Úrval - 01.10.1952, Page 16

Úrval - 01.10.1952, Page 16
14 ÚRVAL er dánartala af völdum krabba- meins hæst, en lægst meðal egypzkra bænda og nokkurra afríkukynþátta þar sem lífskjör og heilsufar er svo bágt, að fæst- ir komast á krabbameinsaldur- inn. Þó að krabbameinið sé nú á hvers manns vörum, vegna stöð- ugs áróðurs og hvatninga til fólks um að vera í verði gegn því í tíma, eru sárafáir, iafn- vel meðal menntaðs fólks, sem geta skýrt nákvæmlega hvað krabbamein er og hvernig það veldur dauða. Margir halda jafn- vel enn, að það sé kvalafullt frá byrjun. Við skulum athuga hvað raun- verulega skeður, þegar krabba- mein byrjar að vaxa. Líkaminn (manna jafnt sem dýra) er gerð- ur úr frumum — litlum, lifandi efnisheildum — sem eru mis- munandi að lögun og stærð og gegna mismunandi hlutverkum. Húðfrumurnar eru t. d. flatar og sterkar, en beinfrumurnar geta tekið kalk úr blóðinu og gert úr því bein, frumurnar, sem þekja innan magann, gefa frá sér sýru og meltingarvökva, taugafrumurnar gefa frá sér og flytja örsmáa orkuskammta af rafstraum. Á vaxtarskeiðinu stækkar lík- aminn við það að frumurnar skipta sér og mynda nýjar sömu tegundar, og halda því áfram þangað til líkaminn og líffæri hans hafa náð fullri stærð. Þeg- ar vöxturinn hættir, stöðvast frumuskiptingin nema að svo miklu leyti sem þarf til endur- nýjunar vegna slits eða meiðsla. Sumar frumur hins fullvaxna líkama (t. d. í hluta heilans, aug- um og eyrum) geta ekki skipt sér, og geta því ekki endurnýj- ast ef þær skemmast. Krabbamein getur byrjað í öllum líkamsfrumum sem geta skipt sér. Þetta er almenn regla, en þó eru tvær merkilegar und- antekningar: augasteinninn og hornhimna augnanna. I þeim eru engar æðar og í þeim mynd- ast aldrei krabbamein. Svo kann að fara, að þessi staðreynd, sem nú er lítill gaumur gefinn og lit- ið nánast á sem skrítið fyrir- brigði, reynist mikilvæg í leit okkar að orsök krabbameinsins. Krabbamein byrjar með því að fruma skiptir sér og hinar nýju frumur einnig, án nokk- urrar sýnilegrar ástæðu. Ekki sjást nein merki bólgu eða roða og engin eymsli eða sársauki, og raunar ekkert óvenjulegt nema örlítið ber. Á þessu stigi má alltaf lækna krabbameinið með því að skera burtu berið. En ef það er ekki gert, held- ur berið áfram að vaxa, það dettur á það sár og kemst í það ígerð, það tekur að þrýsta á og hindra starfsemi einhvers þýð- ingarmikils líffæris eða þrengja að einhverri pípu, t. d. barkan- um eða vélindanu. Ef ekki er hægt að fjarlægja þessa hindr- un með skurðaðgerð, deyr sjúk- lingurinn af völdum hennar.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.