Gátt - 2014, Side 14
14
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
g á t t – á r s r i t – 2 0 1 4
fyrirtæki og hvetja þau til þess að gefa starfsmönnum
tækifæri til menntunar, með áherslu á nám í mat-
vælaiðnaði og þjónustu, þegar það á við. Þeir eiga
einnig að stuðla að auknu samstarfi atvinnulífsins og
fræðsluaðila.
• Áhersla er lögð á tækifæri starfsmanna af erlendum
uppruna til þess að læra íslensku á vinnustað með
þátttöku samstarfsfólks og vinnuveitenda.
• Auka aðgengi að raunfærnimati og stuðningi til að
ljúka námi.
• Koma á samráðsvettvangi fræðsluaðila á svæðinu
sem hefur það hlutverk að tryggja samræmt mat á
einingum milli framhaldsfræðsluaðila og skóla.
• Hvetja einstaklinga sem nýverið hafa hætt í fram-
haldsskóla til að hefja nám að nýju með boði um
aukinn stuðning náms- og starfsráðgjafa.
• Standa fyrir ráðstefnu um bestu leiðir í íslensku-
kennslu, í samstarfi við tilraunaverkefni í Breiðholti í
Reykjavík.
• Byggt verður á því sem fyrir er og meðal annars haft
náið samstarf við starfsmenntasjóði sem starfa á
svæðinu. Ein forsenda verkefnisins er að afurðir þess
séu aðgengilegar og vel skjalfestar svo þær megi nota
á öðrum landssvæðum.
Árangursmælikvarðar
• Að fyrirtækjum sem bjóða upp á starfstengt nám fjölgi
að jafnaði um tíu á mánuði eða um 120 fyrirtæki á
árinu í kjördæminu.
• Að 60 manns af svæðinu fari í raunfærnimat (15 af
Vestfjörðum og Norðurlandi vestra og 30 af Vestur-
landi).
• Að 75% þeirra sem ljúka raunfærnimati fari í nám til
að ljúka því sem á vantar.
• Að 15 framhaldsskólanemendur sem hætt hafa námi,
hefji nám að nýju og njóti aukinnar handleiðslu náms-
og starfsráðgjafa og raunfærnimats þegar við á.
• Að 25% þeirra sem taka þátt í íslenskukennslu á
vinnustað nái þeim árangri að geta haldið uppi sam-
ræðum á íslensku.
Háskólinn á Bifröst ber ábyrgð á verkefninu gagnvart
mennta- og menningarmálaráðuneyti en framkvæmd þess
verður í náinni samvinnu við símenntunarmiðstöðvar og
framhaldsskóla í kjördæminu. Símenntunarmiðstöðvarnar í
kjördæminu og Háskólinn á Bifröst gengu frá samkomulagi
um framkvæmd tiltekinna verkþátta í verkefninu.
A F R A K S T U R I N N N ú þ e G A R
Til þess að vinna að fyrrgreindum markmiðum voru gerðir
samningar við símenntunarmiðstöðvarnar þrjár í kjördæm-
inu, Farskólann, Fræðslumiðstöð Vestfjarða og Símennt-
unarmiðstöðina á Vesturlandi, um að annast þrjá verkþætti,
þ.e. fræðsluerindrekstur, skipulagningu á raunfærnimati og
íslenskukennslu á vinnustöðum. Í kjölfar þeirra samninga réðu
miðstöðvarnar til sín starfsfólk til að sinna fræðsluerindrekstri
og öðrum tengdum verkefnum, auk þess sem stjórnendur og
annað starfsfólk tekur virkan þátt í að vinna verkefnunum
brautargengi. Mikilvægt er að enginn tími fari til spillis því
samningurinn um tilraunaverkefnið gildir aðeins til eins árs.
Raunfærnimat
Einn liður í tilraunaverkefninu er að auðvelda aðgengi
að raunfærnimati fyrir íbúa í kjördæminu. Raunfærnimati
er ætlað að meta þá færni og þekkingu sem fólk hefur öðl-
ast í starfi og frítíma til styttingar náms í framhaldsskóla.
Töluverður tími fór í að kortleggja og velja hvaða greinar
skyldu valdar til að bjóða upp á raunfærnimat. Á dreifbýlu
svæði getur reynst erfitt að ná lágmarksfjölda þátttakenda
í greinum og því var nauðsynlegt að velja tilteknar greinar
sem einna mest þörf reyndist fyrir af þeim um það bil 40
greinum sem búið er að hanna raunfærnimat fyrir. Niður-
staðan varð sú að leggja áherslu á raunfærnimat meðal
starfsfólks í skipstjórn, fisktækni og þjónustugreinum, en
einnig meðal félagsliða, leikskólaliða og stuðningsfulltrúa.
Einnig skyldi unnið að raunfærnimati í slátrun, vélstjórn og
vélvirkjun í samvinnu við Iðuna fræðslusetur sem heldur
utan um raunfærnimat í öllum iðngreinum öðrum en rafiðn-
greinum. Haldnir voru kynningarfundir um raunfærnimat vítt
og breitt um kjördæmið í samstarfi við Iðuna og fleiri aðila
sem koma að raunfærnimati.
Í vor luku 17 þátttakendur á Sauðárkróki raunfærnimati í
fiskvinnslu og hefja þeir nám í haust í fisktækni á vegum Far-
skólans og Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra í samvinnu
við Fisktækniskólann. Í undirbúningi er að 25 þátttakendur
af Vestfjörðum ljúki raunfærnimati í fiskvinnslu á haustmán-
uðum. 42 einstaklingar úr kjördæminu hafa lokið raunfærni-
mati í skipstjórn sem Fræðslumiðstöð Vestfjarða annaðist
í samvinnu við Visku í Vestmannaeyjum og Tækniskólann.