Gátt - 2014, Page 13
13
F r Æ Ð s L U M i Ð s t Ö Ð A t V i N N U L Í F s i N s
g á t t – á r s r i t – 2 0 1 4
T I L L Ö G U R A Ð A Ð G e R Ð U M T I L A Ð
H Æ K K A M e N N T U N A R S T I G
Starfsfólk verkefnisins og verkefnastjórn mótuðu tillögur að
aðgerðum til að hækka menntunarstig í kjördæminu. Á grund-
velli niðurstaðna úr viðtölunum og könnununum lögðu þau til
að gert yrði átak í raunfærnimati í iðngreinum, að komið yrði
til móts við áhuga stjórnenda fyrir annars vegar sérsniðnum
námskeiðum sem þjóna þörfum atvinnulífsins og hins vegar
fyrir nýrri nálgun í íslenskukennslu fyrir innflytjendur.
Tillögurnar voru kynntar stýrihópi mennta- og menn-
ingarmálaráðuneytis þar sem sitja fulltrúar Samtaka atvinnu-
lífsins (SA), Alþýðusambands Íslands (ASÍ), Sambands
íslenskra sveitarfélaga, velferðarráðuneytis og mennta- og
menningarmálaráðuneytis.
Í framhaldi af þeim fundi var stofnaður faghópur til að
skýra betur umfang og markmið tillagna verkefnastjórnar.
Hlutverk faghópsins var að veita ráðgjöf um markmiðasetn-
ingu og skilgreina leiðir til að ná markmiðunum. Í faghópnum
sátu fulltrúar ASÍ, SA, Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins (FA),
Menntavísindasviðs Háskóla Íslands og mennta- og menn-
ingarmálaráðuneytis auk verkefnastjóra tilraunaverkefnisins.
Faghópurinn hélt alls fjóra fundi og kynnti endurskoðaðar
tillögur fyrir verkefnastjórn í nóvember 2013. Stýrihópurinn
samþykkti síðan tillögurnar 16. desember sama árs.
Í febrúar 2014 var undirritaður framhaldssamningur
til eins árs milli mennta- og menningarmálaráðuneytis og
Háskólans á Bifröst. Meginmarkmið samningsins tóku mið
af tillögum að aðgerðum til að hækka menntunarstig í kjör-
dæminu, nánar tiltekið:
• að efla ráðgjöf til fyrirtækja um nám á vinnustað í
Norðvesturkjördæmi.
• að auka samstarf atvinnulífs og fræðsluaðila í kjör-
dæminu um starfstengt nám.
• að fjölga einstaklingum sem ljúka iðnnámi.
• að efla íslenskukunnáttu innflytjenda í kjördæminu.
Starfsemi
Samningurinn kveður á um hvernig skuli unnið að fyrr-
greindum markmiðum og hvernig árangurinn skuli metinn:
• Ráða og þjálfa fræðsluerindreka sem munu starfa
hjá fræðslumiðstöðvum í kjördæminu og heimsækja
Efling aðsóknar
að iðn- og
tækninámi
Fræðslu-
erindrekstur
Átaksverkefni
í raunfærnimati
innan
kjördæmisins
Aukin
handleiðsla
og stuðningur í
framhaldi af
raunfærnimati
Aðstoð við að
komast á
námssamning
Fjölga
einstaklingum sem
hefja nám að nýju
eftir brotthvarf
Ráðgjöf við
stjórnendur um
klæðskerasaumað
nám á vinnustað
Kynning á
námsframboði
og námsstyrkjum
Kynning á
handleiðslu og
námsráðgjöf
Samráðsvett-
vangur skóla
og atvinnulífs
vinnur að
samræmdu
einingakerfi
Klæðskera-
saumað
nám í völdum
greinum
Matvælaiðnaður
sjávarútvegur /
landbúnaður
Heildarnálgun
í þjónustutengdu
námi
Ný nálgun
í íslenskunámi
fyrir
innflytjendur
Ráðstefna um
bestu lausnir í
íslenskukennslu
Íslenska kennd
á móðurmáli
innflytjenda
Íslenskukennsla
á vinnustað
Tillögur að aðgerðum til að hækka menntunarstig.