Úrval - 01.10.1955, Síða 36
34
ÚRVAL
hans, fengi tóm til að fjara
út. Síðan byrjaði hann að
klappa hnoðnagla til að ganga
úr skugga um að þeir væru
fastir. Starf hans var of mik-
ilvægt til þess að lítilræði
eins og lofthræðsla mætti hafa
ahrif á það.
Skýjakljúfurinn er sigur ancl-
ans yfir efninu í ótal myndum
þess. Hann verður t. d. að draga
sig upp á sínum eigin skóreim-
um, éf svo mætti segja. Þann
vanda leysir kraninn, sem lyftir
byggingunni stykki fyrir stykki.
Þegar gólf hefur að mestu
leyti verið lagt, reisir kran-
inn stoðir og þverbita fyrir
næstu tvær hæðir. Þegar þeim
hefur verið komið fyrir er
kraninn tekinn í sundur í tvo
hluta sína, bómu og mastur.
Bóman er síðan notuð til að
lyfta mastrinu upp á stálbita
tveim hæðum ofar. Þegar
mastrið hefur verið reist þar
dregur það upp bómuna. 1
sameiningu byrja þau svo að
lyfta efni í næstu tvær hæðir.
Afköstin eru ein hæð á tveim
dögum.
Starfsmenn byggingafélags-
ans, sem tekið hefui’ að sér
verkið, vinna eftir meira en
5000 flóknum teikningum, sem
hver um sig er á stærð við stórt
matborð. En þetta er aðeins
byrjunin. Það ei’u undir, og
undir-undir- og undir-undir-
undir-verktakár, ótal sérfræð-
ingár í hinum ýmsu greinum
byggingariðnaðarins. Áður en
byggingu Socony Mobil skýja-
kljúfsins lýkur næsta vor munu
um 300 verktakar hafa lagt
hönd að henni og hver um sig
mun hafa gert sínar eigin
teikningar í samræmi við heild-
arteikninguna.
Til þess að fá hugmynd um
hve mikil nákvæmni er nauð-
synleg í öllum áætlunum skul-
um við taka sem dæmi hand-
laugariaar í húsinu. Þær munu
verða yfir 1000. Pípur að þeim
og frá varð að leggja jafnvel
áður en handlaugarnar voru
pantaðar, því að handlaug er
ekki hægt að setja upp fyrr en
veggir hafa verið reistir, og
veggi er ekki hægt að reisa
fyrr en dyrarömmum hefur ver-
ið slegið upp, og dyrarammarn-
ir verða ekki reistir fyrr en
gólfin hafa verið lögð, og allar
rafleiðslur og pípur verður að
leggja áður en gólfin eru múr-
uð og þær verða að koma út á
réttum stöðum.
Aðflutningur efnis er ekki
minna vandamál en birgða-
flutningar til hers í stórorustu.
Sex mánuðum áður en fyrsta
skóflustunga var tekin byrjaði
aðalverktakinn að gera áætlan-
ir um aðflutning tilbúins efnis
frá framleiðendum nær og
fjær, jafnvel allt frá Belgíu og
Italíu. Byggingarvöruframleið-
endur urðu að sínu leyti að
tryggja sér hráefni á réttum
tíma. Nú koma á hverjum degi
um 60 flutningabílar að bygg-
ingunni til að losa þar farnri'