Gátt - 2014, Side 18
18
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
g á t t – á r s r i t – 2 0 1 4
Fjöldi innflytjenda er mismunandi eftir hverfishlutum:
24,6% búa í Efra-Breiðholti, eða 2.134
16,2% búa í Neðra-Breiðholti, eða 634
11,8% búa í Seljahverfi, eða 956
Pólverjar eru fjölmennastir eða um 5% af íbúum Breiðholts
(3% af landsmönnum), þá kemur fólk af asískum uppruna
og því næst fólk frá Eystrasaltsríkjunum. Í skýrslu Fjölmenn-
ingarseturs um stöðu innflytjenda kemur fram að hlutfall
innflytjendabarna, sem hefja nám í framhaldsskóla, er 80%
á meðan sambærilegt hlutfall íslenskra barna er 96% en
brotthvarf innflytjenda er um 20% sem er örlítið meira en
brotthvarf íslenskra ungmenna en hlutfall erlendra nemenda
í grunnskólum í Efra-Breiðholti er mjög hátt en í Fellaskóla er
hlutfallið um 70%.
Hlutfall íbúa í Breiðholti á aldrinum 25–54 ára í Breið-
holti, sem aðeins hefur lokið grunnskólaprófi, er talsvert
hærra en í Reykjavík almennt. Í Neðra-Breiðholti og Selja-
hverfi er hlutfallið 41,8% og í Efra-Breiðholti er hlutfallið enn
hærra eða 49,7%. Í öðrum hverfum Reykjavíkur er meðaltal
þeirra, á aldrinum 25–54 ára, sem einungis er með grunn-
skólapróf 32,8%, sjá töflu 1.
Áætla má að um 3.300 manns á aldrinum 25–54 ára séu
án formlegrar menntunar. Erfiðara er að segja til um mennt-
unarstig brotthvarfshópsins (18–25 ára) enda hluti hans enn
í framhaldsskóla.
Tafla 2 – Hlutfall nemenda sem finnst
mjög eða frekar líklegt að þau fari í nám á
háskólastigi. Niðurstöður R&G.
Breiðholt 2012 Reykjavík 2012
9. bekkur 74% 82%
10. bekkur 70% 81%
Þegar viðhorf nemenda í 9. og 10. bekk til menntunar eru
skoðuð kemur í ljós að lægra hlutfalli þeirra finnst mjög lík-
legt eða líklegt að þau fari í nám á háskólastigi en almennt
gerist í Reykjavík, sjá töflu 2.
Þjónustumiðstöð Breiðholts og Fjölbrautaskólinn í Breið-
holti vinna saman að skimun fyrir brotthvarfi í grunnskólum
í hverfinu. Markmið verkefnisins er að styðja við og ná til
þeirra nemenda sem líklegir eru til að fara ekki í framhalds-
skóla eða hverfa úr námi. Til að sporna gegn brotthvarfi
hefur þeim nemendum, sem skimaðir eru með einkenni
þunglyndis og kvíða, verið boðið að taka þátt í hugrænni
atferlismeðferð (HAM) og hefur það skilað góðum árangri.
Menntun núna í samstarfi við Þjónustumiðstöð Breiðholts,
FB og Vinnumálastofnun mun bjóða upp á HAM-námskeið
fyrir eldri nemendur og einstaklinga sem óska eftir stuðningi
vegna kvíða og þunglyndis.
Samkvæmt upplýsingum frá Velferðarsviði Reykjavíkur-
Tafla 1 – Menntun í breiðholti.
Menntunarstig Karlar og konur Grunnmenntun
Framhaldssk.
menntun Háskólamenntun Upplýsingar vantar
Hverfi Aldur Hlutfall % Hlutfall % Hlutfall % Hlutfall %
Reykjavík Alls 16–74 ára 32,8 33,6 32,4 1,1
Reykjavík 16–24 ára 62,0 34,8 2,5 0,7
Reykjavík 25–54 ára 22,8 32,1 43,9 1,3
Reykjavík 55–74 ára 31,4 35,9 31,5 1,2
109 Breiðholt Alls 16–74 ára 41,8 34,0 21,5 2,7
109 Breiðholt 16–24 ára 66,5 32,7 0 0,8
109 Breiðholt 25–54 ára 38,8 30,5 26,1 4,6
109 Breiðholt 55–74 ára 29,4 39,5 29,7 1,3
111 Breiðholt Alls 16–74 ára 49,7 38,4 10,8 1,1
111 Breiðholt 16–24 ára 78,9 21,1 0 0
111 Breiðholt 25–54 ára 40,2 44,3 13,6 1,9
111 Breiðholt 55–74 ára 50,2 37,4 12,3 0