Úrval - 01.08.1945, Side 9

Úrval - 01.08.1945, Side 9
GUÐ OG FAÐIR MINN 7 minn að finna að hann hefði sjálfur nokkra galla; og bæri svo við, datt honum ekki í hug að biðja guð að fyrirgefa sér þá. Það gerði hann sjálfur. Þegar hann baðst fyrir, þegar hann og guð reyndu að talast við, var það ekki ófullkom- leiki föður míns, sem tekinn var til umræðu, heldur guðs. Faðir minn vænti sér mikils af hendi guðs. Ekki svo að skilja, að hann óskaði hjálpar hans; því síður handleiðslu hans. En guð átti stundum til — eins og við hin — að spilla fyrirætlunum hans. Faðir minn var alltaf að reyna að koma ein- hverju góðu í kring, en það urðu sífellt hindranir á vegi hans. Hann vakti athygli guðs á þessu, gremjufullur. Hann ásakaði ekki guð beinlínis fyrir getuleysi, en þegar hann baðst fyrir, var rödd hann hávær og reiðileg, eins og hjá óánægðum gestir á illa reknu hóteli. Ég sá föður minn aldrei krjúpa í auðmýkt. Þegar hann talaði við guð, lá hann venju- lega útaf í rúminu sínu. Á slíkum kvöldum barst ómur af heitingunum upp í herbergið til mín — fyrst alvöruþrungnar og lágværar, síðan háværar og ofsafengnar. Þegar stóð sem hæst, heyrði ég hann kalla ,,ó guð?“ aftur og aftur, af vax- andi styrkleika, eins og hann væri að skipa guði að koma strax, og setjast í djúpa, græna stólinn í horninu, og hlýða á á- vítur föður míns. Og svo þegar faðir rninn fann, að guð var farinn að hlusta, rakti hann raunir sínar mæðulegri en sterkri röddu, ,,ó, guð, það er of mikið. Amen ... það er f jand- ans of mikið segi ég,... nei, nei, það þoli ég ekki. Amen.“ Svo var þögn um stund, en ef honum létti ekki, grunaði hann guð um að reyna að læðast til himnaríkis án þess að gera nokkuð, og þá heyrði ég hann hrópa í aðvörunarrómi: ,,Ö,guð! ég læt eklti bjóða mér það! A-a-men.“ Stundum heyrði ég hann hrista úr sér nokkur ofsa- fengin auka-amen, og svo lagð- ist hann til svefns, sæll og á- nægður. Móðir mín hafði oft áhyggj- ur út af hegðum föður míns í kirkjunni. I upphafi messunnar var hann venjulega ánægður og í sátt við allan heiminn. Hann hafði ekkert út á helgisiði kirkjunnar að setja — þeir voru virðulegir og hátíðlegir en um
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.