Arkitektúr og skipulag - 01.08.1992, Side 63

Arkitektúr og skipulag - 01.08.1992, Side 63
EKKI FLEIRI STOFNBRAUTIR á höfuðborgar- svæöinu! NÍELS BJARKIFINSEN landfræðinemi Íverkefni sem ég vann nýverið við verkfræðideild Háskóla Islands var leitað leiða til að draga það mikið úr umferðarþunga á ofangreindu svæði að ekki þurfi næstu árin að leggja nýj ar stofnbrautir eða breikka þær sem fyrir eru. N iðurstaðan var sú að til væru ýmsar leiðir til þess að hrinda slíkri stefnu í framkvæmd ef vilji væri fyrir hendi. Settar voru fram tillögur í þessa veru í 7 flokkum í verkefninu. Fjallar hver flokkur um afmarkað svið og fara tillögurnar hér á eftir. A-BYGGÐASTEFNA Með breyttum eða auknum aðgerðum á sviði byggðastefnu má draga úr fyrirsjáanlegri fjölgun íbúa á höfuðborgarsvæðinu. Þegar athugaðir hafa verið þeir þættir er, verka sem aðdráttarafl til höfuð- borgarsvæðisins og sem fráhrind- andi þættir að því er varðar lands- byggðina, mætti reyna að draga úr þeim með stjórnvaldsaðgerðum. Með markvissri byggðastefnu þar sem aukin atvinnutækifæri og bætt þjónusta fara saman væri hægt að draga úr því að fólk á landsbyggðinni flytti til höfuðborgarsvæðisins. Þetta er í flestum tilfellum alls ekki það sem hugur fólks stendur raunverulega til, heldur neyðar- úrræði vegna þess ástands sem víða hefur skapast á landsbyggðinni. Líklega vilja flestir búa áfram á sínum stað, en félagslegar kröfur og fleiri þættir spila inn í heildarsýn fólksins og af því leiðir oft til flótta til höfuðborgarsvæðisins. B-SVÆÐISSKIPULAG Með aukinni samvinnu sveitar- félaga á höfuðborgarsvæðinu er hægt að minnka stórlega umferð á stofnbrautum. I staðinn fyrir að hvert sveitarfélag reyni að draga til sín sem flest fyrirtæki á sama svæðið mætti reyna að dreifa þeim betur um allt höfuðborgarsvæðið og tengj a fyrirtækin nokkrum kj ömum í öllum sveitarfélögunum. Koma þyrfti upp nýjum stórkjarna, t.d. frá Mjódd til Fífuhvamms. Þaðmyndi draga úr allri þeirri umferð sem núna er til og frá miðbæ Reykjavíkur. Ekki verður séð að viðunandi lausn fáist nema með stóraukinni samvinnu eða jafnvel sameiningu sveitarfélaganna á höfuðborgar- svæðinu (að hluta a.m.k.). Með áframhaldandi sérhagsmunastefnu sveitarfélagana stefnir í meiri vanda sem mun erfiðara verður að fást við í framtíðinni. C- AÐALSKIPULAG Hvert sveitarfélag fyrir sig getur gert mikið til að draga úr umferð eftir stofnbrautunum. Meðþvíaðtengja frekar byggðakjarna og tækifæri til atvinnu mætti draga verulega úr þeytingi milli borgar/bæjarhluta. Skipulag á verslun og annarri þjónustu þarf einnig að vera gott. Skólar, dagheimili, bankar, stórmarkaðir, hverfaverslanir o.fl. mega ekki vera í of mikilli fjarlægð frá íbúðarhverfum og vinnustað. Með markvissri uppbyggingu á nýjum hverfum og nýju skipulagi í þeim eldri mætti draga mikið úr umferðinni á stofnbrautunum. D- EINKABÍLAR Með auknum áróðri er hægt að koma þeirri mynd inn í huga fólks að það eigi helst ekki að nota bíla. U mhverfisþátturinn hlýtur hér eftir sem hingað til að skipta afar miklu máli í daglegu lífi manna. Það á hinn efnahagslegi líka að gera. Draga má úr bílaeign landsmanna m.a. með því að gera bíla dýrari. Það er hægt, t.d. með því að gera strangari kröfur um útbúnað til mengunarvarna. Skattaleið er líka sívinsæl aðferð í öllum aðhalds- aðgerðum. Umræðan hefur víða úti í hinum stóra heimi snúist um mengunarskatt, þ.e. að þeir sem

x

Arkitektúr og skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.