þýska fyrirtækið Gartner sem sá um
smíði og uppsetningu á stáh
virkjunum hefur fundið upp og
þróað þessa útfærslu, en það reyndist
einnig útsjónarsamt við lausn
ýmissa vandamála sem upp komu.
I upphafi var álitið erfitt að halda
hitastigi undir glerhattinum innan
þolanlegra marka. Það hefur þó
tekist bærilega með samspili margra
þátta. Val á gleri sem dregur
verulega úr hitageislun án þess að
hindra útsýni var mikilvægur þáttur
en valið var gler frá Flachglas sem
hefur þá eiginleika að hleypa í gegn
36% af birtunni en aðeins 22% af
hitaorkunni. Að sjálfsögðu er
viðamikið loftræstikerfi í bygging-
unni. Loftræstisamstæður eru í
kjallara, en yfirþrýstingi er haldið í
húsinu, sem stjórnað er m.a. af
ventlum í toppi hvelfingarinnar.
Flvolfþakið er hægt að hreinsa og
þjónusta frá stiga sem leikur á
tveimur láréttum brautum. Fluga
þurfti að ýmsu til að tryggj a að útsýni
nyti sín, einkum eftir að skyggja
tekur.
Afþessum sökum eru þeir fletir sem
speglast í glerinu þegar horft er út
dökkir að lit og lýsing á efstu hæð
dreifðogdempuð. Undirstálburðar-
grindinni eru jafnbreiðir álstokkar
fyrir raflagnir og á hverjum sam-
skeytum lágspennupera. Undir-
strikar þetta form hvelfingarinnar
og gefur ímynd stjörnuhimins.
Y msar ráðstafanir voru gerðar til að
tryggja góðan hljómburð í húsinu.
Má þar nefna að neðstu þrjár raðir
álplatna á jarðhæð eru sígataðar
misstórum götum, einnig eru
gataðar plötur innan á opum efri
hæða og teppi er á gólfi og köntum
efstu hæðar.
Sérstakt úðunarkerfi tryggir vöxt
og viðgang suðrænna trjáa en
mikilvægt er að halda góðu rakastigi
í húsinu. Gerir þar einnig sitt gagn
gosbrunnur í kjallara. Ymislegt
varðandi lýsingu í húsinu og utan
þess var sérhannað, m.a. útiljós og
lýsing í handriðum útsýnishæðar.
Hér hefur ekki verið farið út í
vangaveltur um form hússins en
það hefur ýmsar augljósar tilvísanir.
Meginhugmyndin var að skapa
nokkurs konar heim í hnotskurn,
táknrænan fyrir mikilvægi jarð-
hitans. ■
52