Úrval - 01.10.1952, Síða 66

Úrval - 01.10.1952, Síða 66
84 ÚRVAL og rífa út úr. Ef til vill verður sá sem fyrr kom að hrekjast burtu, en sigurvegarinn verður daglega að heyja orustu til varnar nýfengnum rétti sínum. Allt er þetta þó aðeins forleikur að hinu eiginlega sjónarspili. Það byrjar þegar fyrsta kæpan skýtur gljásléttum kollinum upp úr hvítfissandi öldufaldinum úti fyrir. „Þarna eru stelpurnar, þarna eru stelpurnar!“ hrópa briml- arnir og í einni svipan er eins og straumur fari um alla biðl- ana. Selmeyjarnar synda hæ- versklega upp að ströndinni, leika sér ástleitnar í brimlöðr- inu og synda frá landi aftur til að stríða hinum óþolinmóðu biðlmn sem reigja sig og rigsa um á blettunum sem þeir hafa helgað sér með harðri baráttu. Þegar meyjarnar hafa loks ákveðið að taka land byrjar at- gangurinn. Hver brimill flýtir sér til þeirrar næstu og reynir að lokka hana upp á blettinn til sín. Hann hrindir og stjakar og hrekur burtu aðra biðla, og loks tekst honum að reka eða lokka hana upp á blettinn sinn. En þó að svo vel takizt hefur hann lítinn tíma til að sýna henni ástarhót því að fleiri selmeyjar eru sífellt að koma á land. Brimillinn er meira fyrir magn en gæði. Hann virðist aldrei fá nóg. 1 meyjar- skemmu hans eru frá fimm og allt upp í sextíu kæpur og þær íá honum vissulega ærið að starfa. I hvert skipti sem hann skýzt nyður að fjöruborðinu eftir nýrri ástmey reynir ein- hver nágranninn að stela frá honum úr skemmunni. Ef til vill hefur einhver konan hans látið heillast af fallega hrokknum kampi eða djúpri bassarödd einhvers brimils á næstu grös- um. Hún gefur honum þá merki og tekur undir sig stökk meðan bóndinn snýr við henni bakinu. Hún eignast kannski nýtt heim- ili. Algengara er þó að hún sé rekin hranalega heim aftur og sagt að reyna þetta ekki aftur. Atganginum lýkur þegar all- ar kæpurnar eru komnar á land. Þá breytist ströndin í fæð- ingardeild. Næstum hver ein- asta kæpa elur lítinn, æpandi kóp áður en vika er liðin frá því að hún kom á land. Enda er leikurinn til þess gerður. Brimlarnir halda í sjálfbirg- ingsskap sínum að það séu kyntöfrar þeirra sem seyði þær á land. En þar skjátlast þeim. Það er móðurhvötin. Kæpan vill að barnið hennar fæðist á sömu slóðum og hún sá fyrst dagsins ljós sjálf. Hún er líka góð móðir. Hitler mundi hafa sæmt hana járnkrossinum. „Einn á ári“ er kjörorð hennar og hún gerir samvizkusamlega skyldu sína á hverju vori. En brimillinn á ekki sjö dag- ana sæla. Allt sumarið neytir hann hvorki svefns né matar. Milli þess sem hann veitir ein- hverri kommni sinni ást sína á
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.