Arkitektúr og skipulag - 01.08.1992, Síða 64
menga eiga að borga skatt sem nota
á til að reyna að bæta skaðann.
Þetta gæti verið ein leið til að draga
úrnotkunbílanna. Þessimengunar-
skattur hefur að vísu ekki að mínu
viti verið lagður á bíleigendur,
heldur er hann lagður á verksmiðj ur
og atvinnustarfsemi sem ekki hefur
haft viðunandi mengunarvarnir.
E- ALMENNINGSFARARTÆKI
Með tíðari ferðum slíkra sam-
göngutækja, meiri hraða og öðrum
aðgerðum er hægt að sýna fólki
fram á það að það kemst fyrr frá A til
B með því að nota farartæki fyrir
almenning. Aukinn sparnaður
almennings, minni áhætta, betri
nýting á dýrmætum tíma o.m.fl.
ætti að sýna fólki fram á að
strætisvagnar og önnur slík
samgöngutæki hafa marga kosti
fram yfir einkabílinn.
Sér-akremar, bílastæði við stórar
biðstöðvar, betri aðstaða farþega á
biðstöðvum, öll þjónusta þar o.fl.
ætti einnig að laða fólk að og draga
úr umferðinni á stofnbrautunum.
Aukinn áróður fyrir umhverfinu
skiptir hér einnig mjög miklu máli.
Allir þessir þættir spinnast saman
við Ddið hér að ofan og mætti
jafnvel skella þeim saman, þar sem
sömu rök eiga við í báðum þessum
liðum.
F - AÐRIR FERÐAMÖGULEIKAR
Með aukinni samvinnu fólks sem
vinnur á svipuðum slóðum mætti
fækka bílum mikið í umferðinni. I
stað þess að hver sé einn í bíl sínum,
gætu menn deilt með sér sama bíl.
Fólk, sem á heima á svipuðum
slóðum og vinnur í afmörkuðu hverfi
á höfuðborgarsvæðinu og á sama
tíma, ætti auðveldlega að geta
sameinast um bíl til og ff á vinnustað.
Slík samvinna ætti að tíðkast í miklu
ríkari mæli en nú er gert.
Með bættu hjólreiða- og göngu-
stígakerfi væri kominn góður kostur
á öðrum ferðamáta. Margir gætu
gengið í vinnuna, skokkað, hjólað
eða jafnvel ekið litlum rafmagns-
bílum eftir þessum stígum.
Önnur lausn gæti verið sú að hafa
ferju í siglingum milli ákveðinna
staða þar sem það á við. Tíðni
ferða, staðsetning bryggja og sú
tenging sem yrði fyrir hendi á
viðkomustöðvum ferjanna myndi
skipta miklu máli.
Ég geri ráð fyrir að þyrluflutningar
milli bæjarhluta væru fjárhagslega
óhagkvæmir, en það má nefna
þennan kost eins og fleiri.
G - SAMSKIPTI OG FJARSKIPTI
Helsta breytingin sem ég sé í þessu
samhengi er í tengslum við aukna
tölvueign landsmanna. Meðbættu
símakerfi er hægt í mörgum tilfellum
að stunda vinnu sína á eigin heimili.
Menn gætu hringt inn í fyrirtækið
að morgni með tölvumótaldi og
unnið á tölvuna á heimili sínu.
Svona fjarvinnsla er að komast á í
æ ríkari mæli. Ljósleiðarar og
gervihnettir geta orðið enn virkari
en nú er og hjálpað okkur að
„minnka heiminn“. Fjarkennsla
með sjónvarpi, útvarpi eða tölvum
getur líka dregið úr umferðar-
þörfinni.
N iðurstöður þessa verkefnis eru þær
að ótrúlega margir möguleikar eru
fyrir hendi til að draga úr um-
ferðarþunga á stofnbrautum
höfuðborgarsvæðisins. Allir þessir
þættir (A - G) eru samofnir á ýmsa
lund. Yfirvöld ríkis og sveitarfélaga
geta með ýmsum aðgerðum
minnkað beint eða óbeint það álag
á umferðarkerfinu sem nú þegar er
orðið vandamál. Afþessumásjáað
ekki þarf endilega að leggj a nýj ar og
dýrar stofnbrautir til að leysa þann
vanda sem til staðar er núna og á
eftir að versna ef ekkert verður að
gert. ■
62