Úrval - 01.10.1952, Side 73
NÆSTU MIUÓN ÁR.IN
71
yrðu, væri nauðsynlegt að end-
urskoða ýmsa þá spádóma sem
þegar hefur verið getið — eink-
um varðandi fólksfjölgunina.
„Það er einkum sú trú mín“,
segir Darwin, ,,að ekki sé að
vænta neinnar gagngerar breyt-
ingar á manneðlinu, sem gaf
mér kjark til að skrifa þessa
bók“.
Hann styður þessa trú sína
sterkum rökum. í fyrsta lagi
velur hann þessi miljón ár með
ákveðnar jarðfræðilegar og líf-
fræðilegar staðreyndir í huga.
Óumflýjanleg ályktun af þeim
staðreyndum er, að sköpun
nýrrar tegundar taki miljón ár.
Svo virðist sem litlu máli skipti
hve margar kynslóðir fæðast á
því tímabili; sumar tegundir
breytast örar, sumar hægar en
aðrar; en „í stórum dráttum"
á þessi regla við um þær teg-
undir sem við þekkjum — rott-
ur, skordýr, vísunda, menn o.
s. frv. Við verðum því að sætta
okkur við manninn eins og
hann er miljón ár enn.
Við gerum því ráð fyrir að
ekki komi fram nein ný tegund
af Homo sapiens. En er það á
okkar valdi að bæta það kyn
sem nú lifir á sama hátt og við
höfum kynbætt nautgripi og
maís? Erfðafræðin hvetur ekki
til bjartsýni í þeim efnum. Þeir
eiginleikar sem við teljum fé-
lagslega góða — umburðarlyndi,
samvinnuþýðleiki, heilbrigð
skynsemi — eru „áunnir eigin-
leikar“ og erfast ekki. Þeim
er miðlað frá kynslóð til
kynslóðar með borðorðum og
fordæmi, en flytjast ekki með
erf ðastofnum frumanna; að
minnsta kosti er það samhljóða
álit fræðimanna. Það er með
kynbótum hægt að fá fram góð-
ar mjólkurkýr og hveitijurt sem
er ónæm fyrir ryðsvepp. Það
kann að vera hægt að fá fram
rauðhærða menn, menn með
arnarnef eða góða stangar-
stökkvara með kynbótum. En
við vitum engin ráð til að gera
erfanlega eiginleika eins og t. d.
góðvild og heilbrigða efagirni.
Raunar er heldur ekki víst að
þeir eiginleikar myndu bæta að-
stöðu mannanna í lífsbarátt-
unni. Hægt er að valda breyt-
ingu á kynfrumunum með rönt-
gengeislum sem framkalla
stökkbreytingar. Furðulegar
breytingar hafa fengizt þannig
með tilraunum á bananaflug-
unni (Drosophila). En við renn-
um alveg blint í sjóinn með ár-
angurinn af slíkum tilraunum,.
og oftast er hann neikvæður.
Að fitla við hina örsmáu litn-
inga og erfðastofna kynfrum-
anna er sama og að ætla sér að
gera við lítið úr með því að
lemja því í gólfið; það er ekki
líklegt að aðferðin gefi þann
árangur sem óskað er eftir.
Framtíðin er þannig næsta
eyðileg. Eftir miljón ár mun
jörðin verða fátækari, tötra-
legri og þéttbýlli en nú. Mat-
vælaskortur, styrjaldir og aðr-
ar hörmungar hafa haldið fólks-