Gátt - 2014, Side 9
9
F r Æ Ð s L U M i Ð s t Ö Ð A t V i N N U L Í F s i N s
g á t t – á r s r i t – 2 0 1 4
N o R Ð V e S T U R K j Ö R d Æ M I
Norðvesturkjördæmi er afar víðfeðmt og strjálbýlt og nær frá
Hvalfirði til Skagafjarðar að Vestfjörðum meðtöldum. Íbúar
kjördæmisins eru 29.683 talsins.1 Atvinnulíf er fjölbreytt og
byggir einkum á sjávarútvegi, stóriðju, opinberri þjónustu og
annarri þjónustu.2 Kjördæmið er ríkt af menntastofnunum
með þrjár símenntunarmiðstöðvar, fimm framhaldsskóla og
þrjá háskóla auk háskólasetra.
Menntunarstig í kjördæminu er umtalsvert lægra en á
landsvísu skv. vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands.
Hlutfall íbúa í kjördæminu á aldrinum 16–74 ára sem aðeins
hafa lokið grunnmenntun er 48% en 37% á landsvísu. 32%
hafa lokið starfs- og framhaldsnámi úr framhaldsskólum sem
er þremur prósentustigum lægra en á landsvísu. 20% íbúa í
kjördæminu hafa lokið háskólanámi en til samanburðar er
hlutfallið 27% á landsvísu.
Í fámennum byggðum eru fáir sem leggja stund á tiltekið
nám á hverjum stað. Erfitt getur verið að ljúka formlegu
námi í heimabyggð af starfsnámsbrautum þar sem ekki er
1 Hagstofa Íslands. (2013).
2 Hagvöxtur landshluta 2007–2011.
nægilegur fjöldi nemenda til þess að bjóða upp á alla til-
skilda áfanga. Kostnaðarsamt er fyrir nemendur að ferðast
um langan veg til að geta lokið námi í öðrum skólum og
ýmsar hindranir eru í veginum sem leitt geta til þess að nem-
endur ýmist ljúka ekki námi eða flytja til höfuðborgarinnar til
að klára nám og koma ekki til baka.
Innflytjendur
Innflytjendur3 eru 6,7% af íbúum landsins, þar af eru Pólverjar
fjölmennasti hópurinn, alls 9.363 íbúar eða 44% allra íbúa
með erlent ríkisfang. Pólverjar eru þannig 3% landsmanna.
Hæsta hlutfall innflytjenda af íbúum tiltekins svæðis er að
finna á Vestfjörðum eða 12%. Innflytjendur eru þó langflestir
á höfuðborgarsvæðinu eða tveir af hverjum þremur.4
Í Norðvesturkjördæmi eru samkvæmt Hagstofu Íslands
2.115 íbúar með erlent ríkisfang, þar af eru Pólverjar 56%.
Fjölmennastir eru Pólverjar á Akranesi, í Ísafjarðarbæ og
Snæfellsbæ.
3 Notast er við svohljóðandi skilgreiningu Hagstofu Íslands á orðinu innflytj-
andi: „Innflytjandi er skilgreindur sem einstaklingur sem fæðist erlendis
og á foreldra sem báðir hafa erlendan bakgrunn, þ.e. eru fæddir erlendis
og eiga sjálfir foreldra sem fæddir eru erlendis.“ (Hagtíðindi 2009).
4 Ari Klængur Jónsson. (2013). Tölfræðilegar upplýsingar um erlenda ríkis-
borgara og innflytjendur á Íslandi, bls. 1. Fjölmenningarsetur.
gEirLAUg jóhANNsdóttir
M e N N T U N N ú N A Í N o R Ð V e S T U R K j Ö R d Æ M I
Ti l raunaverkefni um hækkað menntunarst ig í Norðvesturkjördæmi
Tilraunaverkefni um hækkað menntunarstig í Norðvesturkjördæmi hófst í júní 2013 með
samningi milli mennta- og menningarmálaráðuneytis og Háskólans á Bifröst sem hefur
umsjón með framkvæmd verkefnisins. Verkefni þetta er liður í átaki til þess að hækka mennt-
unarstig í íslensku atvinnulífi og er fjármagnað af aðilum vinnumarkaðarins. Samskonar til-
raunaverkefni er í gangi í Breiðholti í Reykjavík og er yfirskrift verkefnanna Menntun núna.
Sumarið 2013 voru tekin viðtöl við um 800 stjórnendur og starfsmenn fyrirtækja og
stofnana í kjördæminu með það að markmiði að greina þörf einstaklinga á vinnumark-
aði í kjördæminu fyrir menntun. Spurningakannanir voru jafnframt framkvæmdar, annars
vegar á meðal forsvarsmanna fyrirtækja og stofnana, og hins vegar íbúakönnun út frá úrtaki
úr þjóðskrá.
Á grundvelli niðurstaðna viðtalsrannsóknar og kannana voru samþykktar tillögur að
aðgerðum til að hækka menntunarstig í kjördæminu sem nú er unnið að í samvinnu fjöl-
margra aðila. Meginmarkmiðin eru að efla ráðgjöf til fyrirtækja um nám á vinnustað, auka
samstarf atvinnulífs og fræðsluaðila í kjördæminu um starfstengt nám, fjölga einstaklingum
sem ljúka iðnnámi og efla íslenskukunnáttu innflytjenda í kjördæminu.
Geirlaug Jóhannsdóttir