Gátt - 2014, Blaðsíða 4
4
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
g á t t – á r s r i t – 2 0 1 4
Breytir lífi og störfum fólks gæti
verið undirtitill Gáttar 2014. Hér
gefur að líta elleftu útgáfu Gáttar,
ársrits um framhaldsfræðslu, sem
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins (FA)
gefur út. Meginhlutverk Fræðslu-
miðstöðvarinnar er að vera vett-
vangur eigenda miðstöðvarinnar
fyrir víðtækt samstarf um símenntun
á íslenskum vinnumarkaði. Sam-
starfið nær til þróunar nýrra aðferða
til að efla þekkingu og færni fólks á
vinnumarkaði sem og framkvæmdar
samstarfsverkefna.
Meginefni ritsins að þessu sinni eru kannanir, greiningar
og mat, staða og framtíð framhaldsfræðslu. Niðurstöður
könnunar sem Capacent gerði á framhaldsfræðslukerfinu
fyrir mennta- og menningarmálaráðuneytið eru mikið fagn-
aðarefni. Við erum stolt yfir að kerfið sem við höfum átt þátt
í að skapa hefur skilað árangri og fjármunir hafa verið nýttir
á skilvirkan hátt. En reynsla og afstaða notendanna er ekki
síður mikilvæg og í niðurstöðunum kemur ánægja notenda
með framhaldsfræðslukerfið skýrt fram. Á forsíðu Gáttar
má lesa setningar sem hafðar eru eftir notendum, teknar úr
skýrslu Capacent. Þar á meðal eru setningar eins og Ég fékk
nýtt líf! Samtalið við náms- og starfsráðgjafann breytti öllu!
Námið hefur gefið mér áræði og sjálfstraust. Aldrei of seint
að byrja! Við sem störfum við framhaldsfræðslu að hljótum
gleðjast yfir staðhæfingum eins og þessum. Þær staðfesta að
starf okkar skiptir máli og hefur afgerandi áhrif á líf og störf
fjölda fólks um allt land.
Í ritinu eru enn fremur greinar um greiningar á þörf fyrir
starfsmenntun og þjálfun, greinar um gæðanám, grunn-
leikni og eflingu hennar, um fjölbreytileg samstarfsverkefni
milli framhaldsfræðsluaðila, skóla og fyrirtækja. Í ritinu eru
einnig fastir liðir, til dæmis þátturinn Hvað áttu við? – þar
sem settar eru fram tillögur um skilgreiningar og þýðingar
á íðorðum sem varða nám fullorðinna og starfsmenntun. Þá
er greint frá starfsemi FA og verkefnum sem unnið var að
á síðastliðnu ári. Öll miða þau að því að auka færni fólks á
vinnumarkaði og efla framhaldsfræðslu og starfsmenntun á
Íslandi.
Gátt hefur unnið sér sess sem vettvangur fyrir umræðu
um fræði, viðhorf og verkefni sem efst eru á baugi hverju
sinni. Leiðarljós okkar er að efla umræðu um framhalds-
fræðslu og starfsmenntun á Íslandi. Í ritinu miðlum við
reynslu og kynnum hvaðeina sem varðar nám og fræðslu full-
orðinna og ber hæst í umræðunni hverju sinni. Markmið rit-
stjórnar Gáttar er að í ritinu birtist úrval greina. Ritið er ætlað
breiðum hópi í samfélaginu, þeim sem stjórna og vinna að
fræðslu fullorðinna. Ritstjórnin telur sig afar lánsama að hafa
fengið til liðs við sig fjölbreytilegan hóp fólks við skriftirnar.
Í hópi greinahöfunda í þetta sinn eru sérfræðingar úr ýmsum
áttum, fræðimenn, fræðsluaðilar, leiðbeinendur, náms- og
starfsráðgjafar, auk starfsmanna FA.
Ritstjórnin vonar að ritið verði kærkomin lesning þeim
sem koma að námi fullorðinna og hvetur lesendur til að láta
skoðanir sínar í ljós, koma með ábendingar og hugmyndir
og taka þannig virkan þátt í því að efla nám og fræðslu full-
orðinna á Íslandi.
Njótið lestursins!
Sigrún Kristín Magnúsdóttir
SIGRúN KRISTÍN MAGNúSdóTTIR
P I S T I L L R I T S T j ó R A